Sjóræningjaprinsessan á Selfossi
Sigríður Lára Sigurjónsdóttir skrapp um helgina austur fyrir fjall til að sjá sýningu Leikfélags Selfoss á nýju íslensku barnaleikriti, Sjóræningjaprinsessunni sem Ármann Guðmundsson semur og leikstýrir. Hér greinir hún frá þeirri upplifun: Ég brá mér í leikhús um helgina. Fór við þriðja aðstoðargagnrýnanda að sjá Sjóræningjaprinsessuna hjá Leikfélagi Selfoss. Alltaf gaman að sjá ný barnaleikrit […]
Milljarðamærin snýr aftur í Borgarleikhúsinu
Föstudaginn 27. febrúar frumsýnir Leikfélag Reykjavíkur verk svissneska leikskáldsins Friederich Dürrenmatt, Milljarðamærin snýr aftur á Stóra sviðinu. Sagan gæti hæglega verið sprottin úr íslenskum samtíma en verkið er skrifað fyrir meira en hálfri öld. Íbúar ónefnds bæjarfélags í efnahagshruni eygja vonarglætu um endurreisn en hún felur í sér blóðuga fórn. Leikstjórn er í höndum Kjartans […]
Freyvangsleikhúsið frumsýnir Vínland
Föstudaginn 20. febrúar kl. 20.00 frumsýnir Freyvangsleikhúsið í Eyjafjarðarsveit nýjan rokksöngleik, Vínland, eftir heimamanninn Helga Þórsson. Leikstjóri er Ólafur Jens Sigurðsson. Tónlistin sem er eftir Helga og hljóðfæraleikarana er ákaflega fjölbreytt og nýtur sín vel í nýendurbættu hljóðkerfi Freyvangsleikhússins.
Mikið um að vera hjá Leikfélagi Mosfellssveitar
Laugardaginn 21. febrúar kl. 14.00 munu ungliðar Leikfélags Mosfellssveitar frumsýna söngleikinn Töfrataskan. Í söngleiknum kynnast áhorfendur ýmsum ævintýrapersónum eins og Mary Poppins, konungi ljónanna, litlu hafmeyjunni, Aladdin, Móglí og Fríðu. Leikstjórar eru Sigrún Harðardóttir og Agnes Wild.
Sjóræningjaprinsessan frumsýnd á Selfossi
Föstudaginn 20. febrúar frumsýnir Leikfélag Selfoss nýtt íslenskt fjölskyldu – og barnaleikrit, Sjóræningjaprinsessuna, eftir Ármann Guðmundsson sem jafnframt leikstýrir verkinu. Ármann semur einnig tónlist verksins ásamt Guðmundi Svafarssyni og söngtexta ásamt Sævari Sigurgeirssyni. Með helstu hlutverk fara Rakel Ýr Stefánsdóttir, Bjarki Þór Sævarsson, Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson og Stefán Ólafsson en 16 leikarar og 4 hljóðfæraleikarar […]
Fimmta uppsetningin á Kardemommubænum
Þjóðleikhúsið frumsýnir Kardemommbæinn eftir Thorbjörn Egner nk. laugardag, 21. febrúar, á Stóra sviðinu. Leikstjóri sýningarinnar er Selma Björnsdóttir. Íbúar Kardemommubæjarins eiga sér vísan stað í hjörtum íslenskra barna og nú færir ný kynslóð leikhúslistamanna okkur þetta dásamlega verk. Boðskapur verksins um mikilvægi umburðarlyndis og heiðarleika á alltaf við, og vísast geta ræningjarnir þrír, Soffía frænka […]
Aukasýning á Bólu-Hjálmari
Stoppleikhópurinn sýnir í kvöld, 18. febrúar, í Leikhúsinu, Funalind 2 í Kópavogi, nýtt íslenskt leikrit byggt á lífi og ljóðum Bólu-Hjálmars. Sýningin hefst kl. 20.00. Verkið nefnist: Brunað í gegnum Bólu-Hjálmar en það var frumsýnt í Iðnó í maí sl. Hefur það síðan verið á leikferð um landið þar sem sýningar fóru fram bæði í […]
Stundum og stundum ekki
Leikfélag Hörgdæla vinnur nú hörðum höndum að uppsetningu farsans Stundum og stundum ekki eftir þá kumpána Arnold og Bach. 15 leikarar taka þátt í uppsetningunni auk fjölda annarra sem koma að tæknimálum, hönnum og smíði sviðsmyndar, búningahönnun, förðun o.fl. Hallmundur Kristinsson hannar leikmynd, Ingvar Björnsson sér um ljósahönnun og Guðmundur Óskar Guðmundsson hefur yfirumsjón með […]
Velheppnuð Shakespeare-sýning í Halanum
