100 ár í Samkomuhúsinu á Akureyri
Þann 20. janúar verður leikritið Svartur köttur eftir Martin McDonagh frumsýnt hjá LA. Leikritið er margverðlaunað og hefur víða vakið athygli. Sömu sögu er að segja um mörg fyrri verka McDonaghs, s.s. Koddamanninn, Halta Billa frá Miðey og Fegurðardrottninguna frá Línakri sem öll hafa verið sýnd hérlendis. Um sérstaka hátíðarfrumsýningu er að ræða í tilefni […]
Vinnusmiðja FLÍSS og Þjóðleikhússins
Næsta vinnusmiðja FLÍSS Félags um leiklist í skólastarfi og Fræðsludeildar Þjóðleikhússins verður á mánudaginn þann 22. janúar. Kennari að þessu sinni verður Rúnar Guðbrandsson leiklistarkennari. Rúnar mun fjalla um aðferðir sínar í leiklistarkennslu og þjálfun leikarans. Hann mun einnig fjalla um leiklistarkennslu á hinum ýmsu skólastigum og tengingu þar á milli. Eins […]
Viltu lifa að eilífu?
Föstudaginn 19. janúar frumsýnir Þjóðleikhúsið Sælueyjuna eftir Jacob Hirdwall í leikgerð Maríu Ellingsen og Grétu Maríu Bergsdóttur í Kassanum. Hér er á ferðinni heimsfrumsýning á glænýju verki sem gerist á Íslandi og fjallar um siðferðileg álitamál í okkar samtíma. Kaldan haustmorgun finnst maður uppi á hálendinu nær dauða en lífi. Hann krefst þess að ná […]
Hnerrað á Selfossi
Leikfélag Selfoss frumsýnir um helgina leikverkið Hnerrinn. Verkið samanstendur af einþáttungum og smásögum eftir Anton Tsjekoff en leikgerðina skrifaði Michael Frayn. Frumsýning verður föstudaginn 19. janúar og verður það frumflutningur verksins hér á landi. Leikstjóri er Hörður Sigurðarson en hann þýddi verkið einnig á íslensku.
Fleiri sýningar á Ráðskonu Bakkabræðra
Í desember frumsýndi Leikfélag Hafnarfjarðar gamanleikinn Ráðskona Bakkabræðra eftir Oskar Braaten. Sýningum verður nú haldið áfram vegna fjölda áskorana. Leikstjóri er Lárus Vilhjálmsson. Verkið var sett upp í tilefni af 70 ára afmæli félagsins, en var áður á fjölunum hjá félaginu árin 1945 við fádæma vinsældir.
Opinn samlestur hjá Hugleik
Nú er að fara af stað uppsetning á söngleiknum Epli og Eikur hjá leikfélaginu Hugleik. Verkið er nýtt af nálinni en höfundur er Þórunn Guðmundsdóttir en verk hennar, Kolrassa, sló í gegn hjá félaginu árið 2002. Leikstjóri verður Oddur Bjarni Þorkelsson. Þetta er í fyrsta sinn sem hann leikstýrir hjá Hugleik, en hann hefur verið […]
Power of Love – Hið fullkomna deit
Þann 14. janúar frumsýnir leikhópurinn Brilljantín einleik eftir Halldóru Malin Pétursdóttur á efri hæð Austurbæjar í Silfurtunglinu. Verkið sem er samstarfsverkefni ÍsMedía í Austurbæ og leikhópsins Brilljantín verður aðeins sýnt í viku.
