Gullna hliðið fer í Borgarleikhúsið

Uppfærsla Leikfélags Akureyrar á Gullna hliðinu eftir Davíð Stefánsson verður frumsýnt á stóra sviði Borgarleikhússins föstudaginn 19. september kl. 20.00. Sýningin vakti mikla athygli norðan heiða síðasta vetur og fékk mikið lof gagnrýnenda. Egill Heiðar Anton Pálsson leikstýrir verkinu og aðalhlutverk er í höndum Maríu Pálsdóttur. Hljómsveitin Eva skipuð þeim Sigríði Eir Zophoníasardóttur og Jóhönnu […]
Blái hnötturinn, gestasýning frá Póllandi

Borgarleikhúsið Teatr Miniatura frá Gdansk í Póllandi sýnir Bláa hnöttinn í leikstjórn Erlings Jóhannessonar daganna 18. og 19. september í Tjarnarbíó í Reykiavík og 21. september í Samkomuhúsinu á Akureyri. Þetta er pólsk frumuppfærsla á leikriti Andra Snæs Magnasonar eftir margverðlaunaðri bók Sagan af bláa hnettinum, sem þýdd hefur verið á yfir 30 tungumál. Bókin […]
Okkar eigin – Höfundasmiðja á Flateyri

Helgarnar 26-28. september og 4-6. / 11-13. /18-20. október verður haldin fjögurra helga leikhöfundasmiðja í Samkomuhúsi Flateyrar. Verkefnið er styrkt af Menningarráði Vestfjarða og verður kynnt öllum áhugaleikfélögum á Vestfjörðum. Val stendur um að sækja allar fjórar helgarnar eða stakar helgar eftir atvikum.
Lína langsokkur í Borgarleikhúsinu

Laugardaginn 13. september kl. 14.00 frumsýnir Borgarleikhúsið Línu Langsokk í leikstjórn Ágústu Skúladóttur og nafna hennar Ágústa Eva Erlendsdóttir fer með hlutverk hinar einu sönnu Sigurlínu Rúllugardínu Nýlendínu Krúsimundu Efraimsdóttur Langsokks. Leikmyndin er í höndum Ilmar Stefánsdóttur og María Th. Ólafsdóttir sér um búninga.
Róðarí, frumsýning í Tjarnarbíói

Auðlind – leiklistarsmiðja frumsýnir í Tjarnarbíói 16. september nýtt íslenskt leikrit, Róðarí eftir Hrund Ólafsdóttur. Fjögur systkini á miðjum aldri og móðir þeirra neyðast til að hittast þegar ein systirin veikist og þarf á hjálp að halda. Samheldni er ekki þeirra sterkasta hlið. Það er því þrautin þyngri að þurfa í sameiningu að ráða fram […]
Skráningar hafnar í leiklistarskóla LA

Leiklistarskóli Leikfélags Akureyrar hefur verið starfandi frá því árið 2009. Fjöldi nemenda hefur streymt í gegnum námið sem sett er upp í aldursskiptum heilsárs námskeiðum. Um 75 nemendur sækja skólann á hverju misseri og hafa margir hverjir verið með frá upphafi. Skólinn er ætlaður börnum og unglingum í 3. – 10. bekk grunnskóla. Skólasókn er […]
Opinn samlestur á farsanum Beint í æð

Nýjung hjá Borgarleikhúsinu. Nú gefst áhugafólki um leikhús tækifæri til að koma á opinn samlestur í Borgarleikhúsinu. Verkið Beint í æð eftir Ray Cooney í leikstjórn Halldóru Geirharðsdóttur verður leiklesið þriðjudagsmorguninn 9. september kl 9. Þetta er liður í því að opna leikhúsið og skapa skemmtilegan formála að væntanlegum sýningum.
Líf og fjör hjá Halaleikhópnum

Mikið er um að vera hjá Halaleikhópnum um þessar mundir. Námskeið í Sagnalist með Ólöfu Ingibjörgu Davíðsdóttur er um það bil að hefjast og stefnt er að því að halda Ljósanámskeið í október með Benedikt Axelssyni. Og nú var Halaleikhópurinn að ráða Guðjón Sigvaldason leikstjóra til að leikstýra hópnum í vetur.
Íslenskur vetur hjá Þjóðleikhúsinu