Markvisst og metnaðarfullt verkefnaval Halaleikhópsins heldur áfram að skila okkur áhorfendum eftirminnilegum upplifunum. Núna er það sjálfur Shakespeare sem heimsækir Halann með efni úr þremur leikritum, Þrettándakvöldi, Jónsmessunæturdraumi og Hinrik IV. Þröstur Guðbjartsson hefur áður fengist við bútasaum af þessu tagi og fléttar hér tvær senur úr síðarnefndu leikritunum saman við meginþræði Þrettándakvölds. Útkoman er […]
Síðasta aukasýning á Blúndum og blásýru
Lokasýning á Blúndum og blásýru í flutningi Leikfélags Ölfuss verður laugardaginn 14. febrúar kl. 20 í Versölum, Þorlákshöfn. Blúndur og Blásýra er uppfærsla 4. leikárs Leikfélags Ölfuss og án nokkurs vafa sú stærsta hingað til. Sýningin er bráðskemmtilegur gamanleikur sem fjallar um Brewster fjölskylduna sem er ekki öll þar sem hún er séð.
Fólk á förnum vegi… frumsýnt á Dalvík
Dalvíkurskóli og Leikfélag Dalvíkur eru nú enn og aftur í samstarfi varðandi uppsetningu á leikverki fyrir unglinga. Er þetta í fjórða sinn sem samstarf af þessu tagi er tekið upp. Í skólanum er leiklist kennd sem valgrein í 9. og 10. bekk og 16 nemendur sækja þessa faggrein í vetur. Leiklistarhópurinn æfir nú frumsamið leikverk […]
Leiklestur á öllum verkum Söru Kane
Í kjölfar einstaklega vel heppnaðrar frumsýningarinnar á Rústað eftir Söru Kane heldur Borgarleikhúsið áfram kynningu á verkum þessa magnaða leikskálds. Öll önnur verk hennar verða flutt í sviðsettum leiklestrum á Nýja sviðinu næstu fjórar vikurnar. Fjöldi leikara tekur þátt í verkefninu. Gagnrýnendur spara ekki stóru orðin um uppsetningu Kristínar Eysteinsdóttur á Rústað og aðdáendur Söru […]
Brunað í gegnum Bólu-Hjálmar í Leikhúsinu
Stoppleikhópurinn sýnir nk. miðvikudag 11. febrúar í Leikhúsinu Funalind 2 í Kópavogi, nýtt íslenskt leikrit byggt á lífi og ljóðum Bólu-Hjálmars. Sýningin hefst kl.20.00. Verkið nefnist Brunað í gegnum Bólu-Hjálmar en það var frumsýnt í maí sl. í Iðnó. Hefur það síðan verið á leikferð um landið þar sem sýningar fóru fram bæði í grunnskólum […]
Við heimtum aukavinnu á Ísafirði
Í Edinborgarhúsinu á Ísafirði verður boðið uppá alþýðlega leik- og söngskemmtunina Við heimtum aukavinnu í febrúar. Hér er á ferðinni stórskemmtileg sýning sem er byggð á verkum bræðranna Jónasar og Jóns Múla Árnasona. Flutt verður úrval laga þeirra bræðra s.s. Klara Klara, Riggarobb, Einu sinni á ágústkvöldi, Og þá stundi Mundi, Augun þín blá, Langi […]
Leikfélag Rangæinga æfir Orustan á Laugalandi
Leikfélag Rangæinga hefur hafið æfingar á leikriti sem hefur fengið nafnið Orustan á Laugalandi. Verkið er farsi sem varð til á árunum eftir seinna stríð og er höfundurinn óþekktur. Mikil vinna hefur verið lögð í það hjá leikstjóra og leikurum að breyta verkin þannig að það gerist í nútímanum hér á svæðinu. Verkið fjallar um […]
Ástverk í leikferð
Iðnaðarmannaleikhúsið er nýstofnaður leikhópur sem fjallar um stemmninguna meðal iðnaðarmanna og samanstendur hópurinn af leikhúslistamönnum sem allir hafa reynslu af iðnaðarstörfum. Meðlimir Iðnaðarmannaleikhússins eru allir í yngri kantinum, á aldrinum 25 til 34 ára. Ástverk ehf er nýtt íslenskt verk sem varð til upp úr samvinnu hópsins. Verkið byggir bæði á sönnum sögum af vinnustöðum […]
Aukasýningar hjá Áhugleikhúsi atvinnumanna
Aukasýningar verða haldnar á sjónleik Áhugleikhúss atvinnumanna Ódauðlegt verk um samhengi hlutanna sem sýnt er í Nýlistasafninu. Sýningarnar verð þriðjudaginn 3. febrúar kl. 20 og miðvikudaginn 4. febrúar kl.20, aðgangur er ókeypis. Verkið er hluti af fimmverka röð ódauðlegra leikverka um hegðun og eðli mannsins og er annað í röðinni. Verkin eru rannsókn á áráttuhegðun […]
