Metölulisti Bandalagsins, fyrri hluti mest seldu leikritin 2002
Bandalag íslenskra leikfélaga á heimsins stærsta safn leikrita á íslenskri tungu. Þar er að finna bróðurpart þeirra leikrita sem leikin hafa verið hérlendis frá upphafi leiklistar. Ármanni Guðmundssyni datt í hug að áhugavert væri að skoða hvaða leikrit og hvaða höfundar eru vinsælust hjá íslenskum leikritakaupendum og tók saman lista yfir metsöluleikrit og metsöluhöfunda ársins […]
Áramótaheit áhugaleikarans 2003
Áhugaleikarar eru ekkert öðruvísi en aðrir landsmenn að því leyti að þeim finnst gaman að strengja áramótaheit. Þeir eru að vísu ekkert líklegri en aðrir til að efna þau en ef Gallup gerði skoðanakönnun á því hver eru vinsælustu áramótaheit hins dæmigerða íslenska áhugaleikara, yrði útkoman hugsanlega einhvern veginn svona.
Íslenskur áhugaleikari í útlöndum
Hinn geðþekki fyrrverandi ritari Bandalagsins, Sigríður Lára Sigurjónsdóttir býr nú í Montpellier í S-Frakkalandi. Hún hefur gert örlitla úttekt á menningar- og mannlífi þar í borg.
Tréhausinn 2005 – Hrund Ólafsdóttir
Hrund Ólafsdóttir skrifar: Leiksýningar sem ég skrifaði gagnrýni um fyrir Morgunblaðið á síðastliðnu leikári voru 37 talsins. Auk þess sá ég 6 sýningar sem einnig verða lagðar undir Tréhausinn. Sjálf kom ég að tveimur sýningum til viðbótar og er því vanhæf til þess að dæma þær.
Tréhausinn 2005
Tréhausinn, óopinber verðlaun áhugaleikhússins er nú veittur í þriðja sinn. Þorgeir Tryggvason reið á vaðið og skapaði fyrirbærið árið 2003 og Hrund Ólafsdóttir hélt merkinu á lofti á síðasta leikári. Í ár dugar hinsvegar ekkert minna en tvíhöfði til að verðlauna það sem vel var gert í áhugaleikhúsinu á Íslandi. Kemur það til af því […]
Einleikir
Grein um einleikjaformið og möguleika þess. Áður birt í Leiklistarblaðinu 1998.
Alþjóðlegi leikhúsdagurinn – Íslenskt ávarp
Frá því Ísland gerðist aðili að ITI hefur íslenskur leikhúslistamaður verið fenginn ár hvert til að semja ávarp í tilefni dagsins og hefur sú hefð skapast að ávarpið birtist í dagblöðum, er flutt af höfundi í útvarpi og af einhverju leiksviði þennan dag og hafa aðrir leikhúslistamenn stigið fram á svið fyrir sýningar í leikhúsum […]
Alþjóðlegi leikhúsdagurinn 27. mars 2005
Alþjóða leikhúsmálastofnunin, ITI, hefur jafnan fengið virtan leikhúslistamann til að semja ávarp dagsins og það hefur síðan verið þýtt á þjóðtungur aðildarlandanna og birt og flutt þennan dag. Í ár er það franska leikskáldið Ariane Mnouchkine sem er höfundur ávarpsins.
Hugleikur og Grace prinsessa
Hugleikur er á leið á alþjóðlega leiklistarhátíð í Mónakó með sýningu sína Undir Hamrinum, sem reyndar heitir Country Matters í þessari styttu ferðaútgáfu. Leiklistarhátíðin í Mónakó er á vegum alþjóða áhugaleikhússambandsins AITA/IATA og hefur verið haldin á fjögurra ára fresti síðastliðin fimmtíu ár eða þar um bil.
Athyglisverðasta áhugaleiksýning
Fulltrúi dómnefndar Þjóðleikhússins kom á aðalfund Bandalags ísl. leikfélaga þann 7. maí og tilkynnti niðurstöðu dómnefndar. Það var Stúdentaleikhúsið í Reykjavík með sýninguna Þú veist hvernig þetta er sem varð hlutskarpast og óskar Leiklistarvefurinn félaginu innilega til hamingju.
„Aðeins til tvenns konar leiklist góð og slæm“
Íslenskt áhugaleikhús fær hrós Í Morgunblaðinu 12. júlí síðastliðinn er viðtal við Danute Vaigauskaite sem var sérstakur heiðursgestur leiklistarhátíðarinna Leikum núna! Hún tjáir þar m.a. skoðun sína á íslensku áhugaleikhúsi sem hún segir að sé "… einstaklega gott og í háum gæðaflokki".
