Frásagnir sjómannskvenna á Akureyri
Leikhópurinn Artik stendur nú að uppsetningu á nýja leikverkinu Skjaldmeyjar hafsins, sem frumsýnt verður í Samkomuhúsinu í lok mars. Verkið er sannsögulegt leikverk um líf eiginkvenna sjómanna og er fyrsta frumsýningin í röð gróðurhúsaverkefna Leikfélags Akureyrar. Verkið er unnið eftir aðferð sem á ensku kallast Verbatim og er best þýtt sem beinheimildaverk, en þá eru […]
Opnað fyrir umsóknir í Leiklistarskóla BÍL

Opnað verður fyrir umsóknir í Leiklistarskóla Bandalagsins eftir miðnætti föstudaginn 15. mars. Hér má sjá upplýsingar um námskeið í boði. Að þessu sinni er ekki tekið við umsóknum í tölvupósti heldur þarf að fylla út umsókn á vefnum. Upplýsingar sem nauðsynlegar eru: Námskeið sem sótt er um, nafn, kennitala, netfang, sími, heimilisfang, póstnr. og staður. […]
BarPar á Húsavík
Leikfélag Húsavíkur frumsýndi hið þekkta leikrit BarPar eftir Jim Cartwright laugardaginn 9. mars. Leikarar eru sjö talsins í fjórtán hlutverkum en leikstjóri verksins er Vala Fannell. Leikritið Barpar gerist á bar í smábæ á Norður-Englandi. Þessi ónefndi bar sem einkum er frægur fyrir það “að annað hvort kemur fólk í pörum eða það fer í pörum”. […]
Alþjóðleg leiklistarhátíð barna á Indlandi
Alþjóðleg hátíð barnaleiklistar verður haldin í Delhi á Indlandi í 16. sinn í desember næstkomandi. Delhi International Children’s Festival (DICF) er á vegum Ryan International Schools sem reka hátt í 200 skóla á Indlandi og víðar. 20 leikhópum verður boðið á hátíðina sem stendur í 5 daga í desember næstkomandi. Kennarar sem vinna með börn og unglinga á […]
Leiklistarnámskeið í Evrópu
Töluvert framboð er af námskeiðum og vinnustofum í leiklist á meginlandi Evrópu fyrir þá sem vilja bæta við sig þekkingu og þjálfun í leiklistinni. Námskeið í leik, leikstjórn og sviðshreyfingum er t.d. að finna hér í fjölbreyttri flóru slíkra í Þýskalandi og Austurríki á þessu ári og næsta: * International Theatre Workshop 10. – 17. […]
Rympa í Stafholtstungum
Leikdeild Umf. Stafholtstungnafrumsýndi Rympu á ruslahaugnum eftir Herdísi Egilsdóttur síðastliðinn laugardag í Félagsheimilinu Þinghamri. Verkið er barna- og fjölskylduleikrit sem gerist á ruslahaug þar sem Rympa býr ásamt honum Volta sínum. Óhætt er að segja að Rympa sé persónugervingur óæskilegs félagsskapar og finnst henni hrekkir og þjófnaðir lítið mál og raunar hin mesta skemmtun. En […]
Rjúkandi ráð hjá Leikfélaginu Borg
Leikfélagið Borg frumsýndi Rjúkandi ráð eftir þá Jónas og Jón Múla Árnasyni og Stefán Jónsson með tónlist eftir Jón Múla á laugardaginn 2. mars síðastliðinn. Leikstjóri er Hera Fjord og sýnt er í Félagsheimilinu Borg. Miðaverð á sýninguna er 2500 kr og 1500 fyrir börn 12 ára og yngri. Miðapantanir í s. 771-4465 eða í skilaboðum […]
Leiklistarskóli BÍL 2019
Leiklistarskóli BÍL verður settur í 23. sinn í sumar og er námsskráin fjölbreytt og spennandi eins og vant er. Boðið er upp á þrjú námskeið; grunnámskeið fyrir styttra komna, framhaldsnámskeið í leikritun auk sérnámskeiðs fyrir leikara. Tveir nýir og spennandi kennarar, þau Aðalbjörg Árnadóttir og Árni Kristjánsson mæta í skólann en auk þeirra snýr Rúnar […]
Er trúðurinn í þér týndur?
