Hjónabandsglæpir í Þjóðleikhúsinu

Þjóðleikhúsið frumsýnir nýtt leikrit eftir Eric-Emmanuel Schmitt, Hjónabandsglæpi, í Kassanum 18. apríl. n.k Hjónabandsglæpir er nýtt leikrit úr smiðju Eric-Emmanuel Schmitt, en leikrit hans Abel Snorko býr einn og Gesturinn hafa notið mikilla vinsælda meðal íslenskra áhorfenda. Í Hjónabandsglæpum tekst höfundur á óvæginn og óvæntan hátt við ástina, hjónabandið og samskipti kynjanna. Í verkinu blasa […]

Stúdentaleikhúsið sýnir í Kartöflugeymslunum

Stúdentaleikhúsið sýnir þessa dagana leikritið EXAMINASJÓN. Verkið er byggt á sagnabálknum The Bottom Inspectors, en það eru sögur sem birtast í hinu virta sorptímariti VIZ sem gefið er út á Bretlandseyjum. Verkið er sýnt í Kartöflugeymslunum í Átrúnsbrekku. Guðjóns Þorsteinn Pálmarsson, betur þekktur sem Denni, leikstýrir og um tónlistarstjórn sér Snæbjörn Ragnarsson, betur þekktur sem […]

Gersemar gærdagsins í Kúlunni

Þjóðleikhúsið kynnir sérstæða franska gestasýningu Etabl´île í Kúlunni á mánudagskvöldið 16. apríl kl. 20.00. Aðeins er um þessa einu sýningu í Þjóðleikhúsinu að ræða og því fágætt tækifæri fyrir leikhúsáhugafólk en Turak hópurinn undir stjórn Michael Laubu hefur getið sér gott orð víða um heim. Hér er á ferðinni sérstæð leiksýning einskonar ævintýraferð um töfraveröld […]

Mjallhvít í Þjóðleikhúsinu

Laugardaginn 14. apríl n.k hefjast í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu sýningar á brúðuleikritinu um Mjallhvíti í uppfærslu brúðuleikhússins 10 fingra sem Helga Arnalds stjórnar. Hér er á ferðinni sagan sígilda um Mjallhvíti og dvergana sjö eins og við þekkjum hana flest en í sýningunni leiðir sögukonan, Helga Arnalds börnin í gegnum hana á nokkuð óvenjulegan hátt […]

Bingó! Frumsýning 14. apríl

Leikfélagið Hugleikur og Leikfélag Kópavogs hafa sameinað krafta sína og setja nú upp leikritið Bingó eftir Hrefnu Friðriksdóttur í leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Í leikritinu Bingó hittast fimm manneskjur reglulega og spila Bingó. Eins og leikurinn er í eðli sínu einfaldur og segir sig nánast sjálfur, er eitthvað með tölurnar sem tengir okkur nánar persónum verksins, […]

Salka Valka á Skaganum

Skagaleikflokkurinn frumsýnir Sölku Völku eftir skáldsögu Halldórs Laxness miðvikudaginn 4. apríl. Leikstjórn er í höndum Ingu Bjarnason sem vann leikgerð verksins í samvinnu við leikhópinn. Leikgerðin byggir á leikgerð Hilmars Jónssonar annarsvegar og Stefáns Baldurssonar og Þorsteins Gunnarssonar hinsvegar. Í þessari leikgerð er meira lagt upp úr lífi Sölku Völku en í hinum tveimur. 

Killer Joe, síðustu sýningar í vor

Aukasýning á skírdag. Af óviðráðanlegum ástæðum verður sýningum Skámána á KILLER JOE í Borgarleikhúsinu að ljúka nú í apríl en verkið verður tekið upp af fullum krafti í haust. Aðeins 4 sýningar eru eftir í vor. Þetta magnaða verk hefur hlotið frábærar viðtökur bæði gagnrýnenda og áhorfenda.

