Nemendaóperan sýnir Töfraflautuna

Í tilefni af því að 250 ár eru liðin frá  fæðingu Wolfgangs Amadeusar Mozart 27. jan. 2006. sýnir Nemendaópera Söngskólans í Reykjavík óperu hans Töfraflautuna í Iðnó í Reykjavík. Frumsýning er 27. jan. kl. 20

Æfingar hafnar á Hodja frá Pjort

Leikfélag Hafnarfjarðar vinnur nú að uppsetningu á barnaleikritinu Hodja fra Pjort eftir danska snillinginn Ole Lund Kirkegaard. Það eru Þórunn Gréta Sigurðardóttir og Ingvar Bjarnason sem vinna leikgerðina í samvinnu við leikstjórann Ármann Guðmundsson og leikhópinn. Um búninga og gerfi sér Dýrleif Jónsdóttir. Fjórtán leikarar taka þátt í sýningunni. Frumsýnt verður um miðjan mars í […]

Dúrra fær Þorrann

Á Þorrablóti Egilstaðabúa þann 20. janúar sl. veitti Soffía Lárusdóttir, forseti bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs, Kristrúnu „Dúrru“ Jónsdóttur Þorrann sem er farandgripur sem ár hvert er veittur einhverjum sem unnið hefur samfélaginu ómælt gagn. Þetta er í 12. skipti sem Þorrinn er veittur. Viðurkenninguna fékk Dúrra að sjálfsögðu fyrir störf sín með Leikfélagi Fljótsdalshéraðs en hún hefur […]

Aukasýning á Hinni endanlegu hamingju

Leikfélag Hafnarfjarðar gefur nú einn lokamöguleika á að sjá Hina endanlegu hamingju eftir Lárus Húnfjörð með því að hafa aukasýningu næstkomandi sunnudag, 29. janúar, kl. 20:00 í gamla Lækjarskóla í Hafnarfirði. Miðaverð er kr. 1000,- en miðapantanir eru í síma 848 0475.

Naglinn frumsýndur í Borgarleikhúsinu

Laugardaginn 21. janúar verður Naglinn, broslegur harmleikur um karlmennskuna, eftir Jón Gnarr verður frumsýndur á Litla sviði Borgarleikhússins. Leikstjóri er Valgeir Skagfjörð en leikendur eru Gunnar Sigurðsson og Jón Stefán Kristjánsson. Sýningin er samstarfsverkefni leikhópsins 540 gólf og Borgarleikhússins.

Æfingar hafnar á Þuríði og Kambsráninu

Leikfélag Selfoss hefur hafið æfingar á sögulegu leikriti, „Þuríður og Kambsránið“, eftir Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson. Leikritið segir frá hinu fræga Kambsráni í Flóa árið 1827 og hvernig Þuríður formaður Einarsdóttir átti sinn þátt í rannsókn málsins. Og eins og margir vita þá var hún Þuríður þessi mikil baráttukona í hörðum karlaheimi. Stefnt er á að […]

Æfingar hafnar á Maríubjöllunni

Hjá Leikfélagi Akureyrar eru æfingar hafnar á Maríubjöllunni eftir Vassily Sigarev. Hér er um að ræða kraftmikið og átakanlegt nútímaverk sem vakið hefur mikla athygli þar sem það hefur verið sýnt. Leiksýningin verður fyrsta uppsetningin í nýju leikrými Leikfélags Akureyrar, sem enn hefur ekki hlotið nafn. Frumsýning verður 17. febrúar.  Maríubjallan gerist á einu kvöldi. […]

LA stendur fyrir leiklistarnámskeiðum

Komdu að leika! – Þriggja vikna leiklistarnámskeið LA stendur fyrir röð leiklistarnámskeiða í lok janúar og byrjun febrúar. Farið verður í undirstöðuatriði leiklistar en námskeiðið er byggt upp á leikjum, æfingum,spuna og trúðatækni.  Námskeiðin miðast að að virkja og efla ímyndunaraflið,  læra að nýta sér leynda hæfileika , finna ný sjónarhorn á daglegu amstri og […]

Mindcamp í Hafnarfjarðarleikhúsinu

Leikfélagið Sokkabandið frumsýndi þann 15. janúar sl. leikritið Mindcamp í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Það eru þeir Egill Heiðar Anton Pálsson og Jón Atli Jónasson sem leiða saman hesta sína í annað skipti í Hafnarfjarðarleikhúsinu með verkinu Mindcamp en Egill leikstýrði verki Jóns Atla, Rambo 7 sem sýnt var á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins sl. vor. Þessi sýning er unnin […]