Leikhúsbúðin hefur fengið sendingu af trúðanefjum frá Just Clown Noses. Annarsvegar Roundo trúðanef úr þykku, mjúku plasti sem ekki meiðir nefið og hinsvegar ódýr nef úr svampi. Gerðu vel við trúðinn í þér og fáðu þér gott á nefið.
Dagskrá skólans að taka á sig mynd
Nú er orðið ljóst hvaða námskeið verða í boði í Leiklistarskóla BÍL í sumar. Í boði verða eftirtalin námskeið: Leiklist I – Kennari Aðalbjörg Árnadóttir, Leikritun II – kennari Árni Kristjánsson og Sérnámskeið fyrir leikara, kennari Rúnar Guðbrandsson. Skólinn sem haldinn verður á Reykjum í Hrútafirði eins og undanfarin ár, stendur frá 8. – 16 […]
Sýning Rauða skáldahússins
Á alþjóðlegum degi kvenna þann 8. mars fer fram 8. sýning Rauða skáldahússins, sem verður eingöngu skipuð konum. Rauða skáldahúsið heldur uppi ljóðaveislum í leikhúsanda sem fara fram í Iðnó fjórum sinnum á ári þar sem ljóðalestri er blandað saman við leikhús, kabarett, börlesk, sirkús og tónlist. Iðnó er breytt í athvarf listamanna sem ættu […]
Skapandi aðferðir í leiklist
Leikfélagið Hugleikur stendur næsta rúma mánuðinn fyrir námskeiðum fyrir leikara og leikstjóra sem vilja kynna sér skapandi aðferðir (devised) við vinnslu leikverka fyrir svið. Námskeiðin henta jafnt byrjendum sem lengra komnum og standa opin jafnt félagsmönnum sem öðrum. Nánar um námskeiðin: 1. Leiklistarnámskeið, um 17-20 tímar. Lágmarksfjöldi þátttakenda: 12 Leikarinn sem skapandi listamaður. Gegnum ýmis […]
Fullkomið brúðkaup í Lyngbrekku
Leikdeild Umf. Skallagríms setur nú í fyrsta sinn á fjalirnar hið sívinsæla leikrit Fullkomið brúðkaup eftir Robin Hawdon. Þýðandi verksins er Örn Árnason og leikstjóri er Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson. Frumsýnt verður 22. febrúar 2019 kl. 20:30 í félagsheimilinu Lyngbrekku. Fullkomið brúðkaup er bráðskemmtilegt og rómantískt gamanleikrit sem fjallar um ungt par sem er að fara […]
Að máta sig í mismunandi hlutverk

Saumastofan eftir Kjartan Ragnarsson Leikfélag Ölfuss – Leikstjóri Guðfinna Gunnarsdóttir Gengið er inn gegnum dökkleitt tjald, við okkur blasa saumavélarnar, straubrettin og sniðin sem mörgum eru í barnsminni, en koma þó yngri áhorfendum spánskt fyrir sjónir. Það er viðeigandi að láta áhorfendur stíga gegnum efni til að njóta þessa verks, því það er einmitt efnið, […]
Ástandið, sögur kvenna frá hernámsárunum

Halaleikhópurinn, sýnt í Hátúni 10 Höfundar Brynhildur Olgeirsdóttir og Sigrún Valbergsdóttir Leikstjórn Sigrún Valbergsdóttir Halaleikhópurinn er löngu orðin föst stærð í menningarlífi Reykjavíkur og sá sem ekki fer á sýningar hans er ekki að fylgjast með. Í ár sýnir hópurinn Ástandið eftir Brynhildi Olgeirsdóttur og Sigrúnu Valbergsdóttur undir öruggri leikstjórn Sigrúnar. Verkið byggir á frásögnum […]
Ástandið – saga kvenna frá hernámsárunum
Halaleikhópurinn frumsýnir leikritið Ástandið eftir Brynhildi Olgeirsdóttur og Sigrúnu Valbergsdóttur, föstudaginn 8. febrúar. Leikritið byggir á útvarpsþáttum Brynhildar um upplifun hennar af hernámsárunum. Sigrún Valbergsdóttir er leikstjóri og meðhöfundur Brynhildur. Verkið fjallar um fjórar vinkonur sem hittast á kaffihúsi 50 árum eftir hernámið og rifja upp sögur sínar frá þeim árum. Þær eiga sér sameiginlegar minningar því að allar […]