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga 2007

verður haldinn að Hallormsstað dagana 4. til 6. maí. Samhliða aðalfundi fer fram sýning á leikskrám og veggspjöldum leikársins 2006-2007. Endilega takið með ykkur eintök ykkar leikfélaga. Val Þjóðleikhússins á Athyglisverðustu áhugasýningu leikársins verður að venju kynnt á hátíðakvöldverðinum. Þið sem enn eigið eftir að sækja um gerið það sem allra fyrst. Umsóknareyðublöð má nálgast […]

Hálsfesti Helenu í Þjóðleikhúsinu

Þann 14. apríl n.k. frumsýnir Þjóðleikhúsið Hálsfesti Helenu, nýtt verðlaunaleikrit eftir eitt þekktasta nútímaleikskáld Kanada, Carole Fréchette. Hálsfesti Helenu er einstaklega áhrifamikið verk, innblásið af dvöl höfundar í Líbanon árið 2000. Aðalpersóna verksins er Helena, búsett í norðlægu landi, sem er á heimleið af ráðstefnu í borg í Austurlöndum nær, þar sem uppbygging er hafin […]

Úrslit í örleikritakeppni ráðast í kvöld

Það er ekki oft sem verk eftir leikskáld allt niður í 17 ára aldur rata á svið Þjóðleikhússins. Árleg örleikritasamkeppni fræðsludeildar hússins og leiklistardeildar LHÍ gerir það þó mögulegt. Samkeppnin er opin framhaldsskólanemum um land allt og fer úrslitakvöldið 2007 fram í kvöld, þriðjudag kl. 20.00 á Stóra sviðinu og er aðgangur ókeypis og öllum […]

Þorskastríðið í Fiskmarkaðnum

Þýski leikhópurinn Das Letzte Kleinod (Síðasti fjársjóðurinn) hefur á undanförnum mánuðum unnið að verki sem byggir á heimildum um Þorskastríðið sem háð var á Íslandsmiðum árið 1977. Verkið verður sett upp og sýnt í vinabæjunum Cuxhaven í Þýskalandi og í Hafnarfirði.

Undirbúningur Sæluviku á Sauðárkróki

Í byrjun mars hófust æfingar á Sæluvikustykkinu sem að þessu sinni er gamanleikurinn Sex í sveit eftir Marc Camoletti í enskri leikgerð Robins Howdon.  Íslenskun og staðfæring er eftir Gísla Rúnar Jónsson. Söguþráðurinn er í stórum dráttum sá að maður okkur býður viðhaldinu sínu með í sumarbústað, en þegar eiginkonan ákveður að koma með honum […]

Frumsýningu á Gretti frestað

Grettir verður frumsýndur 22. apríl   Vegna veikinda leikara hefur Leikfélag Reykjavíkur neyðst til að fresta frumsýningu á söngleiknum Gretti, sem vera átti næstkomandi föstudag. Frumsýningin verður sunnudaginn 22. apríl. Fyrirhugaðar forsýningar verða, föstudaginn 20. apríl og laugardaginn 21. apríl kl. 20.   Þeir sem keypt hafa miða á sýningar á Gretti eru vinsamlegast beðnir […]

Ávarp Alþjóða leiklistardagins, 27. mars 2007

eftir Bernd Ogrodnik Mannsandinn er uppspretta endalausra vangaveltna, hláturs og gráturs, en það er sama hvernig við lítum á tilveru okkar, það er nær ómögulegt að skilja mikilfengleik hennar. Stærsta gjöf listamannsins til mannkyns er ef til vill að geta á einhvern hátt tjáð það sem rökhugsun getur aldrei að fullu höndlað og kynslóðir vísindamanna […]

Lífið – Notkunarreglur hjá LA

Nýtt leikverk eftir Akureyringinn Þorvald Þorsteinsson, Lífið – notkunarreglur var frumsýnt síðasta föstudag hjá Leikfélagi Akureyrar. Einvalalið listrænna stjórnenda stýrir leikhópi LA og útskriftarárangi Leiklistardeildar Listaháskólans en sýningin er sett upp í samstarfi þessara aðila. Megas hefur samið tónlist við verkið sem m.a. inniheldur 10 ný sönglög við texta Þorvaldar.  Magga Stína útsetur, stýrir tónlistinni […]