Námskeið um Öskubusku og Rossini

Öskubuska og Rossini eru meginviðfangsefni næsta námskeiðs sem Vinafélag Íslensku óperunnar og Endurmenntun Háskóla Íslands standa fyrir í sameiningu og hefst 7. febrúar nk. Skráning á námskeiðið er hafin og er skráningarfrestur til og með 20. janúar. Þrjú fyrstu kvöld námskeiðsins verður fjallað um Rossini og Öskubusku og einstakir hlutar óperunnar teknir til nánari skoðunar, […]

Glæpur gegn diskóinu frumsýnt

Steypibaðsfélagið Stútur í samstarfi við Vesturport og Borgarleikhúsið frumsýnir fimmtudaginn 12. janúar leikritið Glæpur gegn diskóinu á Nýja sviði Borgarleikhússins, að leikskáldinu viðstöddu. Höfundur verksins, Gary Owen, þykir eitt af áhugaverðustu og bestu leikskáldum Breta í dag. Leikstjóri er Agnar Jón Egilsson.

Leikfélag Reykjavíkur frumsýnir Carmen

Laugardaginn 14. janúar verður söngleikurinn Carmen frumsýndur á Stóra sviði Borgarleikhússins. Söngleikurinn Carmen er samstarfsverkefni Leikfélags Reykjavíkur og Íslenska dansflokksins, þar sem óperunni eftir Bizet er snúið í söngleik um ástir, afbrýði og hrikaleg örlög, sem ekki verða umflúin.

Æfingar hefjast hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar

Fyrsti samlestur á nýju barnaleikriti sem Leikfélag Hafnarfjarðar hyggst setja á fjalirnar í mars nk. verður haldinn í húsnæði Leikfélags Hafnarfjarðar, í gamla Lækjarskóla við Skólabraut í Hafnarfirði þriðjudaginn 10. janúar kl. 20:00. Leikstjóri verksins er Ármann Guðmundsson. Mæting er öllum opinn og vill leikfélagið hvetja alla þá sem áhuga hafa á leiklist, tónlist, búningagerð, […]

Íslenska Óperan setur upp Öskubusku

Æfingar eru hafnar á Öskubusku eftir Rossini, sem frumsýnd verður í Íslensku óperunni 5. febrúar nk. Með aðalhlutverkin fara þau Sesselja Kristjánsdóttir, Garðar Thór Cortes, Bergþór Pálsson, Davíð Ólafsson, Hlín Pétursdóttir, Anna Margrét Óskarsdóttir og Einar Th. Guðmundsson. Hljómsveitarstjóri er Kurt Kopecky, leikstjóri er Paul Suter, sviðs- og búningahönnuður er Season Chiu og lýsingu hannar […]

Leiklistarspjallið opnað

Ákveðið hefur verið að opna Leiklistarspjallið að nýju óskráðum notendum. Þegar skipt var um vefumsjónarkerfi síðastliðið haust var ákveðið að krefjast skráningar notenda. Þessi breyting hefur því miður gert það að verkum að þátttaka í spjallinu hefur stórminnkað og því hefur eins og  áður er sagt, verið ákveðið að hafa það öllum opið. Eftir sem […]

Tíu ára vampýruafmæli

Janúarverkefni Hugleiks í Þjóðleikhúskjallaranum er gamanóperan Bíbí og blakan eftir þá Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason. Verkið segir frá hinni ungu og fögru Bíbí sem bíður ein eftir að ástin sæki hana heim, en mál hennar vandast þegar tvo gesti ber að garði sömu nóttina: töfrandi en dularfullan rúmenskan nýbúa og ábúðarmikinn vampýruveiðara […]

Sunnudagskvöld með Svövu

Í tengslum við sýningu Þjóðleikhússins, Eldhús eftir máli – Hversdagslegar hryllingssögur eftir Völu Þórsdóttur sem byggir á fimm smásögum Svövu Jakobsdóttur, verða fimm Sunnudagskvöld með Svövu þar sem boðið verður upp á fyrirlestur, kvöldverð, leiksýningu og umræður. Þessi kvöld eru í samvinnu við Rannsóknarstofu Háskóla Íslands í kynjafræðum.