Leikstjórnarnám í Litháen
Í háskólanum í Klaipeida í Litháen er boðið upp á styttri námsbraut í leikstjórn. Námið tekur tvær annir og er miðað við fjölþjóðlegan nemendahóp. Hámarksfjöldi nemenda er 15 manns en einhver reynsla af leikstjórn er inntökuskilyrði. Fari fjöldi umsækjenda yfir 15 manns verður valið úr þeim eftir reynslu í leikhúsvinnu. Skólagjöld fyrir veturinn eru tæplega […]
Þjóðleikhúsið á nýju ári
Starfsemi Þjóðleikhússins er að komast á fullt skrið á nýju ári. Á stóra sviðinu eru þrjár sýningar í gangi. Bakkynjur, grískur harmleikur eftir Evrípídes var jólafrumsýning hússins og hefur hún vakið verðskuldaða athygli en verkið er nú sýnt í fyrsta sinn á Íslandi. Ný þýðing Kristjáns Árnasonar, leikstjórn og sviðsetning grískra leikhússnillinga, tónlist Atla Ingólfssonar […]
Leikfélag Kópavogs 50 ára
Þann 5. janúar næstkomandi fagnar Leikfélag Kópavogs því að 50 ár eru liðin frá stofnun þess. Af því tilefni verður efnt til afmælisfagnaðar í félagsheimili Kópavogs, Fannborg 2. Allir félagar í Leikfélagi Kópavogs, fyrrverandi og núverandi, eru velkomnir ásamt öðrum velunnurum félagsins. Ýmislegt skemmtilegt verður á boðstólum fyrir afmælisgesti, margir félagar munu stíga á svið […]
Klikkað verk um klikkun
Jólasýning Borgarleikhússins er verkið Ófagra veröld eftir Anthony Neilson. Það verður frumsýnt 29.desember. Ófagra veröld er ævintýri sem hefur sterka tilvísun í Lísu í Undralandi eftir Lewis Carol. Líkt og í sögu Lewis Carol er verkið lýsing á samfélaginu, gildum þess, þversögnum og áskorunum, um leið og það er þroskasaga Lísu. Við ferðumst með Lísu […]
Leiklistarnámskeið og -hátíðir
Undanfarin ár hefur aðgengi að upplýsingum um alþjóðleg leikhúsnámskeið og leiklistarhátíðir batnað til muna. Slíkir viðburðir eru nú til dags yfirleitt með heimasvæði á netinu. Einstaklingar og leikhópar hvaðanæva úr heiminum geta yfirleitt sótt um þátttöku, oftast í gegnum internetið. Nú er komið sérstakt svæði á vef IATA (International Amateur Theatre Association) með upplýsingum um […]
Tryllingur og hömluleysi
Jólaleikrit Þjóðleikhússins árið 2006 er Bakkynjur eftir Evrípídes. Frumsýning verður 26. desember og þetta er í fyrsta sinn sem verkið er sýnt á Íslandi. Bakkynjur er eitt frægasta leikrit grísku gullaldarinnar í leikritun og talið til harmleikja þótt það lúti ekki allskostar lögmálum hefðbundinna harmleikja. Hér birtist það í glænýrri þýðingu Kristjáns Árnasonar. Í verkinu […]
Alþjóðleg leiklistarhátíð í Japan
Nú er verið að taka á móti umsóknum þeirra sem áhuga hafa á að sýna á áhugaleikhúshátíð í Matsue í Japan í nóvember 2007. Hátíðin er haldin í Shiinomi-leikhúsinu í Yakumo-hverfi í Matsue-borg. Fimm leikhópum verður boðið að sýna á hátíðinni en auk þeirra verða fjórar japanskar sýningar og verður ein þeirra frá "heimaleikhóp" Shiinomi-leikhússins, […]
Síðustu sýningar á Ráðskonu Bakkabræðra
Síðustu sýningar á Ráðskonu Bakkabræðra eru í kvöld kl: 20:00 og á morgun laugardaginn 16. desember kl. 20.00. Þetta eru síðustu forvöð til að sjá hvernig íslenskt áhugaleikhús skemmti landsmönnum á fyrri hluta síðustu aldar. Þetta verk fékk 15.000 áhorfendur þegar það var sýnt hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar árið 1943. Fyndið og alveg meinfyndið líka. Miðapantanir […]
Sviðsetningahátíð í Prag
Scenofest 2007 er leikhúshátíð sem haldin verður 15. júní til 24. júní í Prag í Tékklandi. Á hátíðinni verður lögð áhersla á umgjörð leiksýninga. Boðið verður upp á fjölda námskeiða og sýninga þar sem áhersla er lögð á sjón- og tæknilega þætti í leikhúsi. Hátíðin er í hátíðaröðinni Prague Quadrennal, en sú hátíð er haldin […]