Gleði og gengdarlaust gaman hjá Hugleik

Ást í meinum, ást í leynum, ást á allla kanta, ásamt athyglisverðri ástríðu á tyggjói og andstyggð á frunsum er meðal þess sem tæpt er á í söng- og gleðileiknum Epli og eikur, sem frumsýndur var hjá Hugleik í Möguleikhúsinu um helgina. Höfundur verksins er Þórunn Guðmundsdóttir, Hugleikari með meiru, en Þórunn hefur heldur betur […]

Síldin komin í Hörgárdal

Fimmtudagskvöldið 22. mars frumsýndi Leikfélag Hörgdæla leikritið Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Um er að ræða gamanleik með söngvum og lifandi tónlist sem fjallar um farandverkafólk á síldarárunum, sorgir þeirra og gleði, ástir, afbrýði og samskipti við heimafólk. Leikritið verður sýnt á Melum í Hörgárdal á föstudags- og laugardagskvöldum […]

Litið á Batnandi mann

Á fimmtánda starfsári sínu setur Halaleikhópurinn upp leikritið Batnandi maður eftir Ármann Guðmundsson í leikstjórn höfundar. Verkið segir sögu sjómannsins Sigmars sem lendir í vinnuslysi og ákveður að fá sig úrskurðaðan öryrkja í þeim tilgangi að njóta lífsins á kostnað skattgreiðenda. Það ætlunarverk tekst honum en rekur sig brátt á að líf öryrkjans er kannski […]

Sögustund í Kópavogi

Það er alltaf skemmtileg tilfinning að fara í leikhús og hafa ekki hugmynd um hvað bíður manns. Þó að vissulega geti brugðið til beggja vona þá er bara eitthvað svo heillandi við óvissuna, maður er einhvern veginn frjáls undan öllum fyrirfram væntingum og öll skilningarvit fara á fullt að meðtaka minnstu vísbendingar um hvað í […]

Leiklistardagar hjá Leikfélagi Siglufjarðar

Alþjóðasamtök leiklistarfólks, ITI, sem er ein af undirstofnunum UNESCO hafa frá 1962 haft 27. mars ár hvert sem Alþjóðlegan leiklistardag. Leiklistarsamband Íslands, sem er Íslandsdeild ITI, hefur frá stofnun sinni haldið upp á þennan dag og fengið hverju sinni málsmetandi listamann úr sínum röðum til að semja ávarp í tilefni dagsins. Að þessu sinni er […]

Martröð hjá Leikfélagi Kópavogs

Leikfélag Kópavogs á fimmtugsafmæli í ár og því er nóg um að vera á þeim bænum í vor. Félagið sýnir nú annað verk sitt á þessu ári. Unglingadeild Leikfélags Kópavogs frumsýndi í gærkvöldi, fimmtudag 22. mars, leikverkið Martröð. Verkið er byggt á Draumi á Jónsmessunótt eftir William Shakespeare. Martröð er að miklu leyti unnin og […]

Frumsýning á Hofsósi

Leikfélag Hofsóss frumsýnir í kvöld 23. mars, gamanleikinn Ef væri ég gullfiskur! eftir Árna Ibsen í leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Óhætt er að segja að Þröstur sé orðinn hagvanur í Skagafirðinum en hann hefur leikstýrt mörgum verkum hjá Leikfélagi Sauðárkróks en að þessu sinni tókst Hofsósingum þó að krækja í hann. Hlutverk í leikritinu eru 10 […]

Léttleiki í Lyngbrekku

Gísli Einarsson skrifar: Góðir farsar eru alltaf kærkomin glæta í skammdeginu. Nóg er af hörmungum og leiðindum í heiminum sem oftar en ekki rata síðan á leiksvið og þykir reyndar fínt. Ég er hinsvegar þeirrar skoðunar að leikverk eigi fullan rétt á sér og vel það þó þau skilji ekkert annað eftir sig en óminn […]

Power of love í Austurbæ

Power of Love er komið aftur til landsins eftir leikferð til Króatíu og Slóveníu. Sýningar hefjast að nýju í mars, dagana 23., 24., 29. og 30. mars, í Silfurtunglinu í Austurbæ. Sýningar hefjast allar klukkan 20:00. Ath. Aðeins þessar 4 sýningar. Miðasala er í Austurbæ frá 13:00-17:00 og í síma 551-4700, einnig er hægt að […]

Leikhúsdagar í Þjóðleikhúsinu

Alþjóðasamtök leiklistarfólks, ITI, sem er ein af undirstofnunum UNESCO hafa frá 1962 haft 27. mars ár hvert sem Alþjóðlegan leiklistardag. Leiklistarsamband Íslands, sem er Íslandsdeild ITI, hefur frá stofnun sinni haldið upp á þennan dag og fengið hverju sinni málsmetandi listamann úr sínum röðum til að semja ávarp í tilefni dagsins. Að þessu sinni er […]

Leikskáld athugið!