Tvær ævintýraóperur í Iðnó
Laugardaginn 2. febrúar munu Hugleikur og Menntaskóli í tónlist frumsýna tvær íslenskar óperur byggðar á þekktum ævintýrum. Fyrir hlé birtast Þyrnirós, prins og norn í splunkunýrri óperu sem nefnist Ár og öld. Ungur prins hefur brotist í gegnum þyrnigerði og kemur inn í höll þar sem allir hafa sofið í hundrað ár en ævintýrið tekur […]
Sönglög úr íslenskum leikritum í Iðnó
Á Safnanótt verður Leikminjasafn Íslands með dagskrá í Iðnó þar sem fjallað verður um sönglög í íslenskum leikritum. Um lifandi tónlistarflutning að ræða en einnig verður leikin hljóðrituð tónlist og nokkrir reynsluboltar leggja orð í belg. Dagskrá: Kl. 19:00 Leikin lög úr ýmsum leikritum og söngleikjum. Þátttakendur í spjallborði eru Jón Ólafsson og Ólafur Haukur […]
Saumastofan í Ölfusi
Leikfélag Ölfuss frumsýnir verkið Saumastofuna eftir Kjartan Ragnarsson þann 8. febrúar næstkomandi. Leikstjóri er Guðfinna Gunnarsdóttir en hún hefur starfað með Leikfélagi Selfoss frá barnsaldri og er starfandi formaður Bandalags íslenskra leikfélaga. Níu leikarar taka þátt í sýningunni en það eru þau Álfheiður Østerby, Árný Leifsdóttir, Ásta Margrét Grétarsdóttir, Daníel Máni Óskarsson, Erla Dan Jónsdóttir, Ingólfur Arnarson, […]
Dimmalimm í nýrri leikgerð
Á frábærum föstudegi sem er um leið Bóndadagur, berast stórtíðindi úr herbúðum Kómedíuleikhússins. Þrír Bílddælingar hafa tekið sig saman og gert splunkunýja leikgerð úr ævintýri Bílddælingsins Guðmundar Thorsteinssonar eða Muggs. Hið Bílddælska tríó skipa þeir Þröstur Leó Gunnarsson sem mun annast leikstjórn, Björn Thoroddsen er höfundur tónlistar og loks Elfar Logi Hannesson sem mun leika. […]
Leiklistarnámskeið fyrir nýliða
Í febrúar stendur Leikfélag Kópavogs fyrir leiklistarnámskeiði sem ætlað er nýliðum og fólki með minni leikreynslu. Farið verður í ýmis grunnatriði sviðsleiks og áhersla lögð á praktíska nálgun. Leiðbeinandi á námskeiðinu er Hörður Sigurðarson sem kennt hefur á svipuðum námskeiðum hjá leikfélaginu undanfarin ár. Námskeiðið verður 18 klst. í heildina, 3 klst. í senn í […]
Hálft ár í RVK Fringe
Laugardaginn næstkomandi fer fram kynningarhóf Reykjavík Fringe Festival, eða „Hálft ár í RVK Fringe“ partý á Hlemmur Square. Hér má finna facebook viðburð hófsins. Fram koma ýmsir listamenn sem að tóku þátt í síðustu hátíð og/eða munu taka þátt í næstu hátíð, og sér uppistandarinn Jono Duffy um að vera kynnir kvöldsins. Skemmtiatriði eru í […]
Kolsvört kannibalkómedía
Stúdentaleikhúsið frumsýnir kolsvörtu kannibalkómedíuna Igíl Redug miðvikudaginn 23. janúar. Leifur er búinn að skipuleggja hið fullkomna kvöld og býður afar sérstökum gesti. Kvöldið fer þó ekki eins og Leifur hafði óskað sér og er ástæðuna að finna lengst aftur í mannkynssögunni. Igíl Redug er skrifað og leikstýrt af Natani Jónssyni og hópurinn samanstendur af 14 […]
Halaleikhópurinn í ástandinu
Líf og fjör er núna hjá Halaleikhópnum sem æfir leikritið ,,Ástandið – sögur kvenna frá hernámsárunum“ eftir Sigrúnu Valbergsdóttur og Brynhildi Olgeirsdóttur. Leikstjóri er Sigrún Valbergsdóttir. Leikritið fjallar um fjórar vinkonur sem hittast eftir 50 ár og rifja upp sögur sínar frá hernámsárunum. Sögur sem þær hafa sumar ekki getað sagt fyrr frá. Hvernig líf […]
