VÍS og VISA í samstarf við Borgarleikhúsið
VÍS og Vísa Ísland hafa gengið til samstarfs við Borgarleikhúsið um uppsetningu á farsanum Viltu finna milljón og var samstarfssamningur undirritaður á Nýja sviði Borgarleikhússins að viðstöddum listamönnum sýningarinnar, þann 11.maí síðastliðinn.
Áhorfendaverðlaun Grímunnar 2006
Uppskeruhátíð sviðslista á Íslandi fyrir leikárið 2005-6, Gríman, verður haldin í fjórða sinn í Borgarleikhúsinu föstudaginn 16. júní 2006. Áhorfendaverðlaun Grímunnar gefa leikhússgestum kost á að velja bestu sýningu ársins að þeirra mati. Í fyrra var söngleikurinn Óliver valinn besta sýning ársins af áhorfendum.
Jaðarleikhúsið sýnir Agnes- high quality
Jaðarleikhúsið í samvinnu við Dan Kai Teatro sýnir Agnes- high quality í Jaðarleikhúsinu í Hafnarfirði föstudaginn 2. júní næstkomandi. Leikarar og leikstjórar eru Gemmu Rowan og Sakuru Tanaka. Sýningin er í tengslum við Bjarta daga í Hafnarfirði.
Einleikjahátíð á Ísafirði
Kómedíuleikhúsið stendur árlega fyrir leiklistarhátíðinni ACT ALONE á Ísafirði yfir sumartímann. ACT ALONE er helguð einleikjum og er meðal fárra slíkra sem helga sig þessu sérstaka leikhúsformi. Það er ekki eina sérkenni hátíðarinnar því frá upphafi hefur verið ókeypis á ACT ALONE og gefst því fólki frábært tækifæri á að komast frítt í leikhús og […]
Bananabikarinn
Keppni í leikhússporti á milli Leikfélags Reykjavíkur og Leikfélags Akureyar fer fram fimmtudaginn 25.maí (Uppstigningardag). Keppnin hefst klukkan 22:30 á Litla sviðinu.
Skagaleikflokkurinn í Mosfellsbæ
Skagaleikflokkurinn sýnir nýtt verk „Hlutskipti“ eftir Kristján Kristjánsson á kosningadaginn þann 27. maí í Bæjarleikhúsi þeirra Mosfellinga. Sýningin verður kl. 19.00.
Athyglisverðasta áhugasýningin
Dómnefnd Þjóðleikhússins hefur nú valið athyglisverðustu áhugaleiksýningu leikársins 2005-2006 og varð sýning Leikfélags Selfoss, Þuríður og Kambsránið, fyrir valinu. Þuríður og Kambsránið verður sýnd í Kassanum föstudagskvöldið 2. júní kl. 20:00.
Leikfélag Ölfuss

Formaður: Erla Dan Jónsdóttir erladanj@gmail.com 8449590 Gjaldkeri: Magnþóra Kristjánsdóttir magnthora@gmail.com 6610501 Ritari: Helena Helgadóttir Meðstjórnandi: Óttar Parwes Sharifi Ingólfsson Meðstjórnandi: Hallgrímur Pétur Möller Gunnlaugsson
Japanskar gestasýningar í Þjóðleikhúsinu
Í ár eru liðin 50 ár frá því stjórnmálasamband var tekið upp á milli Japans og Íslands. Af því tilefni verða fjórar japanskar gestasýningar í Þjóðleikhúsinu, tvær í vor og tvær í haust. Fyrsta sýningin verður danssýningin Genji í Kassanum 7. og 8. júní nk. en 25. júní er röðin komin að sýningu ACO Okinawa […]
Leiklistarnámskeið á Akureyri
Undanfarin misseri hefur Leikfélag Akureyrar staðið fyrir námskeiðum fyrir börn og unglinga. Námskeiðin hafa verið afar vinsæl og uppselt á öll námskeið. Á leiklistarnámskeiðum læra nemendur að koma fram, öðlast sjálfstraust, læra undirstöðuatriði í sviðstækni, efla sköpun og einbeitingu og vinna skemmtileg verkefni í samvinnu við aðra nemendur. Síðast líðið sumar sóttu 80 nemendur námskeið […]
Síðustu sýningar á ALF í Kópavogi

Leikfélag Kópavogs auglýsir síðustu sýningar á ALF eða Andspyrnuhreyfingu ljóta fólksins. Leikstjóri er Oddur Bjarni Þorkelsson en hann er jafnframt höfundur verksins ásamt Guðjóni Þorsteini Pálmarssyni. Sýnt er í Hjáleigunni í Kópavogi.