Leikfélag Akureyrar hyggst ráða eitt til tvö leikskáld til að skrifa handrit að leikverki fyrir leikhúsið. Stefnt er að uppsetningum á árunum 2008–2010. Áhugasamir sendi hugmynd að leikverki til leikhússins ásamt ferilskrá höfundar fyrir 25. apríl n.k. merkt „leikskáld“.   Leikskáld sem starfa fyrir Leikfélag Akureyrar, starfa skv. kjarasamningi leikhússins og Rithöfundasambands Íslands. Nú þegar […]

Ávarp á alþjóðlega Barnaleikhúsdeginum

20. mars 2007. Það verður aldrei lögð of mikil áhersla á það hversu mikilvægt gott leikhús er fyrir börn. Börn eiga ekki auðvelt með að segja okkur hvers vegna þau eru reið, hrædd eða fyrir hvað þau skammast sín og við eigum stundum erfitt með að giska á það. Vandaðar leiksýningar og góðar sögur eru […]

Hugleikur frumsýnir Epli og eikur

Epli og eikur er gamanleikur með söngvum sem Hugleikur frumsýnir í Möguleikhúsinu föstudaginn 23. mars. Höfundur er Þórunn Guðmundsdóttir og leikstjóri er Oddur Bjarni Þorkelsson. Verkið fjallar um ástir og áhugamál nokkurra einstaklinga sem tengjast ýmsum böndum. Hin margslungnu samskipti persónanna þróast á fyndinn og blæbrigðaríkan hátt þar sem ýmsum brögðum er beitt við persónusköpun […]

Viltu tjá þig?

Nú hefur þeim möguleika verið bætt við hér á vefnum að lesendur geta hafið umræður á spjallborði, beint út frá tilteknum fréttum eða greinum. Ef smellt er á Lesa meira… neðan við grein er hún öll birt og neðst má þá sjá tengil sem opnar nýtt innlegg á spjallborði um greinina. Ef umræða er þegar […]

Ævintýri og leikgleði

Ungmennafélögin Baldur, Samhygð og Vaka í Flóahreppi, frumsýndu í félagsheimilinu Þingborg um helgina gleðileikinn Draumur á Jónsmessunótt eftir William Shakespeare í leikstjórn Gunnars Sigurðssonar. Verkið fjallar um elskendur sem lenda í veseni og misskilningi og álpast inn í töfraskóg þar sem álfurinn Bokki stríðir þeim svo um munar. Inn í flækjuna blandast flokkur handverksmanna sem […]

Þið munið hann Jörund, á Hólmavík

Leikfélag Hólmavíkur frumsýnir Þið munið hann Jörund 24. mars næstkomandi í Félagsheimilinu á Hólmavík. Leikstjóri er Skúli Gautason, en hann hefur leikstýrt tveimur uppsetningum hjá leikfélaginu áður, Sex í sveit og Tobacco Road. Æfingar hafa gengið vel. Þó létu leikarar sig ekki muna um að eyða einni nótt á æfingatímabilinu uppi á Steingrímsfjarðarheiði. Þar voru […]

Ímyndunarveikin eða Þögn Molières

Þjóðleikhúsið hefur í samvinnu við “Pourquoi Pas – Franskt vor á Íslandi” boðið hingað til lands gestaleik á einu af vinsælustu verkum franskra leikbókmennta, Ímyndunarveikinni eftir Molière. Einn af áhugaverðustu leikstjórum Frakka af yngri kynslóðinni, Arthur Nauzyciel, leikstýrir sýningunni. Sýningin hefur hlotið mikið lof og verið sýnd víða um Frakkland og í Rússlandi á undanförnum […]