Æfingar hefjast á Selfossi

Leikfélag Selfoss hefur nýja árið með trukki og dýfu sunnudaginn 8. janúar, en þá verður fyrsti samlestur á vorverkefni félagsins. Verkefnið er frumsamið sögulegt leikverk byggt á heimildum um Þuríði formann og Kambsránið, ritað af Sigurgeiri Hilmari Friðþjófssyni. Leikstjóri er Jón Stefán Kristjánsson. Samlesturinn hefst klukkan 14:00 og eru allir áhugasamir velkomnir.

Ljósanámskeið hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar

Helgina 7.-8. janúar næstkomandi heldur Leikfélag Hafnarfjarðar námskeið í ljósastjórnun í leikhúsi.  Kennari er Egill Ingibergsson sem er gamalreyndur í faginu og hefur hannað lýsingar í fjölmörgum leiksýningum gegnum árin. Kennd verða undirstöðuatriði lýsingar fyrir leikhús auk þess sem farið verður ítarlega yfir notkun og notkunarmöguleika ETC Express ljósaborða við ljósastjórnun. Námskeiðið er tveir dagar, […]

Samkeppni ÍD og LR um dansleikhús

Vilt þú hafa áhrif á þróun dansleikhúss á Íslandi? Leikfélag Reykjavíkur og Íslenski dansflokkurinn óska eftir hugmyndum að dansleikverkum fyrir blandaðan hóp leikara og dansara. Listafólk er hvatt til að taka áskoruninni!

Aukasýning á Jólaævintýri Hugleiks

Þótt seint verði sagt um áhugaleikfélög landsins að þau séu of vel haldin fjárhagslega, er víst að þau „gleyma ekki sínum minnsta bróður“. Þannig hefur Hugleikur ákveðið að bæta við einni aukasýningu á Jólaævintýri sínu þar sem fólki sem að öllu jöfnu á þess ekki kost að sækja leiksýningar er boðið. Öðrum gefst þó tækifæri […]

Leiklistarnámskeið á vegum Andagiftar ehf.

Börn og unglingar hafa gaman af að stíga á svið og er það reynsla okkar eftir að hafa haft hátt í 300 börn á námskeiði fyrir rúmu ári síðan. Við höfum því ákveðið að bæta við námskeiði en alls sjá þrír kennarar ásamt gestakennara sjá um kennsluna á þessu námskeiði. Markmið námskeiðsins er að kynnast starfsemi leikhúsa […]

Halaleikhópurinn setur upp Pókók

Heildarhugmynd leikrits getur breyst ef einhver af persónunum er látin fá einhverja fötlun. Hvað ef Hamlet væri í hjólastól? Hvað ef óvinurinn í Gullna Hliðinu væri dvergvaxinn, verður hann þá jafn ógnvænlegur? Hvað ef Makki hnífur væri á hækjum? Hvað ef Fílamaðurinn væri ófatlaður, en allir aðrir í leikritinu ættu við einhverja fötlun að stríða? […]

Belgíska Kongó tekið upp

Belgíska Kongó eftir Braga Ólafsson gekk fyrir  fullu húsi í Borgarleikhúsinu 2 leikár í röð. Vegna fjölda áskoranna hefur nú verið ákveðið að taka verkið aftur upp e. áramót. Fyrsta sýning verður 7. janúar.  Eggert Þorleifsson hlaut Grímuverðlaunin fyrir bestan leik í aðalhlutverki karla vorið 2004 fyrir túlkun sína á hinni fjörgömlu Rósalind. Bankastarfsmaðurinn Rósar […]

Norrænu leikskáldaverðlaunin 2006

Leiklistarsamband Íslands-ITI hefur tilnefnt Jón Atla Jónasson, leikskáld, til Norrænu leikskáldaverðlaunanna 2006, fyrir leikverkið BRIM sem sýnt var af Vesturporti. Í dómnefnd fyrir hönd Leiklistarsambandsins sátu þau Sveinbjörn I. Baldvinsson leikskáld, Steinunn Knútsdóttir leikstjóri og Silja Aðalsteinsdóttir bókmenntafræðingur.  

Eldhús eftir máli

Eldhús eftir máli – Hversdaglegar hryllingssögur eftir Völu Þórsdóttur sem byggir á nokkrum smásögum Svövu Jakobsdóttur verður frumsýnt á Smíðaverkstæðinu 29. desember nk. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir.