Frumsýning á Viltu finna milljón
Á morgun föstudag 19.maí frumsýnir Leikfélag Reykjavíkur á Nýja sviði Borgarleikhússins, gamanfarsann Viltu finna milljón? eftir Ray Cooney. Landslið grínara fer á kostum í þessum frábæra gamanleik í snilldarþýðingu Gísla Rúnars Jónssonar.
Fréttir frá aðalfundi
Breytingar á stjórn og lögum Bandalagsins Á aðalfundi Bandalags íslenskra leikfélaga sem haldin var í Félagsheimili Seltjarnarness dagana 6.-7. maí sl. urðu þær breytingar á stjórn Bandalagsins að Ingólfur Þórsson (Freyvangsleikhúsinu) og Þorgeir Tryggvason (Hugleik) komu inn í aðalstjórn í stað Harðar Sigurðarsonar (Leikfélagi Kópavogs) og Júlíusar Júlíussonar (Leikfélagi Dalvíkur) sem hvorugur gáfu kost á […]
Hugleikur til Rússlands
Þriðjudaginn 16. maí heldur leikfélagið Hugleikur til Rússlands og tekur þátt í tveimur leiklistarhátíðum þar í landi í boði rússneska áhugaleikhússambandsins með sýninguna Undir hamrinum eftir Hildi Þórðardóttur í leikstjórn Ágústu Skúladóttur.
Umfjöllun um sýningar Margs smás
Þann 5. maí sl var stuttverkahátíðin Margt smátt haldin með pompi og prakt í Borgarleikhúsinu. Eins og venja er hjá Bandalagiu voru valinkunnir leikhúsmenn fengnir til þess að fjalla um sýningar hátíðarinnar og að þessu sinni voru það Þorvaldur Þorsteinsson, leikskáld m.fl. og Þorsteinn Backmann, leikari og fyrrverandi leikhústjóri á Akureyri. Hér má sjá hvað […]
Norðurlandahraðlestin-sviðsettir leiklestrar
Þriðjudaginn 16/5 og miðvikudaginn 17/5 verður boðið uppá sviðsetta leiklestra á Litla sviði Borgarleikússins. Verkefnið er unnið í samstarfi við Listaháskóla Íslands, Listahátíð og Leiklistarsamband Íslands. Leiklestrunum er ætlað að kynna þau verk sem tilnefnd eru til norrænu leiklistarverðlaunanna. Um leiklesturinn sjá leikarar Borgarleikhússins og útskriftarhópur leiklistardeildar Listaháskóla Íslands.
Fyrir luktum dyrum
Heimspeki- og menningarfélag Menntaskólans á Akureyri í samstarfi við Leikklúbbinn Sögu standa fyrir uppsetningu á leikritinu Fyrir luktum dyrum eftir Jean-Paul Sartre. Verkið er sett upp eftir þýðingu Ásgeirs Berg Matthíassonar, nema á fjórða ári við Menntaskólann. Einhverjir kunna að þekkja hann sem fyrirliða Gettu Betur liðs MA. Skúli Gautason leikari og leikstjóri með meiru […]
Lokasýningar á Pókók
Að undanförnu hefur Halaleikhópurinn verið að sýna Pókók eftir Jökul Jakobsson. Aðsókn hefur verið góð og sýningin fengið góða dóma. Nú er komið að lokasýningum og verða þær laugardaginn 13. maí og sunnudaginn 14. maí kl. 20.00.
Stefnumót við Pinter
Þjóðleikhúsið og Listahátíð í Reykjavík standa fyrir málþingi um Harold Pinter sunnudaginn 14. maí kl. 14 á Stóra sviði Þjóðleikhússins í tengslum við frumsýningu Þjóðleikhússins á leikriti Pinters, Fagnaði. Michael Billington, sem er einn þekktasti leiklistargagnrýnandi Breta og höfundur ævisögu Pinters, flytur framsöguerindi.
Leikklúbburinn Saga frumsýnir Núna
Miðvikudaginn 10. maí frumsýnir Leikklúbburinn Saga nýtt verk sem hefur hlotið nafnið Núna. Verkið er skrifað af hópnum í samvinnu við leikstjórann Guðjón Þorstein Pálmarsson og byggir á sögum úr lífi þeirra sjálfra. Sýnt er í Útihúsinu, Hafnarstræti 73.