Þjóðleikhúsið býður upp spennandi leikár þar sem öll frumsýnd verk verða íslensk. Kastljósinu verður varpað sérstaklega á konur og baráttusögur þeirra við ólíkar aðstæður, en líka karlmanninn, raunir hans og dáðir. Að auki verða kynnt nútímaleg dansleikhúsverk og síðast en ekki síst er börnum á öllum aldri boðið upp á fjölbreytt úrval leiksýninga.
Petra, tvær aukasýningar í Tjarnarbíói

Listahópurinn DFM, sem færði okkur Dansaðu fyrir mig síðasta vetur, sýnir tvær aukasýningar á nýja verkinu Petra. Sýningarnar fara fram 5. og 11. september. Margir Íslendingar kannast við Petru, en hún kom á fót glæsilegu steinasafni á Austfjörðum. Þegar frú Petra Sveinsdóttir á Stöðvarfirði var spurð hvort álfasamfélagið væri ekki í algjöru uppnámi vegna steinasöfnunar […]
Sumri Frystiklefans lýkur með heimsókn í Tjarnarbíó

Til að kveðja sumarið og heilsa haustinu munu öðlingarnir Kári Viðarsson og Benedikt Karl Gröndal færa Trúðleik eftir Hallgrím H. Helgason á svið í Tjarnarbíó. Halldór Gylfason leikstýrði verkinu fyrir Frystiklefann árið 2012 og hlaut einróma lof gagnrýnenda og enginn leiklistaráhugamaður eða kona ætti að missa af. Trúðleikur verður sýndur í september á sunnudögum kl. […]
Nýtt leikár að hefjast í Borgarleikhúsinu

Borgarleikhúsið kynnir leikárið 2014-2015 með glæsilegu blaði sem kom út í vikunni. Kortasalan hófst í gærmorgun. Dagskrá vetrarins er fjölbreytt og má þar sjá allt frá erlendum gömlum klassískum verkum til glænýrra íslenskra verka sem voru skrifuð sérstaklega fyrir Leikfélag Reykjavíkur. Aðsókn í Borgarleikhúsið hefur aukist jafnt og þétt á síðustu árum og er meiri […]
Kameljón í Tjarnarbíói

Kameljón er einleikur með Álfrúnu Helgu Örnólfsdóttur, í leikstjórn Friðgeirs Einarssonar. Einstök aðlögunarhæfni og sífelld hamskipti valda því að Kameljónið veit ekki lengur hver grunnlitur þess er. Hefur hún, Kameljónið, eitthvert eiginlegt sjálf eða er hún aðeins endurspeglun þeirra sem á vegi hennar verða í lífinu? Hún ákveður að hafa uppi á sjálfri sér, hvað […]
Haraldurinn – þema: pólitík

Meðlimir í fyrsta langspunaleikhóp landsins spyrja áhorfendur út í pólitíkina. Svörin eru notuð sem efniviður í gamansýningu sem samin er á staðnum og tekur um það bil hálftíma í flutningu. Ekkert er ákveðið fyrirfram og sýningin verður aldrei aftur endurtekin.
Bláskjár aftur á svið í Borgarleikhúsinu

Bláskjár eftir Tyrfing Tyrfingsson er íslenskt gamandrama, með súrum keim, og fjallar um einlæga löngun tveggja systkina í Kópavogi (skammt frá Hamraborg) til að endurnýta sig og byrja lífið upp á nýtt. Reyndar fjallar það um sitthvað fleira, til dæmis feðraveldið, grimmdina, ofbeldið og veikburða getu okkar til þess að segja hvert öðru satt – og […]
Reið, frumsýning í Borgarleikhúsinu

