Uppreisn Æru á Reyðarfirði

Á Reyðarfirði, þann 20. apríl síðastliðinn frumsýndi Nemendafélag Grunnskóla Reyðarfjarðar í samvinnu við leikfélag Reyðarfjarðar leikritið Uppreisn Æru eftir Ármann Guðmundsson. Ég verð að viðurkenna að ég fór á sýninguna svolítið fordómafullur, eins og fólki er nú lagið að vera. Það var heimskulegt.

Riðið inn í sólarlagið

Hedonismi er orð sem lýsir kannski vel nútímaþjóðfélagi þar sem aðaleftirsókn mannskepnunnar virðist vera að öðlast sem mesta gleði eða nautn. Þetta orð lýsir líka verki þeirra Kláusa “Riðið inn í sólarlagið”. Þar keppast allar persónurnar við að öðlast sem mesta nautn hvort sem það er á sviði kynlífs, áfengis eða söfnun efnislegra gæða.

Tilbrigði við sjófugl

Stúdentaleikhúsið frumsýndi um miðjan mars leikritið “Tilbrigði við sjófugl”, en lagðist í dvala um tíma vegna þess að bæta þurfti úr brunavarnarmálum í annars skemmtilegu húsnæði Tónlistarþróunarmiðstöðvarinnar við Hólmaslóð. Stúdentaleikhúsið fór á flug um miðbik vetrar með samfélagsádeilunni “Þú veist hvernig þetta er” og flýgur nú um hugmyndaheim Tsjekhovs.

Síðdegi í garðinum

Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýndi Dýragarðssögu eftir Edward Albee í leikstjórn Halldórs Magnússonar síðastliðinn laugardag. Sýningin er sú fimmta í röðinni sem félagið frumsýnir á yfirstandandi leikári og undirritaður hefur áður lýst aðdáun á þeim krafti og kjarki sem speglast í þessu framtaki félagsins þó segjast verði að gæði sýninganna hafi verið upp og ofan.

Eru rottur lævísar?

Í gamla samkomuhúsinu á Húsavík er Leikfélag Húsavíkur að sýna leikritið Sambýlinga eftir Tom Griffin í leikstjórn Odds Bjarna Þorkelssonar. Leikritið segir frá lífi fjögurra einstaklinga sem búa saman á heimili fyrir þroskahefta. Það gefur okkur innsýn í líf þessara fötluðu einstaklinga og leyfir okkur að fylgjast með daglegum athöfnum þeirra, sem margar hverjar virðast […]

Lóa tekur lagið

Taktu lagið Lóa er eitt fjölmargra verka Jims Cartwright. Þetta er að mörgu leyti átakanleg saga, og þó þótti mér það galli við handritið hversu miklar upplýsingar um samband persóna á milli eru látnar í té strax í upphafi.

Fjölskyldudrama og fjölmenning

Hugleikur frumsýndi sunnudaginn 6. mars, leikritið „Patataz“ eftir Björn M. Sigurjónsson í Stúdíó 4, nýju húsnæði við Vatnagörðum. Félagið hefur undanfarin ár sýnt flestar sinna uppsetninga í Tjarnarbíói sem er hefðbundið leikhús og það eru því eflaust nokkur viðbrigði að koma í „svartan kassa“ eins og þann sem er í Vatnagörðum.

Pólitísk ádeila í Borgarleikhúsinu

Ágætur leikhúsmaður segir á bloggsíðu sinni: „Opinions are like Assholes. Everybody’s got one“. Það eru orð að sönnu og það er heldur enginn hörgull á skoðunum í leikverkinu American Diplomacy sem Hið lifandi leikhús frumsýndi í Borgarleikhúsinu fimmtudagskvöld 24. febrúar.

Leikfélag Hafnarfjarðar setur í fluggírinn

Leikfélag Hafnarfjarðar heldur ótrautt áfram með sína einstöku „tilraun“, þ.e. að setja upp fimm leiksýningar í striklotu, þar sem fimm leikstjórar úr röðum félagsmanna fá að spreyta sig á verðugum verkum. Fjórða verkefnið í þessari uppsetningaröð, Birdy eftir Naomi Wallace, byggt er á samnefndri skáldsögu Williams Whartons var frumsýnt nú fyrir skemmstu.