Ljónalandið í Jaðarleikhúsinu
Barnasöngleikurinn Ljónalandið eftir Brigitte og Herwig Thelen, í þýðingu og leikstjórn Ívars Helgasonar verður frumsýnt í Jaðarleikhúsinu sunnudaginn 17. desember næstkomandi, kl 16.00. Ljónalandið gerist á sléttum Afríku, þar sem hin ógurlega silfurslanga legst yfir landið, skilur að hjarðirnir og mengar vatnsbólin. Dýrin þurfa að taka til sinna ráða til þess að berjast gegn þessari […]
Memento Mori á leiklistarhátíð í Kóreu
Árið 2004 settu Hugleikur og Leikfélag Kópavogs upp verkið Memento Mori. Verkið var unnið í samstarfi þátttakenda úr félögunum tveimur og leikstjórans Ágústu Skúladóttur, en handrit skrifaði Hrefna Friðriksdóttir. Sýningin fór síðan á fjölþjóðlega leiklistarhátíð á Akureyri árið 2005 og var þar valin besta sýning hátíðarinnar með meiru. Síðastliðið sumar var síðan farið með sýninguna […]
Haustfundur 1. október 2006
Haustfundur Bandalags íslenskra leikfélaga Haldinn á Hótel Selfossi 01.10. 2006 Fundur settur kl. 09.00 Sigríður Lára Sigurjónsdóttir flutti lítinn skyndihjálparpistil til bjargar deyjandi leikfélögum. SKYNDIHJÁLP Fyrir leikfélög í andnauð Algeng sjúkdómseinkenni – Félagaleysi – Peningaleysi – Húsnæðisleysi – Aðsóknarleysi – Almennt vonleysi Félagaleysi – Gæði félagsins mælist ekki í fjölda á félagaskrá Einu sinni […]
Málþing um Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga 30. september 2006
Hótel Selfossi 30.09.2006 Málþing um Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga Framsöguerindi: Gunnhildur Sigurðardóttir, fráfarandi skólastýra, kynnti dagskrá málþingsins og fjallaði um aðdraganda og starfsemi skólans til þessa. Málþing 9:00 12:00 Framsöguerindi Aðdragandi – starfsemi – Gunnhildur Sigurðardóttir Húsnæðismál skólans – Margrét Tryggvadóttir Niðurstöður úr könnun – Hrefna Friðriksdóttir Skólinn frá sjónarhóli leikfélags – Sigríður Lára, […]
Aukasýning á Jólaperu
Þar sem uppselt er á Jólaperu helgileikinn um Jósef frá Nasaret sunnudaginn 10. desember kl. 18.00 hefur verið ákveðið að hafa aukasýningu sama dag kl. 20.00. Enn eru nokkrir miðar lausir á sýninguna 17. desember kl. 18.00. Söngleikurinn var frumsýndur fyrir fullu húsi fyrsta sunnudag í aðventu á efri hæð Grand Rokk við Smiðjustíg. […]
Alþjóðleg sviðslistasmiðja í Lettlandi
Alþjóðlegi háskólinn Global Theatre Experience (IUGTE) heldur sviðslistasmiðju undir stjórn Sergey Ostrenko í Riga í Lettlandi dagana 30. mars til 4. apríl í vor. Aðeins eru örfá pláss í boði og munu námskeiðshaldarar velja úr umsækjendum þá sem þeim þykir henta. Ítarleg ferilskrá þarf að fylgja umsóknum. Smiðjan er opin leikstjórum, leikskáldum, leikurum, dönsurum, danshöfundum, […]
Jólabónus Hugleiks kemur manni í jólastuð
Nú glymja í eyrum alla daga jólapopplögin sívinsælu og þótt maður reyni að flýja þau þá smjúga þau allstaðar. Sama hvaða tökkum er snúið á radíóinu eða sjónvarpskassanum þá er mamma allstaðar að kyssa jólasvein. Þessvegna var það afar hressandi að skreppa í Jólabónus hjá Hugleik og hlusta á öll ójólalögin eða andjólalögin eða hvað […]
Varaðu þig á vatninu Jólasýning
Laugardaginn 9. desember sýnir Leikfélag Mosfellssveitar jólasýningu á verkinu Varaðu þig á vatninu eftir Woody Allen í leikstjórn Guðjóns Þorsteins Pálmarssonar. Miðaverð verður aðeins kr. 1.200 á þessa sýningu og boðið verður upp á jólaglögg og piparkökur í hléi. Einnig munu þrír heppnir leikhúsgestir hafa með sér jólatré heim.