Dauði og jarðarber
Félag Flóna frumsýndi grínharmleikinn Dauða og jarðarber laugardaginn 11. júní í Gúttó í Hafnarfirði. Sýningin er farandsýning sem ætlunin er að ferðast með um landið í sumar. Leikhópurinn Félag flóna. Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir Leikarar: Gunnar B. Guðmundsson, Snorri Engilbertsson Höfundar; Ágústa Skúladóttir, Björn Thorarensen, Gunnar B. Guðmundsson, Snorri Engilbertsson
Hvunndagshetja í Kópavogi
Leikfélag Kópavogs frumsýndi í Hjáleigunni um sl. helgi leikverk, sem hlotið hefur nafnið „Allra kvikinda líki“ og er unnin af leikstjórum og leikhóp upp úr breska teiknimyndablaðinu VIZ. Fulltrúi leiklistarvefsins var á staðnum.
Undan ægivaldi ömmu
Ný íslensk leiksýning, Dauð og jarðarber, sem að sögn aðstandenda er grínharmleikur, var á fjölunum í Gúttó í Hafnarfirði í gær. Leiklistarvefurinn átti auðvitað mann á staðnum.
Kontrabassinn
Leikfélag Hafnarfjarðar sýnir um þessar mundir einleikinn Kontrabassann eftir Patrick Süskind í þýðingu Hafliða Arngrímssonar og Kjartans Óskarssonar í leikstjórn Gunnars B. Gunnarssonar. Greinarhöfundur tók hús á þeim Gunnari B. Guðmundssyni leikstjóra og Halldóri Magnússyni stórleikara eitt síðkvöld í nýliðinni viku þar sem þeir voru við æfingar á Kontrabassanum eftir Patrick Süskind sem Leikfélag Hafnarfjarðar […]
Leikdómar á vefnum
Þorgeir Tryggvason sem er leiklistaráhugamönnum að góðu kunnur, hefur starfað sem leiklistargagnrýandi á Morgunblaðinu síðan árið 2000. Hann hefur nú gert alla sína leikdóma á umræddu tímabili aðgengilega á vef sem hann nefnir Úr glerhúsinu. Einnig má í því sambandi benda á að hægt er nálgast leikdóma sem birst hafa á Leiklistarvefnum hér.
Fyrri vefir vikunnar
Vefur vikunnarHugleikur í Reykjavík fagnaði 20 ára afmæli þann 24. apríl og opnaði af því tilefni nýjan vef félagsins. Þar er að finna hafsjó af upplýsingum um starfsemi félagsins frá upphafi og þá einstaklinga sem að því hafa komið ásamt söngtextum úr leikritum og ýmislegt fleira. Sjón er sögu ríkari. Vefur vikunnar – Leiklistarnám á […]
Tenglar í leikritunarvefi
Leikskáldafélag Íslands Upplýsingar um íslensk leikskáld og tenglar hingað og þangað. Playwrights on the Web Upplýsingabrunnur um leikskáld og verk þeirra. Playscripts Inc. Hægt að lesa nokkur leikrit á ensku og panta sýningarrétt beint. Yahoo Upplýsingar um leikskáld á Yahoo leitarvefnum. Altavista Upplýsingar um leikskáld á Altavista leitarvefnum.
Tenglasöfn
McCoy’s Guide to theatre and performance studies Efnismikill upplýsingavefur og gagnlegar ráðleggingar um leit. Theatre-link Stór og mikil upplýsingaveita um allt sem nöfnum tjáir að nefna varðandi leikhús. Virtual Library for theatre and drama Tengla- og heimilisfangaskrá yfir leíklistartengt efni.
Íslenskir leiklistartenglar
Komedíuleikhúsið Ísafirði Netfang: komedia@komedia.is Veffang: komedia.is Á senunni Vesturgötu 44, 101 Reykjavík Sími 8611935 Netfang: senan@senan.is Veffang: senan.is Útvarpsleikhúsið – Ríkisútvarpinu Leiklistardeild Viðar Eggertsson Efstaleiti 1 150 Reykjavík Sími 515 3900 Netfang vidare@ruv.is Veffang www.ruv.is/leikhus Borgarleikhúsið, Leikfélag Reykjavíkur Leikhússtjóri Magnús Geir Þórðarson Listabraut 3, 103 Reykjavík Miðasölusími 568 8000 Skrifstofa 568 5500 Fax: 568 0383 […]
Viltu fara á námskeið eða leiklistarhátíð erlendis?