Nú fljúga hvítu englarnir í Logalandi

SÍðastliðna helgi opnaði Ungmennafélag Reykdæla kaffileikhús sitt í Logalandi. Á dagskrá eru tveir einþáttungar, “Flugfreyjuþáttur” og “Er það ég” eftir Kristínu Gestsdóttur, nokkur sönglög úr smiðju Magnúsar Eiríkssonar og rúsínan í pylsuendanum er svo leikritið “Nú fljúga hvítu englarnir” eftir Örnólf Guðmundsson ráðsmann í Reykholti. Leikritið segir frá fullorðnum sveitapresti, nokkuð ölkærum, og samskiptum hans […]

Himnaríki í Eyjum

Leikfélag Vestmannaeyja er nú á fullu að æfa Himnaríki eftir Árna Ibsen, í leikstjórn Jóns Inga Hákonarsonar Þetta er skemmtilegt og krefjandi verk fyrir leikarana en tveir þeirra eru að stíga sín fyrstu skref á sviði. Æfingarnar ganga mjög vel og er áætlað að frumsýna þann 5. apríl n.k. í Bæjarleikhúsinu í Vestmannaeyjum. Einnig er […]

Masterclass í söng og raddbeitingu

Leikfélag Selfoss býður upp á áhugavert söng- og raddbeitingarnámskeið dagana 14.-15. apríl í Litla leikhúsinu við Sigtún. Kennari verður Kristjana Stefánsdóttir, djasssöngkona og söngkennari, en Kristjana kennir söng við FÍH, ásamt því sem hún hefur unnið við raddþjálfun leikara bæði í Borgarleikhúsinu og Þjóðleikhúsinu. Núna síðast vann hún við raddþjálfun í sönleiknum Leg, sem nýlega […]

Leiklistarskóli Bandalagsins 2007

Starfstími skólans á þessu ári er frá 9. til 17. júní að Húsabakkaskóla í Svarfaðardal og helgarnar 12. til 14. og 26. til 28. október í Reykjavík. Boðið er upp á þrjú námskeið í Svarfaðardalnum, Leiklist I, kennari Ágústa Skúladóttir, sérnámskeið fyrir leikara, kennari Stephen Harper og sérnámskeið fyrir leikstjóra, kennari Egill Heiðar Anton Pálsson. […]

Örleikritakeppni fyrir framhaldsskólanema

Í fjórða sinn standa leiklistardeild LHÍ og  fræðsludeild Þjóðleikhússins nú sameiginlega að leikritunarsamkeppni fyrir framhaldsskólanema. Örleikrit er einfaldlega mjög stutt leikrit, og verður í þessu tilfelli að uppfylla eftirtalin skilyrði: Lengd: Hámark 10 mínútur. Lágmark 5 mínútur (u.þ.b. 2-4 bls.) Leikarar: 3 eða færri. Leikmynd: Gamall 1 m. hár skápur– ekkert annað. Leikmunir: Engir

Sex í sveit í Borgarnesi

Föstudaginn 9.mars frumsýnir Leikdeild UMF Skallagríms í Borgarnesi gamanleikritið Sex í Sveit. Verkið verður sýnt í félagsheimilinu Lyngbrekku. Sex leikarar taka þátt í sýningunni og leikstjóri er Rúnar Guðbrandsson. Leikdeildin hefur verið á miklum hrakhólum undanfarin 7 ár og hrakist milli gamalla iðnaðarhúsa í Borgarnesi. Sökum þess hefur ekki verið tækifæri á að setja upp […]

Ást, 10. mars

Laugardaginn 10.mars  frumsýnir Leikfélag Reykjavíkur í samvinnu við Vesturport söngleikinn ÁST á Nýja sviði Borgarleikhússins. Söngleikurinn er eftir þá Gísla Örn Garðarsson og Víking Kristjánsson.   Sagan  fjallar um ástir og daglegt líf heimilismanna á  elliheimili.  Nína eldri kona utan af landi kemur í skammtímavistun á elliheimili í höfuðborginni, fyrir tilstuðlan ábyrgðarfulls sonar. Vistin hefur […]