Í dansverkinu Reið stíga á svið níu flóknar skepnur. Glæsilegar, ljósar yfirlitum, holdugar, loðnar og gljáandi. Dásamlega dramatískar, skapmiklar, villtar og viðkvæmar. Þær eru með tígulegan limaburð, langan háls, sterka leggi, breið bök og mjúkar línur. Þægar en óútreiknanlegar, varar um sig, þolinmóðar og gáfaðar. Tillitssamar, kærleiksríkar, kynæsandi og kraftmiklar. Þetta eru hraustar, frjóar og […]
NÁLÆGÐ – Lókal 2014

Lókal – alþjóðleg leiklistarhátíð verður haldin í 7. sinn dagana 27.-31. ágúst n.k. Í þetta sinn einbeitir hátíðin sér að samskiptum innanbúðarmanna- og kvenna í íslensku samfélagi; afmörkuðum áhyggjum þeirra af ástinni, fjölskyldu, innilokunarkennd, túrisma og leigumarkaði.
ALIEN CITIZEN: An Earth Odyssey

Hver ertu þegar þú kemur allstaðar að, en á sama tíma frá engum sérstökum stað? ALIEN CITIZEN: An Earth Odyssey er skemmtilegur og hnyttinn einleikur um hvernig það er að alast upp með fjölþjóðlegan bakgrunn, frá Mið-Ameríku, Norður-Afríku, Mið-Austurlöndum og Nýja Englandi.
Uppsprettan auglýsir eftir handritum

Við hjá Uppsprettunni erum að leita eftir handritum sem aldrei hafa verið flutt á sviði áður. Þau mega vera mest 8 blaðsíður að lengd, eða 8 blaðsíðna heilsteypt atriði. Því miður eru einleikir ekki leyfðir og hver höfundur má einungis senda inn eitt handrit. Engar aðrar kröfur eru gerðar.
Landsliðið á línu

Verkið Landsliðið á línu, sem verið er að sýna í Tjarnarbíói, er skrifað og leikið af Arnari Dan Kristjánssyni og fjallar um ungan dreng sem ræður sig á um borð á línubát í von um að geta fyllt vasa sína af peningum en lendir í hrömmunum á áhöfn sem tekur meira en nokkrir peningar geta […]
Sagnalist – námskeið hjá Halaleikhópnum

Námskeið í því að segja fullorðnu fólki sögur verður haldið í Halanum í september. Leiðbeinandi verður Halaleikkonan Ólöf I. Davíðsdóttir sem lagði land undir fót og lærði svolítið um sagnalistina í útlöndum. Í lok námskeiðs verður haldin skemmtun þar sem nemendur segja sögurnar sem þeir hafa æft á námskeiðinu.
Fréttir frá Íslensku óperunni

Á komandi haustmisseri verður ráðist í metnaðarfullt verkefni hjá Íslensku óperunni – sviðssetningu á einni af umfangsmestu óperum Verdis, Don Carlo, sem aldrei hefur verið sviðssett á Íslandi áður. Þórhildur Þorleifsdóttir leikstýrir sýningunni og hefur hún Pál Ragnarsson ljósahönnuð og Þórunni Sigríði Þorgrímsdóttur búninga- og leikmyndahöfund sér til fulltingis. Guðmundur Óli Gunnarsson verður hljómsveitarstjóri. Flutt […]
Heima er best, sirkussýning

Heima er best er alíslensk sirkusskemmtun þar sem öll fjölskyldan nýtur þess að horfa á ótrúlega leikni listamanna Sirkuss Íslands. Sýningin er tveir tímar með kortérs hléi og hentar öllum frá 5 ára aldri og þolinmóðum yngri krökkum. Grippl, húlla, loftfimleikar, einhjólalistir og svo margt fleira er sett saman svo úr verður sannkölluð sirkusupplifun, með […]
How to become Icelandic in 60 min

How to become Icelandic in 60 minutes er leiksýning sem leikin er á ensku, samin og flutt af Bjarna Hauki Þórssyni og leikstýrt af Sigurði Sigurjónssyni. Verkið var frumsýnt í Hörpu 25. maí. How to become Icelandic in 60 minutes er sambland af söguleikhúsi og uppistandi þar sem reynt er að kenna þeim sem sýninguna […]
Tuttugu viðburðir á Act alone í ár