Aukasýningar á Tom, Dick og Harry
Smygl, ólöglegir innflytjendur og sundurlimuð lík. Er það hjálplegt þegar ungt par vill ættleiða barn? Hjónin Tom og Linda eiga von á konu frá ættleiðingarstofunni að spjalla við þau og taka út heimilið. Bræður Tom, þeir Dick og Harry vilja ósköp vel en tekst þó að setja allt í uppnám. Leikfélag Kópavogs verður með aukasýningar […]
Inntökupróf í Rose Bruford
Rose Bruford, sem er alþjóðlegur leiklistarháskóli í London, mun halda inntökupróf og viðtöl fyrir allar deildir í Gaflaraleikhúsinu, Hafnarfirði, þann 2. febrúar 2019. Nánari upplýsingar og skráning: Tölvupóstur: international@bruford.ac.uk Símanúmer: +44(0)20 8308 2638 Námið hefst í október 2019. Rose Bruford hefur verið valinn besti leiklistarháskóli Bretlands í skoðanakönnun nemenda nokkur ár í röð. www.bruford.ac.uk https://www.bruford.ac.uk/…/international-audition-and-int…/ […]
Lokað yfir hátíðirnar
Að venju loka Bandalag íslenskra leikfélaga, Leikhúsbúðin og Vefverslunin yfir jól og áramót. Að þessu sinni lokum við frá og með 21. desember og opnum aftur 2. janúar. Njótið aðventunnar!
Förðunarsett á 50% afslætti til jóla
Leikhúsbúðin auglýsir: Öll förðunarsett á 50% afslætti til jóla. Settin eru góðar jólagjafir til þeirra sem áhuga hafa á förðun og gervagerð. Í hverju setti er allt sem þarf í viðkomandi förðun/gervi ásamt lýsingu á hvernig farið er að. Þarna gerið þið verulega góð kaup! Takmarkað magn! Crazy Doll Kit 4.850.- Sugar Skull Kit […]
Hans og Gréta hjá Íslensku Óperunni
Ævintýraóperan Hans og Gréta eftir Engelbert Humperdinck verður frumsýnd í Hörpu 25. nóvember nk. Óperan er byggð á hinu klassíska ævintýri Grimmsbræðra sem fjallar um systkinin Hans og Grétu sem búa í skóginum ásamt foreldrum sínum og lenda í klónum á vondu norninni en tekst með samvinnu og hugrekki að klekkja á henni. Tónskáldið samdi […]
Lína Langsokkur í Freyvangi
Freyvangsleikhúsið í Eyjafirði sýnir barnaleikritið Lína Langsokkur, eina ástsælustu sögu úr smiðju Astrid Lindgren. Sigurlína Rúllugardína Nýlendína Krúsímunda Efraímsdóttir Langsokkur er ekki bara hetja af því hún er sterkust í heimi, hún er hetja í afstöðu sinni til lífsins. Lína Langsokkur segir okkur að vera við sjálf og allt sem við getum orðið, en ekki reyna […]
Áheyrnarprufur fyrir breskan leiklistarháskóla
Rose Bruford, sem er alþjóðlegur leiklistarháskóli í London, mun halda inntökupróf og viðtöl fyrir allar deildir í Gaflaraleikhúsinu, Hafnarfirði, þann 2. febrúar 2019. Nánari upplýsingar og skráning: Tölvupóstur: international@bruford.ac.uk Símanúmer: +44(0)20 8308 2638 Námið hefst í október 2019. Rose Bruford hefur verið valinn besti leiklistarháskóli Bretlands í skoðanakönnun nemenda nokkur ár í röð. www.bruford.ac.uk https://www.bruford.ac.uk/international/international-audition-and-interview-dates/ […]
Everybody´s Spectacular sviðslistahátíðin
ALÞJÓÐLEGA SVIÐSLISTAHÁTÍÐIN Í REYKJAVÍK EVERYBODY´S SPECTACULAR er árleg sviðslistahátíð sem blásið er til af LÓKAL og Reykjavík Dance Festival. Hátíðin, sem fram til þessa hefur verið haldin í lok ágústmánaðar, fer nú fram í nóvember og verður þar með enn sterkari hluti menningarvetrarins í höfuðborginni. EVERYBODY´S SPECTACULAR er einstakur vettvangur fyrir þá sem vilja kynna […]