Vesturport

Leikhópurinn Vesturport hefur sett upp margar þekktar leiksýningar hér heima sem og erlendis. Netfang gisli@vesturport.com Vefsíða www.vesturport.is

Túskildingsóperan frumsýnd annan í jólum

Jólaverkefni Þjóðleikhússins að þessu sinni er Túskildingsóperan eftir Bertolt Brecht og Kurt Weill. Leikstjóri er Stefán Jónsson. Þegar sómakærir Íslendingar eru rétt búnir að kyngja jólaöndinni sprettur fram hinn forboðni ávöxtur leikhúsjöfranna Bertolts Brecht og Kurts Weill. Þetta óperuútfrymi gerði allt vitlaust þegar það var frumsýnt í Berlín 1928.

„Gott að minnast þess hve lánsöm við erum“

Fulltrúi Leiklistarvefsins heldur áfram umfjöllun um áhugaleikhópinn Fire and Ice Theatre á Keflavíkurflugvelli: „Þetta verk hentar einstaklega vel á þessum tíma nú þegar jólin nálgast. Það gerir okkur öllum gott að minnast þess hversu lánsöm við í raun erum og þetta verk hjálpar svo sannarlega til við það. Það minnir okkur á hversu lánsöm við […]

Gaman að sjá allt ganga upp

Meðlimir Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli hafa sl. aldarfjórðung rekið leikhópinn Fire and Ice Theatre. Fulltrúi Leiklistarvefsins heimsótti leikhópinn og fékk að fylgjast með upptökum á tveimur útvarpsleikritum tengdum jólunum sem útvarpað verður uppi á velli síðar í vikunni.

Námskeið í tengslum við Pétur Gaut

Í febrúar og mars stendur Þjóðleikhúsið fyrir námskeiði fyrir almenning í tengslum við sýningu leikhússins á Pétri Gaut eftir Henrik Ibsen. Pétur Gautur verður opnunarsýning Kassans, sem er nýtt leiksvið í Þjóðleikhúsinu. Á námskeiðinu verður lögð áhersla á að opna þátttakendum heim leikhússins og gefa þeim innsýn inn í aðferðir þess.

Öskubuska í Óperunni

Óperan Öskubuska (La Cenerentola) eftir Rossini verður frumsýnd í Íslensku óperunni 5. febrúar 2006. Texti óperunnar er eftir Jacopo Ferretti og var Öskubuska frumsýnd í Róm 25. janúar 1817. Öskubuska er reglulega á fjölum helstu óperuhúsa víðsvegar um heiminn, en þetta er í fyrsta skipti sem hún er sett upp hér á landi.

Brúðkaupið heldur áfram

Seinni hluti leikárs Leikfélags Akureyrar hefur verið stokkaður upp og sýningartími Fullkomins brúðkaups framlengdur vegna fjölda áskorana. Frumsýningu Maríubjöllunnar verður flýtt og nýtt leikrými verður tekið í notkun en frumsýningu Litlu hryllingsbúðarinnar verður seinkað.  

Síðustu sýningar fyrir jólin

Leikhúsin gera hlé á sýningum síðustu dagana fyrir jól en leikhúsunnendur geta ennþá fundið eitt og annað áhugavert á fjölunum. Hugleikur sýnir Jólaævintýrið í Tjarnarbíói á laugardag og sunnudag og Leikfélag Hafnarfjarðar verður með aukasýningu á Hinni endanlegu hamingju í gamla Lækjarskóla á föstudginn.

Sex í sveit, aukasýning

Vegna mikillar aðsóknar verður aukasýning hjá Leikfélagi Fljótsdalshéraðs á Sex í sveit á Iðavöllum. Sýningin verður á föstudagskvöld klukkan 20 og er þetta allra síðasta sýning!   Sex í sveit hefur fengið frábærar móttökur og uppselt hefur verið á flestar sýningar á Iðavöllum. Þegar hafa á níunda hundrað manns séð verkið sem er bráðfyndinn farsi […]

Halldór í Hollywood

Sýningum er að ljúka á Halldóri í Hollywood. Allra síðasta sýning verður á laugardagskvöldið 10. desember. Það er Atli Rafn Sigurðarson sem fer með hlutverk Nóbelskáldsins, um tónlistarstjórn sér Árni Heiðar Karlsson en leikstjóri er Ágústa Skúladóttir.