Leikritunarsjóðurinn Prologos auglýsir eftir umsóknum
Leikritunarsjóðurinn Prologos auglýsir eftir umsóknum vegna annarrar úthlutunar úr sjóðnum. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar, en úthlutað verður í byrjun mars. Markmið Leikritunarsjóðsins Prologos er að hlúa að leikritun á Íslandi og efla höfundastarf við Þjóðleikhúsið, sem og að stuðla að framþróun og eflingu leiklistarinnar. Prologos veitir árlega allt að fimm höfundum styrk til að […]
Rústað frumsýnt á Nýja sviðinu
Leikritið Rústað eftir Söru Kane verður frumsýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins á föstudaginn. Sýning verksins markar tímamót því þetta er í fyrsta sinn sem íslenskt leikhús sviðsetur verk Söru Kane. Leikritið olli uppþoti í leikhúsheiminum, svo sterk voru viðbrögðin eftir frumsýningu Royal Court leikhússins á sínum tíma. Gagnrýnendur ýmist féllu fram í tilbeiðslu eða reittu […]
Halaleikhópurinn frumsýnir Sjeikspírs karnival
Þann 31. janúar n.k. mun Halaleikhópurinn frumsýna leikritið Sjeikspírs Karnival í leikgerð Þrastar Guðbjartssonar, sem einnig leikstýrir sýningunni. Unnið upp úr þremur verkum Shakespears: Þrettándakvöldi, Draumi á Jónsmessunótt og Hinriki IV. Þetta er ærslafullur gamanleikur, sem gerist á einum degi í Illiríu á Karnivali hjá Orsínó greifa. Hann er dapur og því koma vinir hans […]
Stærsta leiklistarhátíð Íslands haldin á Austurlandi
Þrettán leikhópar ungs fólks á Austurlandi undirbúa nú sýningar á þremur nýjum, íslenskum leikritum. Uppsetning verkanna er liður í Þjóðleik, leiklistarhátíð ungs fólks á Austurlandi, sem er samstarfsverkefni Þjóðleikhússins og Menningarmiðstöðvar Fljótsdalshéraðs. Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á Íslandi, afhenti forsvarsmönnum verkefnisins um tveggja og hálfrar milljón króna styrk frá alþjóðlegum Samfélagssjóði Alcoa við athöfn […]
…og þú hélst að þín fjölskylda væri slæm!
Leikfélag Ölfuss virðist komið til að vera. Félagið hefur á undanförnum árum fengið til liðs við sig góða leikstjóra og sett upp skemmtilegar sýningar. Góð blanda sem skilar árangri. Nú er komið á fjalirnar í Versölum leikritið Blúndur og blásýra, kolsvört kómedía um Brewster fjölskylduna sem er langt frá því að vera öll þar sem […]
Haustfundur Bandalags íslenskra leikfélaga 22.11. 2008
Haldinn að Funalind 2 Kópavogi kl. 13.00. 1. Úthlutunarreglur Þorgeir Tryggvason, formaður Bandalagsins, rifjaði upp umræðu frá síðastliðnum aðalfundi. Þá var ákveðið að 100% styrkur fengist fyrir sýningar sem næðu 80 mínútum. Einnig var rætt um hvort að hækka ætti styrki til þeirra leikfélaga sem senda fólk í Bandalagsskólann og hvort sá styrkur ætti aðeins […]
Góð aðsókn að Blúndum og blásýru
Gamanleikritið Blúndur og blásýra var frumsýnt sl. föstudagskvöld fyrir fullu húsi í Versölum, Þorlákshöfn. Uppselt var á 2. sýningu á laugardagskvöldið og hafa viðtökur verið vægast sagt góðar. Næsta sýning verður miðvikudagskvöldið 21. janúar klukkan 20 og eru örfá sæti laus á þá sýningu. Miðapantanir í síma 893-1863 (Ásta). Miðasala opnar í Versölum klukkustund fyrir […]
Heiður frumsýnt í Kassanum
Þjóðleikhúsið frumsýnir leikritið Heiður laugardaginn 24. janúar nk. í Kassanum við Lindargötu 7. Leikstjóri sýningarinnar er Bjarni Haukur Þórsson. Hér er á ferðinni einstaklega vel skrifað dramatískt verk um hjónabandið, ástina og ábyrgð okkar á eigin hamingju. Leikarar í sýningunni eru Anna Kristín Arngrímsdóttir, Arnar Jónsson, María Ellingsen og Sólveig Arnarsdóttir.