Sprúðlandi skemmtun í Kópavogi

Tom, Dick & Harry Höfundar: Ray og Michael Cooney Þýðing og leikstjórn: Hörður Sigurðarson Ég fór í gær á sýningu Leikfélags Kópavogs á farsanum Tom, Dick & Harry eftir feðgana Ray og Michael Cooney. Ray hefur stundum verið kallaður farsakóngurinn og hafa mörg verka hans eins og t.a.m. Með vífið í lúkunum, Beint í æð […]
Blóðsystur í Stykkishólmi
Leikfélagið Grímnir sýnir Blóðsystur í Vatnasafninu að Bókhlöðustíg 19 í Stykkishólmi Leikritið Blóðsystur var samið af Guðmundi L. Þorvaldssyni og ungmennahóp Leikfélags Kópavogs 2010. Leikstjóri er Árný Leifsdóttir. Í þessu gamanleikriti er skyggnst inn í Klaustur til systranna og fylgst með því hvað drífur á daga þeirra, en heyrst hefur að sést hafi til vampýra […]
Tom, Dick og Harry – frumsýning 30. október
Hjónin Tom og Linda eiga von á konu frá ættleiðingarstofunni að spjalla við þau og taka út heimilið. Bræður Tom, þeir Dick og Harry vilja ósköp vel en tekst þó að setja allt í uppnám. Smygl, ólöglegir innflytjendur og sundurlimuð lík eru ekki beint að hjálpa þegar ungt par vill ættleiða barn. Leikfélag Kópavogs frumsýnir […]
Með barnið ofarlega í hjartanu

Á vit ævintýranna hjá Leikfélagi Selfoss Þrjú ævintýri eftir H.C.Andersen, Pál J. Árdal og Davíð Stefánsson Leikstjórn: Ágústa Skúladóttir Það er nú svo með okkur barnlausa fólkið, við þykjumst alltaf þurfa afsökun fyrir að fara á svokallaðar barna- eða fjölskyldusýningar. Þannig höfum við líklega rifið upp meðalaldurinn í Litla leikhúsinu á Selfossi nú á fimmtudag, […]
Andlátsfregn
Jónína Kristjánsdóttir, fyrrverandi formaður Bandalags íslenskra leikfélaga, lést þann 1. október s.l. 96 ára gömul. Árið 1963 byrjaði Jónína að leika með Leikfélagi Keflavíkur og var hún formaður félagsins til fjölda ára. Í kjölfarið sótti hún sér þekkingu á sviði leiklistar og leikstjórnar á fjölmörgum námskeiðum sem haldin voru víða á norðurlöndum. Hún starfaði síðan […]
Ársritið 2017-18 er komið út
Ársrit Bandalags íslenskra leikfélaga leikárið 2017–2018 er nú komið út og birt hér á Leiklistarvefinum. Í ritinu eru að finna allar helstu upplýsingar um starfsemi Bandalags íslenskra leikfélaga og aðildarfélaga þess á síðastliðnu leikári. Að venju prýða ritið margar myndir héðan og þaðan úr starfinu. Hér má nálgast ársritið. Þeir sem vilja fá ársritið útprentað […]
Leikfélag Selfoss frumsýnir á föstudaginn
Þann 12. október frumsýnir Leikfélag Selfoss fjölskylduverkið „Á vit ævintýranna“ í leikstjórn Ágústu Skúladóttur í Litla leikhúsinu við Sigtún. Verkið er sameiginleg sköpun leikhópsins og leikstjórans en er byggt á ævintýri H.C. Andersens um Litla Kláus og stóra Kláus í þýðingu Steingríms Thorsteinssonar, ljóðinu Sálin hans Jóns míns eftir Davíð Stefánsson ásamt kvæðinu En hvað […]
Ljóðahugleiðsla um frið og kærleika
Fimmtudaginn 11. október, í friðarviku Reykjavíkurborgar, stendur Eyrún Ósk Jónsdóttir, skáld og leikkona fyrir friðar-ljóðagjörning í Menningarsetri SGI búddistasamtakanna Laugavegi 178. Um er að ræða eins konar ljóða-hugleiðslu þar sem flytjandinn leiðir áhorfendur í einskonar kyrrðar ferðalag með ljóðaupplestri en öll ljóðin fjalla um frið og kærleika og sannkölluð kyrrðar tónlist ómar undir upplestrinum. Áhugaverð og […]