Einleikjahátíðin Act alone verður haldin í sjávarþorpinu Suðureyri dagana 6. – 10. ágúst. Dagskráin er sérlega fjölbreytt og einleikin. Alls verður boðið uppá 20 einleikna viðburði eitthvað fyrir alla konur og kalla eða bara frá 2ja til 102ja ára. Aðgangur að öllum viðburðum Act alone er ókeypis og öllum opin. Act alone var fyrst haldin […]
Lokað vegna sumarleyfa

Skrifstofa Bandalags íslenskra leikfélaga, Leikhúsbúðin og Leiklistarvefurinn fara í sumarleyfi 1. júlí. Við opnum aftur þriðjudaginn 5. ágúst. Við biðjumst afsökunnar ef þetta veldur viðskiptavinum okkar vandræðum en vegna niðurskurðar og hagræðingar í rekstri er búið að fækka starfsmönnum í einn og því ekki lengur hægt að hafa opið allt árið.
BLAM! Síðustu sýningar um helgina

Þrír kúgaðir skrifstofumenn sólunda lífi sínu á sorglegustu skrifstofu veraldar undir vökulu auga siðblinds yfirmanns. Í hvert sinn sem hann lítur undan, nýta þeir tækifærið til að „blamma“: Að endurgera uppáhalds senurnar sínar úr hasarmyndum. Þegar yfirmaðurinn fer að „blamma“ með þeim færist fjör í leikinn og við tekur stórhættuleg saga sem leikin er á […]
Fréttir frá Tjarnarbíói

Á morgun fimmtudag, kl. 17:30, verður haldinn opinn fundur í Tjarnarbíó um dagskrá leikársins 2014-2015. Leikrit, dansverk, tilraunaverkefni og vinnustofur listamanna hafa nú verið bókuð fyrir næsta leikár og mynda glæsilega heild sem Tjarnarbíó er stolt af að tilkynna. Sjá nánar hér fyrir neðan. Á fundinum mun framkvæmdastjóri hússins, Guðmundur Ingi Þorvaldsson, fara yfir þau […]
Grímuhafar 2014

Íslensku sviðslistaverðlaunin, Gríman, voru veitt í 12. skiptið við hátíðlega athöfn í Borgarleikhúsinu í kvöld. Sýningarnar Ragnheiður og Gullna hliðið voru sigursælar og hlutu báðar þrenn verðlaun á hátíðinni en Ragnheiður var meðal annars valin sýning ársins. Kynnar kvöldsins voru Bergur Ebbi og Dóri DNA og slógu þeir á létta strengi eins og þeim einum er […]
Arty Hour #4 í Tjarnarbíói

Arty Hour er að sanna sig sem vettvangur listamanna til að segja frá sér og kynnast verkum annarra. Eftir því sem verkin þróast er skemmtilegt að fylgjast með breytingunum, sjá þróunina úr hugmyndum í heil atriði úr verkunum. Fjórða listastundin verður haldin 19. júní í Tjarnarbíó. Sumir þeirra sem koma fram munu segja frá þróun […]
Laust pláss á Sérnámskeiði fyrir leikara!

Alveg óvænt var að losna eitt pláss á Sérnámskeið í leiklist í Leiklistarskóla Bandalagsins sem settur verður laugardaginn 14. júní. Kennari er Rúnar Guðbrandsson. Opið er fyrir umsóknir til mánudagsins 9 júní (annar í hvítasunnu) – fyrstur kemur, fyrstur fær! Endilega dreifið þessum upplýsingum til félaga ykkar ef ske kynni að þar leyndist einhver áhugasamur […]
Skiladagur styrkumsókna er 10. júní!