Allt í blóði ALF
Leikfélag Kópavogs frumsýndi á dögunum gamansplatterinn ALF eða Andspyrnuhreyfingu ljóta fólksins í Hjáleigunni í Kópavogi. Verkið er eftir Guðjón Þorstein Pálmarsson og Odd Bjarna Þorkelsson sem jafnframt er leikstjóri. Lárus Vilhjálmsson brá sér í Kópavoginn.
Ekki drepa annarra manna hesta – Litli Kláus og Stóri Kláus
Leiklistarfélag Seltjarnarness frumsýndi leikritið Litli Kláus og Stóri Kláus í Félagsheimili Seltjarnarness laugardaginn 29. apríl í leikstjórn Bjarna Ingvarssonar. Leikritið er eftir Lisu Tetzner og byggir á sögu H.C. Andersen. Sesselja Traustadóttir brá sér á sýninguna.
Þjóðleikhúsið og Icelandair gera samstarfssamning
Þjóðleikhúsið og Icelandair undirrituðu föstudaginn 5. maí samstarfssamning. Markmið hans er að auðvelda Þjóðleikhúsinu að fara til útlanda með íslenska leiklist. Leikför með Eldhús eftir máli – Hversdagslegar hryllingssögur til Konunglega leikhússins í Kaupmannahöfn markar upphaf samstarfsins. Ráðgerðar eru tvær sýningar dagana 30. og 31. maí.
Hugleikur brestur í söng í Þjóðleikhúskjallaranum
Hugleikur rifjar upp tónlistina úr leikritum sínum í síðustu Þetta mánaðarlega-dagskrá sinni í Þjóðleikhúskjallaranum þetta vorið sem verður þriðjudags- og fimmtudagskvöld, 9. og 11. maí.
Þuríður og Kambsránið í Þjóðleikhúsið
Dómnefnd Þjóðleikhússins tilkynnti val á athyglisverðustu áhugaleiksýningu leikársins 2005-2006 á aðalfundi BÍL sem haldinn var á Seltjarnarnesi um helgina. Sýning Leikfélags Selfoss, Þuríður og Kambsránið, varð fyrir valinu og verður sýnd á Stóra sviði Þjóðleikhússins 11. júní nk. Frekari upplýsingar um sýninguna er að finna á vef Þjóðleikhússins.
Leikfélag Hólmavíkur sýnir í Mosfellsbæ
Sunnudaginn 7. maí sýnir Leikfélag Hólmavíkur uppsetningu sína á Fiskum á þurru landi eftir Árna Ibsen í leikstjórn Kolbrúnar Ernu Pétursdóttur í Bæjarleikhúsinu í Mosfellsbæ. Sýningin hefst hún klukkan 19:00. Miðapantanir og uppl. eru í síma 865-3838 eftir kl. 16:00 sunnudaginn 7. maí.
Enn af Mörgu smáu í Borgarleikhúsinu
Nú er verið að leggja lokahönd á undirbúning Margt smátt, stuttverkahátíð Bandalagins í Borgarleikhúsinu. Hér er smá uppfærsla á upplýsingum um hátíðina…
Nú skyldi ég hlæja, væri ég ekki dauður! frumsýnt
Fimmtudagskvöldið 4. maí verður ný barnasýning, Nú skyldi ég hlæja, væri ég ekki dauður!, frumsýnd á Litla sviði Þjóðleikhússins að Lindargötu 7. Sýningin er samstarfsverkefni Þjóðleikhússins og Nemendaleikhúss LHÍ. Verkið er unnið í samvinnu Völu Þórsdóttur, leikstjórans Ágústu Skúladóttur og leikhóps.
Stuttverkahátíðin Margt smátt í Borgarleikhúsinu
Föstudaginn 5. maí kl. 19:00 verður stuttverkahátíð Bandalags íslenskra leikfélaga, Margt smátt, haldin á Litla sviði Borgaleikhússins. Þar sýna átta aðildarfélög Bandalagsins 13 stuttverk sem vel flest eru samin af leikskáldum innan raða þess.
Aukasýningar á Hungri
Aukasýningar verða á Hungri eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur Bachmann sem leikhópurinn Fimbulvetur sýnir í samstarfi við Borgarleikhúsið. Tvær stúlkur með anorexíu ákveða að fara í hættulegan leik, og offitusjúklingur með brotna sjálfsmynd finnur sér loks maka sem dýrkar hvern einasta blett á henni.Hungur er sálfræðitryllir um stjórnun, ást, kynlíf, fegurð og leit að fullkomnun.