Leikfélag Sólheima

Formaður: Valgeir Fridolf Backman valgeir@solheimar.is 8556022 Ritari: Bragi Svavarsson bragi@solheimar.is 8556087 Gjaldkeri: Þorvaldur Kjartansson valdi@solheimar.is 8556088 Meðstjórnandi: Anika Beacker anika@solheimar.is Félagið starfar að Sólheimum í Grímsnesi  

Ódauðlegt sjónarspil og upplifun í Kópavogi

Ég ætla að byrja þessa umfjöllun á því að gefa Memento Mori Hugleiks og Leikfélags Kópavogs fjórar stjörnur fyrir alveg hreint frábæra sýningu. Og Ágústa Skúladóttir er besti leikstjóri landsins. Enn einu sinni sannar hún það að hún klikkar ekki.

Háð á heimsmælikvarða

Þegar ég fyrir nokkrum dögum stóð og horfði á sýningu Stúdentaleikhússins á “Þú veist hvernig þetta er” velti ég fyrir mér afhverju ég væri ekki búinn að sjá svona sterka pólitíska satíru fyrr í íslensku leikhúsi. Ég man varla eftir neinu svona síðan á áttunda áratugnum.

Álagabærinn á Reyðarfirði

Laugardaginn 6. nóvember síðastliðinn frumsýndi Leikfélag Reyðarfjarðar leikritið Álagabærinn eftir Ármann Guðmundsson. Leikritið gengur mikið út á stutt atriði, mörg með söng.

Að aflokinni stuttverkahátíð

Stuttverkahátíðin Margt smátt fór fram í Borgarleikhúsinu laugardaginn 23. október síðastliðinn, annað árið í röð. Þessi litla leiklistarhátíð er einstæð í íslensku leiklistarlífi og þótt víðar væri leitað.

Skálkastríð í Valaskjálf

Ég minnist þess þegar ég í bernsku sá bíómyndina Bugsy Malone, hvað mér þótti hún ofboðslega skemmtileg. Bæði þótti mér hún fyndin og svo var tónlistin sérlega grípandi og góð. Því miður gafst mér ekki kostur að sjá verkið á sviði fyrr en eftir að ég komst til vits og ára en get vel ímyndað […]

Fínn mánaðarskammtur hjá Hugleik

Hugleikur hefur nú um nokkurra ára skeið staðið fyrir einþáttunga- og stuttverkasýningum undir nafninu “Þetta mánaðarlega”. Þarna hefur fjöldi höfunda, leikara og leikstjóra úr félaginu fengið tækifæri til að spreyta sig á styttri verkum sem bera littla eða enga fjárhagslega áhættu. Þarna er hægt að taka áhættu í verkefnum, leikurum og leikstjórn.

Beisk tár Petru von Kant

Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýndi Beisk tár Petru von Kant eftir Rainer Werner Fassbinder laugardaginn 4. september. Fassbinder, einn af þekktari kvikmyndaleikstjórum Þjóðverja, var fjölhæfur listamaður sem virðist hafa fengið leikritunardellu á árunum 1968 til 1971 þegar hann skrifar flest leikrita sinna. Af þeim eru Beisk tár Petru von Kant með þekktari.

Stórfín Stútungasaga

Um helgina frumsýndi Leikfélagið Sýnir ofbeldisleikinn Stútungasögu í Heiðmörk. Verkið er eftir Ármann Guðmundsson, Hjördísi Hjartardóttur, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason, og hefur að mér skilst verið sett upp um 10 sinnum á álíka mörgum árum. Það er ekki að ástæðulausu, þetta að einstaklega skemmtilegur texti sem stendur alltaf fyrir sínu, hefur allavega gert það […]

Tilraun sem gengur upp

Það er hressandi í annars leiðinda söngleikjasúpu sumarsins að skreppa á tvær bráðskemmtilegar leiksýningar sem eru eins ólíkar og þær eru vel heppnaðar.