Almennur félagsfundur hjá Leikfélagi Kópavogs
Leikfélag Kópavogs heldur almennan félagsfund laugardaginn 24. janúar kl. 14.00 í Leikhúsinu að Funalind 2. Á dagskrá er kynning á starfsemi félagsins fram á vor. Markmiðið er öðrum þræði að kanna hverjir ætla sér að taka þátt í þeim verkefnum sem framundan eru. Nýir félagar eru sérstaklega boðnir velkomnir. Þörf er á félögum í ýmis […]
Leikfélag Selfoss æfir Sjóræningjaprinsessuna
Æfingar standa nú yfir hjá Leikfélagi Selfoss á nýju íslensku barnaleikriti sem hlotið hefur nafnið Sjóræningjaprinsessan. Höfundur og leikstjóri er Ármann Guðmundsson en hann semur einnig tónlist verksins ásamt Guðmundi Svafarssyni. Sýnt verður í Litla leikhúsinu við Sigtún og frumsýning er áætluð 20. febrúar.
Skrautlegt heimilislíf og grátbroslegar persónur
Magnús Þór Jónsson brá sér á sýningu hjá Leikfélagi Ólafsvíkur á leikritinu Taktu lagið Lóa og stóðst ekki mátið að skrifa um upplifun sína af sýningunni: Síðastliðið föstudagskvöld frumsýndi Leikfélag Ólafsvíkur leikritið Taktu lagið Lóa í Félagsheimilinu Klifi. Verkið er eftir Jim Cartwright en er í leikstjórn Gunnsteins Sigurðssonar. Í stuttu máli sagt má lýsa […]
Fyrsti samlestur á Fúsa Froskagleypi
Leikfélag Hafnarfjarðar hyggst setja upp nú í vetur barnaleikritið Fúsa Froskagleypi sem byggt er á samnefndri sögu danska rithöfundarins Ole Lund Kirkegaard. Lárus Vilhjálmsson, leikstjóri verksins, ætlar að halda fyrsta fund vegna Fúsa Froskagleypis á laugardaginn næstkomandi (17. janúar) klukkan 12:00 í Gamla Lækjarskóla í Hafnarfirði.
Ódauðlegt verk um samhengi hlutanna frumsýnt
Áhugaleikhús atvinnumanna frumsýnir sjónleikinn Ódauðlegt verk um samhengi hlutanna föstudaginn 16. janúar kl. 17 í Nýlistasafninu. Verkið er hluti af fimm verka röð ódauðlegra leikverka um hegðun og eðli mannsins og er annað í röðinni. Höfundur og leikstjóri verksins er Steinunn Knútsdóttir um útlit sér Ilmur Stefánsdóttir.
Blúndur og blásýra í Þorlákshöfn
Föstudagskvöldið 16. janúar n.k. mun Leikfélag Ölfuss frumsýna sakamálafarsann Blúndur og blásýru eftir Joseph Kesselring. Leikritið sem er í fullri lengd verður sýnt í Versölum í Ráðhúsi Ölfuss. Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson og með hlutverk fara Aðalbjörg Jóhanna Helgadóttir, Ásta Margrét Grétarsdóttir, Daníel Haukur Arnarsson, Hulda Gunnarsdóttir, Júlía Káradóttir, Magnþóra Kristjánsdóttir, Ólafur Hannesson, Ragnheiður Helga Jónsdóttir, Þórður […]
Yfir 1900 gestir á Emil!