Áhugaleiksýning ársins
Nú nálgast óðum eitt dramatískasta augnablik leikársins hjá áhugaleikfélögunum. Um næstu helgi verður tilkynnt um val Þjóðleikhússins á áhugaleiksýningu ársins. Að venju verður þetta gert á hátíðarkvöldverði Bandalagsþings, sem að þessu sinni verður í Félagsheimili Seltjarnarness laugardagskvöldið 6. maí nk.
Fjórar frumsýningar á einum degi í Borgarleikhúsinu
Sunnudaginn 30. apríl, verða frumsýndar hvorki fleiri né færri en fjórar sýningar í Borgarleikhúsinu. Þessar sýningar hafa reyndar allar verið sýndar við miklar vinsældir á öðrum vettvangi en þetta eru Fullkomið brúðkaup, Mike Attack, Tenórinn og Typpatal. Sýningar þessar eru hluti af Hláturhátíðinni sem standa mun yfir allan maí og mun Borgarleikhúsið verða iðandi af […]
Aðalfundur 6. og 7. maí 2006
Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga verður haldinn í Félagsheimili Seltjarnarness 6. og 7. maí 2006.
Með vífið í lúkunum á Sauðárkróki
Sunnudaginn 30. apríl frumsýnir Leikfélag Sauðárkróks farsann Með vífið í lúkunum eftir Ray Cooney. Leikstjóri er Þröstur Guðbjartsson en hann hefur áður leikstýrt þremur leikritum fyrir Leikfélag Sauðárkróks, Bláa hnettinum, Ertu hálf-dán? og Síldin kemur og síldin fer.
Síðustu sýningar á Glæpur gegn diskóinu
Aðeins eru tvær sýningar eftir Glæpur gegn diskóinu eftir Gary Owen sem Steypibaðsfélagið Stútur hefur að undanförnu sýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins. Sú fyrri er föstudaginn 28. apríl en sú seinni föstudaginn 5. maí.
Norrænu leikskáldaverðlaunin 2006
Norræna leikhúsráðið (Nordisk Teaterunion) ákvað á fundi sínum í Kaupmannahöfn þann 23. apríl að Kari Hotakainen frá Finnlandi hlyti norrænu leikskáldaverðlaunin fyrir leikritið Punahukka (Border Crossings/Arvelige Faktorer).
Litli Kláus og Stóri Kláus á Seltjarnarnesi
Leiklistarfélag Seltjarnarness frumsýnir leikritið Litli Kláus og Stóri Kláus í Félagsheimili Seltjarnarness laugardaginn 29. apríl kl. 14:00. Þetta er fjörugt fjölskydustykki fyrir unga jafnt sem aldna, eftir Lisu Tetzner byggt á sögu H.C.Andersen. Leikstjóri er Bjarni Ingvarsson.
Systur sýna dramatísk tilþrif – Systur
Hugleikur frumsýndi nýskeð í Möguleikhúsinu leikritið Systur eftir Þórunni Guðmundsdóttur í leikstjórn Þorgeirs Tryggvasonar. Lárus Vilhjálmsson brá sér á sýningu og greinir frá upplifun sinni.
Leikskáldið Edward Bond kemur til Íslands
Breska leikskáldið Edward Bond er gestur Félags leikskálda og handritshöfunda, Hafnarfjarðarleikhússins og Breska sendiráðsins á fyrirlestri og sýnikennslu (Masterclass) í Hafnarfjarðarleikhúsinu laugardaginn 29. apríl kl. 10-16. Allir áhugamenn um leikhús og leikritun eru velkomnir á þennan einstaka viðburð. Þar mun Edward Bond fjalla um leikritun sína og vinna með leikurum í atriðum úr tveimur leikrita […]
Síðasta sýning á Rítu í Iðnó
Laugardaginn 29. apríl verður síðasta sýning leikhópsins Kláusar á Rítu eða „Educating Rita“ eftir Willy Russell í Iðnó sem sýnt hefur verið undanfarin rúman mánuð við ágætar undirtektir áhorfenda. Með hlutverk Rítu fer Margrét Sverrisdóttir og prófessor Frank leikur Valgeir Skagfjörð. Um leikstjórn og þýðingu verksins sér Oddur Bjarni Þorkelsson. Um hönnun og leikmynd verksins […]