Þá ertu á réttum stað því hér finnur þú tengla sem vísa þér veginn: Námskeið og hátíðir um allan heim IATA Námskeið og hátíðir NEATA á norrænum og baltneskum vettvangi http://www.neata.dk/ Námskeið og hátíðir á Norðurlöndunum NAR
Leikþættir
Hér er að finna stutta leikþætti á PDF-formi sem hægt er að sækja og skoða með Acrobat Reader forritinu. Með tímanum munu bætast hér við fleiri leikþættir. Ef áhugi er fyrir að setja upp þætti sem birtast hér verður að hafa samband við viðkomandi höfund eða Þjónustumiðstöð BÍL. Stuttverkasamkeppni Eftirfarandi þættir tóku þátt í Stuttverkasamkeppni […]
Leikritalisti Bandalags íslenskra leikfélaga
Hér er hægt að leita í leikritasafni Bandalagsins. Öll leikritin er hægt að panta í síma 551 6974 og í tölvupósti info@leiklist.is. Sendum í póstkröfu hvert á land sem er. Einnig er hægt að lesa/hlaða niður nokkrum styttri leikþáttum með því að smella hér. Einföld Leit – Sláðu inn það orð sem þú […]
Fundir
Stjórnarfundur 6. og 7. maí 2005 Fundargerð Stjórnarfundur 1. apríl 2005 Fundargerð Stjórnarfundur 27. nóvember 2005 Fundargerð Haustfundur 9.-10. október 2004 Fundargerð Stjórnarfundur 8.—10. október 2004 Fundargerð Stjórnarfundur 9. og 10. júlí 2004 Fundargerð Stjórnarfundur 23. maí 2004 Fundargerð AÐALFUNDUR 22. og 23. maí 2004 Fundargerð Stjórnarfundur 20. og 21. maí 2004 Fundargerð Stjórnarfundur 13. […]
Leiklistarskólinn

Leiklistarskóli Bandalags íslenskra leikfélaga hefur starfað í núverandi mynd síðan vorið 1997. Árlega síðan hefur skólinn starfað í 9 daga á ári, venjulega í júní og hefur verið boðið upp á mikinn fjölda námskeiða sem sótt hafa verið af hátt á níunda hundrað nemendum. Starfsárið 2026 Starfstími skólans á þessu ári er frá 20. til 28. […]
Aðildarfélög Bandalags íslenskra leikfélaga
Aðildarfélög Bandalags íslenskra leikfélaga Freyvangsleikhúsið, Eyjafirði Halaleikhópurinn, Reykjavík Hugleikur, Reykjavík Leikdeild Umf. Vöku Leikfélag Blönduóss Leikfélag Dalvíkur Leikfélag Djúpavogs Leikfélag Fljótsdalshéraðs Leikfélag Hafnarfjarðar Leikfélag Hofsóss Leikfélag Hornafjarðar Leikfélag Hólmavíkur Leikfélag Húsavíkur Leikfélag Hveragerðis Leikfélag Hörgdæla Leikfélag Keflavíkur Leikfélag Kópavogs Leikfélag Mosfellssveitar Leikfélag Ólafsfjarðar Leikfélag Ólafsvíkur Leikfélag Patreksfjarðar Leikfélag Rangæinga Leikfélag Raufarhafnar Leikfélag Reyðarfjarðar Leikfélag Sauðárkróks […]
Skrifstofa
[et_pb_section fb_built=“1″ admin_label=“section“ _builder_version=“3.22″][et_pb_row admin_label=“row“ _builder_version=“3.25″ background_size=“initial“ background_position=“top_left“ background_repeat=“repeat“][et_pb_column type=“4_4″ _builder_version=“3.25″ custom_padding=“|||“ custom_padding__hover=“|||“][et_pb_text admin_label=“Text“ _builder_version=“4.9.10″ background_size=“initial“ background_position=“top_left“ background_repeat=“repeat“ hover_enabled=“0″ sticky_enabled=“0″] Skrifstofa, verslun og þjónustumiðstöðBandalags íslenskra leikfélaga er að Kleppsmýrarvegi 8, 104 Reykjavík.Fastur opnunartími er frá 9:00 til 13:00 virka daga en oftast er einhver við fram eftir degi.Netfangið er info@leiklist.is. Sími: 551 6974. Starfsmaður Bandalagsinser […]
404
Ein lítil kómedía…
Hugleikur frumsýndi fyrir nokkrum vikum leikritið Enginn með Steindóri eftir Nínu B. Jónsdóttur í leikstjórn Þorgeirs Tryggvasonar. Útsendari vor átti ekki heimangengt á sýninguna fyrr en í gær. Sjá rýni hér.