Barnaleikhúshátíð í anda Astrid Lindgren
Nordisk amatörteaterraad (NAR) Sveriges Amatörteaterraad og Vimmerby-bær bjóða barnaleikhúshópum (leikendum á aldrinum 9 til 14 ára) frá Norðurlöndunum og baltnesku löndunum á SPUNK-hátíðina í Vimmerby 18. – 24. júní 2007. Hátíðin er hluti af hundrað ára afmælishátíð Astrid Lindgren. Þau lönd sem boðið er að taka þáttí hátíðinni eru hópar frá aðildarlöndum NAR og baltnesku […]
Endurtekur sagan sig?
Útsendari okkar fór á frumsýningu hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar um helgina og ritar sitt álit: "Leikfélag Hafnarfjarðar á 70 ára afmæli á þessu ári. Í tilefni afmælisins ákvað stjórn þess að setja upp að nýju Ráðskonu Bakkabræðra, vinsælasta leikrit sem þar hefur á fjalir komið. Sú sýning var sett upp í lok seinni heimsstyrjaldar og að […]
Jólabónus Hugleiks
Nú fer aðventan í hönd og þá er hefð fyrir því að leikfélagið Hugleikur bregði sér í jólafötin og skemmti sér og öðrum sem aldrei fyrr. Jóladagskrá Hugleiks heitir að þessu sinni Jólabónus og verður framin í Þjóðleikhúskjallaranum þriðjudaginn 5. og fimmtudaginn 7. desember klukkan 21.00. Leikfélagið Hugleikur fékk á dögunum viðurkenningu á degi íslenskrar […]
Lokasýning á Umbreytingu í Þjóðleikhúsinu
Á síðasta leikári leysti Kassinn, hið nýja svið Þjóðleikhússins við Lindargötu, Litla sviðið af hólmi sem leiksvið, og nú hefur Litla sviðið hlotið nýtt nafn, Kúlan, og öðlast nýtt hlutverk fyrir leikhúsgaldur og leiklistaruppeldi. Vígslusýning Kúlunnar var sýning brúðusnillingsins Bernds Ogrodniks, Umbreyting Ljóð á hreyfingu, sem var frumsýnd á Listahátíð í Reykjavík á liðnu […]
Helgileikur um Jósef frá Nasaret
Sunnudaginn 3. desember klukkan 18.00 frumsýnir leikhópurinn Peðið söngleikinn Jólapera – helgileikurinn um Jósef frá Nasaret, á Grand Rokk. Jólapera er þriðja leikverkið sem Peðið setur upp en áður hefur hópurinn sýnt leikritið Lamb fyrir tvo og söngleikinn Barpera. Báðar sýningarnar voru liður í Menningarhátíð Grand Rokk en leikhópurinn samanstendur af fastagestum og velunnurum staðarins. […]
Ráðskona Bakkabræðra í Hafnarfirði
Laugardaginn 2. desember frumsýnir Leikfélag Hafnarfjarðar gamanleikinn Ráðskona Bakkabræðra eftir norska leikskáldið Oskar Braaten. Leikstjóri er Lárus Vilhjálmsson og taka 12 manns þátt í sýningunni. Leikfélag Hafnarfjarðar heldur nú í ár upp á 70 ára afmæli sitt og í tilefni af því var sýnt nýtt íslenskt verk, Hin endanlega hamingja, eftir Lárus Húnfjörð, í byrjun […]
Höfundur Herra Kolbert til Íslands
David Gieselmann, höfundur Herra Kolberts, er væntanlegur til Íslands til að sjá rómaða uppfærslu á leikriti sínu hjá LA. Verk Gieselmanns hafa verið sýnd um allan heim en Herra Kolbert er hans þekktasta verk en það hefur verið sýnt um nær alla Evrópu auk Bandaríkjanna, Ástralíu og Suður Ameríku. Gieselmann þáði boð um að koma […]
Brot af því besta
Upplestrakvöld eru orðin fastir liðir í Borgarleikhúsinu á aðventunni. Rithöfundar munu þetta árið lesa úr verkum sínum fimmtudagskvöldið 30. nóvember kl. 20.00 og fimmtudagskvöldið 7. desember kl. 20.00. Fimmtudagskvöldið 30. nóvember lesa höfundarnir: Auður Jónsdóttir, Linda Vilhjálmsdóttir, Árni Þórarinsson, Bragi Ólafsson, Einar Már Guðmundsson og Sigurjón Magnússon úr verkum sínum. Fimmtudagskvöldið 7. desember er […]
Æfingar hafnar á Svörtum ketti hjá LA
Hafnar eru æfingar á leikritinu Svartur köttur eftir Martin McDonagh. Leikritið er margverðlaunað og hefur víða vakið verðskuldaða athygli. Sömu sögu er að segja um fyrri verka McDonaghs, s.s. Koddamaðurinn, Halti Billi og Fegurðardrottningin frá Línakri sem öll hafa verið sýnd hérlendis. Frumsýning verður 20. janúar hjá LA í Samkomuhúsinu en þá eru liðin 100 […]
Maður í mislitum sokkum
Leikdeild Umf. Íslendings er þessa dagana að sýna gaman-farsann Maður í mislitum sokkum eftir Arnmund Backman.