Umfjöllun um Hamskiptin hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar

Það er skemmtilega táknrænt að Leikfélag Hafnarfjarðar skuli sýna „Hamskiptin“ eftir Franz Kafka um þessar mundir. Þetta fornfræga leikfélag hefur átt erfitt uppdráttar í nokkur ár og hefur þar helst verið um að kenna húsnæðiskorti. Það má segja að félagið hafi verið að skipta um ham undanfarin misseri og nú þegar það er komið í […]

Skotheld þriggja stjörnu skemmtun í Svarfaðardal

Ég var nú fyrir síðustu helgi gestur á einþáttungahátíð Bandalags íslenskra leikfélaga á Húsabakka í Svarfaðardal og var á síðustu stundu beðin um að vera með umfjöllun um verkin ásamt leikhússtjóra þeirra Akureyinga, Magnúsi Geir Þórðarsyni. Það var afar skemmtilegt verk enda voru verkin að þessu sinni afar áhugaverð og vel unnin.

Er styttra betra?

Einþáttungahátíðin sem haldin var samhliða Aðalfundi BÍL að Húsabakka 20. – 21.maí, var sannkölluð minihátíð. Afar fá félög kusu að taka þátt að þessu sinni, því miður fyrir þá sem mættu og því miður fyrir þá sem eru hrifnir af þessu formi og telja það gera okkar starfi gott.

Upp úr skúffunum hans leikfélagsins

Leikfélag Húsavíkur tók til í skúffunum sínum á dögunum og fann þar alls konar efnivið sem það setti á svið í Samkomuhúsinu sínu. Þetta var hin besta skemmtun.

Ekki alltaf samasemmerki milli fitu og dugnaðar

Hugleikur frumsýndi á föstudaginn var, 5 tengda einþáttunga eftir Þórunni Guðmundsdóttur undir samheitinu Kleinur. Þættirnir sýna svipmyndir úr ævi almúgamannsins Sigga og er atburðarásin rakin í öfugri tímaröð. Eins og nafnið gefur til kynna leika kleinur nokkuð stórt hlutverk í lífi Sigga og eru jafnvel örlagavaldar á köflum.

Meistarinn og Margaríta

Ég fór að sjá Meistarann og Margarítu um helgina. Mér hefur þótt þessi saga spennandi sem sviðsverkefni síðan ég las hana (sem var reyndar fyrir einhverjum 10 árum síðan) og þótti gaman að sjá að menn væru að ráðast í það verkefni hér. Ýmislegt í sýningunni þótti mér gott, annað slæmt, eins og gengur.

Smartur Smúrts hjá Kópavogi

Ég skrapp á Smúrtsinn eftir Boris Vian hjá Leikfélagi Kópavogs um á föstudaginn og varð heldur betur kátur. Þessi sýning er skýrt dæmi um hvað umræðan um áhuga og atvinnumenn í leiklist getur verið hjákátleg.

Súr sirkus

Það var með nokkurri tilhlökkun að ég fór á frumsýningu hjá Hugleik um helgina. Það átti að frumsýna nýtt verk eftir þau fjórmenninga Ármann Guðmundsson, Hjördisi Hjartardóttur, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason. Þótt Það séu ein 10 ár síðan þau skemmtu mér með Fáfnismönnum hafa sum þeirra, með öðrum eða ein sér skrifað bráðskemmtileg verk […]

Queen bjargar rokkinu!

Í enn eitt skiptið skrapp ég á söngleik hjá framhaldsskólanemum. Ég fór fyrr í vetur á einn slíkan hjá Versló en í þetta skiptið hjá Fjölbraut í Breiðholti. Í þetta skiptið skemmti ég mér þó betur hjá breiðhyltingunum. Þeir voru með svo helvíti flotta músík. Queen rokkar!!

Góðverkin kalla!

Leikdeild Ungmennafélags Biskupstungna frumsýndi um helgina Gamanleikinn Góðverkin kalla eftir Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason í leikstjórn Gunnars B. Guðmundssonar. Ég fór, sá og skemmtl mér konunglega.