Skilaboð til aðildarfélaga Bandalags íslenskra leikfélaga: Athugið að síðasti skiladagur styrkumsókna vegna leikársins 2013-14 er þriðjudagurinn 10. júní. Heimilt er að póstleggja umsóknir þann dag. Og rétt er að ítreka að skrifstofa Bandalagsins og Leikhúsbúðin verða lokuð vegna sumarleyfa frá 1. júlí til 5. ágúst.
Tilnefningar til Grímunnar 2014

Tilnefningar til Grímunnar, íslensku sviðslitaverðlaunanna 2014, voru kunngjörðar í dag og hlaut Eldraunin Eldraunin eftir Arthur Miller í leikstjórn Stefans Metz, í sviðssetningu Þjóðleikhússins, flestar tilnefningar eða ellefu talsins. Verðlaunin verða veitt í 12. sinn við hátíðlega athöfn á Stóra sviði Borgarleikhússins þann 16. júní nk. og sýnd í beinni útsendingu á RÚV.
Aðalfundur Leikfélags Ölfuss
Aðalfundur Leikfélags Ölfuss verður haldinn í stofu 14, Grunnskólanum í Þorlákshöfn þriðjudaginn 10. júní kl. 20:00. Auk aðalfundarstarfa verða verkefni leikársins rædd og tekið fagnandi á móti nýjum félögum. Þeir sem verða 18 ára á árinu geta gengið í félagið og að sjálfsögðu allir aðrir sem eldri eru og áhuga hafa á leiklist.
Hugleikur sýnir í Þjóðleikhúsinu
Kreppusöngleikur leikfélagsins Hugleiks, Stund milli stríða, var á vordögum valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning leikársins af dómnefnd Þjóðleikhússins og verður sýndur á stóra sviði leikhússins laugardagskvöldið 7. júní nk. Þetta er í tuttugasta og fyrsta sinn sem Þjóðleikhúsið velur sýningu úr áhugaleikhúsinu og býður henni til sín.
“Long-form improv” námskeið í júní

Í „long-form improv“ búa leikararnir í sameiningu til um það bil hálftíma langa sýningu út frá t.d einu orði sem þeir fá frá áhorfendum. „Long-form improv“ er fyrir alla. Á fyrri námskeiðum hafa verið leikarar, dansarar, handritshöfundar, myndlistarmenn, grafískir hönnuðir og fleiri.Þetta er frábært verkfæri fyrir fólk til að öðlast öryggi í spunavinnu, fá þjálfun […]
Leikhópurinn Lotta í Elliðaárdalnum

Leikhópurinn Lotta frumsýnir Hróa hött, glænýtt íslenskt leikrit með söngvum í Elliðaárdalnum miðvikudaginn 28. maí, klukkan 18:00. Þetta er áttunda sumarið sem Leikhópurinn Lotta setur upp útisýningu en síðastliðin sumur hefur hópurinn tekist á við Gilitrutt, Stígvélaða köttinn, Mjallhvíti og dvergana sjö, Hans klaufa, Rauðhettu, Galdrakarlinn í Oz og Dýrin í Hálsaskógi. Að frumsýningu lokinni […]
Aðalfundur Leikfélags Hafnarfjarðar

Leikfélag Hafnarfjarðar boðar til aðalfundar leikfélagsins laugardaginn 31. maí 2014, kl. 15:00. Aðalfundurinn verður haldinn í Gaflaraleikhúsinu, Strandgötu 50 í Hafnarfirði.
Fanclub sýnir í Tjarnarbíó

Dansflokkurinn Fanclub sýnir verkið DEATH í Tjarnarbíó 29. og 30. maí. Dansflokkurinn Fanclub samanstendur af fjórum ungum konum sem fara sínar eigin leiðir og bjóða listamönnum sem þeim þykja spennandi í samstarf. Flokkurinn kynnir nú samstarf við tvo framsækna danshöfunda, Kim Hiorthøy (NO/SE) og Itamar Serussi (IL/NL), en sýningin er í tveimur hlutum og fjalla […]
Leikhús án leikara í Borgarleikhúsinu

Der Klang der Offenbarung des Göttlichen er leikhús án leikara; verk sem drifið er áfram af magnaðri tónlist Kjartans Sveinssonar og sérstæðum leikmyndum Ragnars Kjartanssonar. Þetta er óhefðbundin leikhúsupplifun, sem gerð var fyrir hið virta Berlínarleikhús Volksbühne og er nú frumsýnt í Borgarleikhúsinu miðvikudaginn 28. maí kl 20. Aðeins eru þrjár sýningar á verkinu og takmarkaður miðafjöldi er í boði.