Leikfélag Mosfellssveitar frumsýnir Varaðu þig á vatninu
Miðvikudagskvöldið 22. nóvember klukkan 20:00 verður leikritið Varaðu þig á vatninu eftir Woody Allen frumsýnt hjá Leikfélagi Mosfellssveitar. Leikstjóri er Guðjón Þorsteinn Pálmarsson og taka átta leikarar þátt í sýningunni. Leikritið gerist á tímum kalda stríðsins og fjallar um bandaríska fjölskyldu sem leitar skjóls í bandaríska sendiráðinu í Vúlgaríu eftir að hafa tekið þar ljósmyndir […]
Smiður jólasveinsins í Möguleikhúsinu
Möguleikhúsið er um þessar mundir að hefja að nýju sýningar á barnaleikritinu Smiður jólasveinanna, eftir Pétur Eggerz. Leikritið var fyrst sýnt fyrir jólin 1992 og hefur allar götur síðan notið mikilla vinsælda, var m.a. gefið út á geisladiski fyrir jólin 1993. Í leikritinu segir frá Völundi gamla sem situr í litla kofanum sínum hátt upp […]
Hnerrinn æfður á Selfossi
Æfingar eru hafnar af fullum krafti hjá Leikfélagi Selfoss í Litla leikhúsinu við Sigtún. Verkið sem um ræðir heitir Hnerrinn og er blanda sjö ótengdra leikþátta og leikgerðra smásagna eftir Anton Chekov. Meðal verkanna eru þekktir þættir á borð við Björninn og Bónorðið en einnig er þarna að finna leikþætti sem ekki hafa áður verið […]
Nemendaleikhúsið sýnir Blóðbrullaup
Nemendaleikhús Listaháskóla Íslands æfir nú sýninguna Blóðbrúðkaup eftir F.G.Lorca. Þetta er annað verkefni vetrarins og er frumsýning 24.nóvember n.k. á Litla Sviði Borgarleikhússins en sýningin stendur til 10.desember. Blóðbrúðkaup er allt í senn – blanda af hreinræktuðu raunsæi, ljóðlist og ævintýri. Harmsaga um ástir og hefndir í óbilgjarnri veröld sem endurtekur grimmdarverk og fávisku ætt […]
Jólaleikrit í Borgarleikhúsinu
Miðvikudaginn 22.nóvember frumsýna BORGARBÖRN jólaleikritið Réttu leiðina á Nýja sviði Borgarleikhússins. Borgarbörn er nýstofnað barna og unglingaleikhús Sönglistar og Borgarleikhússins og það eru hvorki fleiri né færri en 22 börn/unglingar sem taka þátt í hverri sýningu. Þess má geta að í tengslum við sýninguna verður tekið á móti jólapökkum sem Borgarbörn munu afhenda Rauða krossinum, […]
Síðustu sýningar á Þjóðarsálinni
Nú eru einungis tvær sýningar eftir á hinni karnivalísku leiksýningu Þjóðarsálinni. Þær verða fimmtudaginn 23. nóvember og föstudaginn 24. nóvember kl. 20.00 í Reiðhöll Gusts í Kópavogi, nánar tiltekið í Álalind 3. Sýning þessi hefur vakið mjög sterk viðbrögð áhorfenda sem og gagnrýnenda. Fimm leikarar fara með stór hlutverk, þau Árni Pétur Guðjónsson, Árni Salomonsson, […]