Rapp og rennilásar

Flest er sjötugum fært, segir máltækið ekki, það er hins vegar greinilega staðreynd. Ég fór á sýningu hjá Snúði og Snældu, leikfélagi eldri borgara síðasta föstudag. Þau eru með til sýningar verkið „Rapp og rennilásar“ eftir Gunnhildi Hrólfsdóttur í leikstjórn Bjarna Ingvarssonar.

Dauði og jarðarber

Félag flóna ferðast um landið með grínharmleikinn Dauði og jarðaber.  Leikritið er í leikstjórn Ágústu Skúladóttur (Klaufar og kóngsdætur barnasýning ársins 2004 -Gríman). Leikritið er besta skemmtun fyrir alla fjölskylduna og geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi.  Sýningin er um ein klukkustund. Næstu sýningar eru: Föstudag 19. ágúst: Nýheimum, Höfn í Hornafirði, kl. 18.00 […]

Leikstjóri óskast

Leikfélag Blönduóss vantar leikstjóra í haust, áætlaður frumsýningartími október – nóvember. Allar upplýsingar gefur formaður í síma 452-4485 eða 847-1852. Kristín.

Undir hamrinum í Mónakó

Hugleikur hefur nýverið snúið aftur úr frægðarför til Mónakó þar sem hann tók þátt í alþjóðlegri leiklistarhátíð IATA sem haldin er þar á 2 ára fresti. Hugleikur sýndi Undir hamrinum eftir Hildi Þórðardóttur í leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Ferðasöguna má lesa á vef Hugleiks hér og svo er Varríus með mikinn langhund um aðrar sýningar hátíðarinnar […]

Umf. Biskupstungna, leikdeild

Formaður Aðalheiður Helgadóttir adalheidur@blaskogaskoli.is 6169389 Gjaldkeri Sigurjón Sæland bjarkarbraut8@gmail.com 8467048 Ritari: Eyrún Ósk Eigilsdóttir eyrunosk84@gmail.com 8659289 Félagið starfar í Bláskógabyggð.  

Umf. Dagrenning, leikdeild

Formaður Sigurður Ragnarsson blaer@salfradi.is Gjaldkeri Jónmundur M. Guðmundsson jonmundur.magnus@gmail.com Síða: http://umfd.vefurinn.is/leikdeild/ Félagið starfar í Lundarreykjadal.

Umf. Efling, leikdeild

Formaður Freydís Anna Arngrímsdóttir freydisarn@simnet.is Ritari: Kristrún Kristjánsdóttir kristrunk@gmail.com Sími: 8969956 Gjaldkeri: Gunnhildur Hinriksdóttir ghinriks@gmail.com 6945244  

Umf. Reykdæla

Formaður: Ingi Þór Magnússon ingiasgardur@gmail.com  8489116 Varaformaður: Helga Jónsdóttir helgalitla@gmail.com 6150231 Gjaldkeri Þóra árnadóttir thora@menntaborg.is 6611700 Ritari Margrét Sæunn Pétursdóttir margretsp@hotmail.com 7756755 Meðstjórnandi 1 Kristleifur Jónsson kristleifurj@gmail.com 8994468

Umf. Skallagrímur, leikdeild

Formaður: Halldór Hólm Kristjánsson halldorholm@gmail.com 8215283 Gjaldkeri: Margrét Birna Kolbrúnardóttir margretbkol@gmail.com 6617411 Ritari: Arndís Aðalbjörg Finnbogadóttir 8651689 Félagið starfar í Borgarnesi.

Dan Kai Teatro sýnir

Leikhópnum Dan Kai Teatro hefur verið boðið að taka þátt í menningarnótt 21. ágúst næstkomandi í annað sinn en þau sýndu verkið Beauty hér á landi á seinasta ári. Af því tilefni hafa þau ákveðið að sýna einnig í húsnæði Leikfélags Hafnarfjarðar við lækinn, dagana á undan. Um er að ræða tvo stutt þætti, Fear, […]

Ávarp Tankred Dorst, leikskálds

Í tilefni af Alþjóða leikhúsdeginum 27. mars 2003 Ávarpið er samið að beiðni Alþjóða leikhúsmálastofnunarinnar  ITI.