Leikum núna 2005
Nú er rétt um mánuður í að blásið verði til leiks á leiklistarhátíðinni Leikum núna á Akureyri. Dagskrá hátíðarinnar hefur verið nú birt hér á vefnum.
Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins
(27.05.2005)Dómnefnd Þjóðleikhússins hefur nú valið athyglisverðustu áhugaleiksýningu leikársins 2004-2005 og varð sýning Stúdentaleikhússins, Þú veist hvernig þetta er, fyrir valinu. Hún verður sýnd á Stóra sviði Þjóðleikhússins þriðjudaginn 31. maí kl. 20:00 og kl. 22.30.
Hugleikur undir hamrinum
Hugleikur frumsýndi laugardaginn 8. mars í Tjarnarbíó, leikritið Undir hamrinum eftir Hildi Þórðardóttur í leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Leiklistarvefurinn átti mann á staðnum og hér má sjá hvað honum fannst.
Fjórréttað hjá Leikfélagi Kópavogs
Tilraunaeldhús Leikfélags Kópavogs frumsýndi nú fyrir skemmstu sýninguna Fjórréttað sem er, eins og nafnið gefur lítillega til kynna, fjögur verk sem mynda eina sýningu. Þrjú verkanna eru eftir félaga í LK í samvinnu við leikstjóra ein er eftir útlending nokkurn. Ármann Guðmundsson var á staðnum og ákvað að tjá sig opinberlega um það sem var […]
Tréhausinn 2003 – Óskarsverðlaun áhugaleiklistarinnar
Oft hefur Listamaðurinn ógurlegi reitt hátt til höggs en aldrei eins og nú. Nú er það hvorki meira né minna en Tréhausinn, óopinber heiðursverðlaun áhugaleiklistarinnar. Hver var besta sýningin? Bestu leikararnir? Besta handritið? Besta útlitið?
Kraftmikil Lína í Borgarleikhúsinu
Það eru sumir sem halda því fram að það sé sjálfsagður réttur hverrar kynslóðar barna að sjá ákveðin barnaleikrit. Þetta ár hlýtur því að vera afar mikilvægt í réttindabaráttu yngstu kynslóðar Reykvíkinga því tvö þessarra mikilvægu verka eru nú sýnd í stóru leikhúsunum. Gagnrýnandi Leiklistarvefsins skellti sér á annað þeirra, nánar tiltekið Línu langsokk í […]
Sólstingur
Lárus Vilhjálmsson skrapp á sunnudaginn á sýningu hjá Versló sem heitir Sólstingur. Hann hefur áður farið á nemendamótssýningar þeirra Verslinga og verið afar hrifinn af þeim metnaði sem þau leggja í þessar sýningar. Gagnrýni Lárusar er hér.
Hlegið dátt á Eldað með Elvis
Lárus Vilhjálmsson fór um daginn á eina af lokaæfingum á Eldað með Elvis eftir Lee Hall og var bara nokkuð sáttur við stykkið. Þrátt fyrir nokkra hnökra á verkinu sjálfu sem ekki verða lagaðir svo auðveldlega og smá klikk hjá leikurum og tækniliði (þetta var æfing nota bene) lítur þetta út fyrir að verða ansi […]
Kontrabassinn hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar
Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýndi nýlega leikritið Kontrabassann eftir Patrick Susskind. Njósnapenni Leiklistarvefsins var á staðnum.
Leikfélag Dalvíkur – Kverkatak
„Bullandi reimleikar í Ungó“ er fyrirsögnin á gagnrýni Guðrúnar Höllu Jónsdóttur um sýningu unglingadeildar Leikfélags Dalvíkur. Kverkatak, sem er skrifað og leikstýrt af formanni félagsins Júlíusi Júlíussyni, var frumsýnt 13. nóvember og hefur verið uppselt á allar sýningar síðan. Hér er gagnrýni Guðrúnar Höllu.
Hugleikur á síðum buxum
Hugleikur hélt sína árlegu jólaskemmtun í Kaffileikhúsinu föstudaginn 13. desember undir heitinu Klundurjól. Var þar leikið og sungið af list eins og venjan er. Útsendari Leiklistarvefs var þar viðstaddur og hér má sjá hvort Hugleikarar komu honum í jólaskap.