Emil í Kattholti er engum líkur og er gríðarlega vinsæll. Nú hafa yfir 1900 gestir komið í gamla Samkomuhúsið á Húsavík og séð hann festa höfuðið í súpuskál, hífa Ídu systur sína upp í flaggstöng og aðstoða Línu vinnukonu í tannvandræðum. En þess má geta að íbúafjöldi Húsavíkur er um 2400. Sýningarnar hjá Leikfélagi Húsavíkur […]
Hjólastólasveitin rúllar yfir á Selfoss
Fjórir hjólastólar ásamt fríðu föru-nauti, MU-MÚ, Rampusi og Stúfi hinum eina sanni sem neitar að fara til fjalla, leggja land undir fót og herja á Selfyssinga og nærsveitarmenn með sínu ærlega og frumsamda gríni í janúarbyrjun 2009. Uppistandararnir eru fjórir fjörugir einstaklingar sem nota allir hjólastól, á alveg einstakan hátt! Þeir verða með uppistand eða […]
Jesús Guð Dýrlingur í Félagsheimili Seltjarnarness
Leikfélagið Grímnir í Stykkishólmi hefur að undanförnu sýnt rokkóperuna Jesús Guð Dýrlingur eftir Andrew Lloyd Webber og Tim Rice í þýðingu Níelsar Óskarssonar. Leikstjóri er Guðjón Sigvaldason. Nú hefur verið ákveðið að sýna 3 sýningar í Félagsheimili Seltjarnes um næstu helgi. Sýningarnar verða sem hér segir: Laugardaginn 10. janúar kl. 19:00 og 22:00 og sunnudaginn […]
Sveinki snýr aftur
Leikfélag Kópavogs sýndi Skugga-Svein við góða aðsókn fyrir jól og og hefur verið ákveðið þar á bæ að bjóða 3 aukasýningar þeim sem misstu af. Sýningarnar verða sun. 11. fim. 15. og föstudaginn 16. janúar. Skugga-Sveinn sem er í leikstjórn Ágústu Skúladóttur er sýndur í nýju leikhúsi í Funalind í Kópavogi. Nánari upplýsingar um sýninguna […]
Sumarljós í vetrarmyrkri
Jólafrumsýning Þjóðleikhússins er leikgerð byggð á skáldsögunni Sumarljós, og svo kemur nóttin eftir Jón Kalman Stefánsson. Leikritið Sumarljós verður frumsýnt á Stóra sviðinu á annan í jólum í leikstjórn Hilmars Jónssonar, sem jafnframt er höfundur leikgerðarinnar. Í Sumarljósi kynnumst við íbúum í litlu íslensku þorpi. Hversdagslífið þar reynist fullt af stórviðburðum því undir kyrrlátu yfirborði […]
Tveggja helga ljósanámskeið
Leiklistarskóli Bandalags íslenskra leikfélaga auglýsir: Ljósanámskeið, kennari Egill Ingibergsson Námskeiðið er fullbókað og 3 á biðlista kl. 9.20 þann 9. janúar! Haldið í Listaháskóla Íslands, Sölvhólsgötu 13, 101 Reykjavík, dagana 23. – 25. janúar og 14. og 15. febrúar 2009. Hádegishlé og kaffi eftir því sem við á. Þátttökugjald er 29.800.- á mann fyrir báðar […]
Margt smátt haldin 23. maí 2009
Stuttverkahátíð Bandalags íslenskra leikfélaga verður haldin, í fimmta skipti í samvinnu við Borgarleikhúsið, laugardaginn 23. maí nk. Hátíðin verður með svipuðu sniði og síðasta hátíð, sýningar um daginn og hátíðarsamkoma um kvöldið. Öll aðildarfélög Bandalagsins eru hvött til að senda sýningar á hátíðina og er þeim bent á að hjá þjónustumiðstöð Bandalagsins er til mikið […]
Jólagjöf leikhúsáhugamannsins
Nýlega kom út bókin Allt fyrir andann, Saga Bandalags íslenskra leikfélaga 1950-2000. Þar er rakin saga Bandalagsins í 50 ár en allt frá stofnun hefur hreyfingin verið öflugur bakhjarl leikfélaganna í landinu og tilkoma hennar blés nýju lífi í leikstarf úti um allt land. Greint er frá aðdraganda og stofnun Bandalagsins, upphafsárum þess og fyrstu […]
Síðustu sýningar á Jesús Guð Dýrlingur
Leikfélagið Grímnir Stykkishólmi hefur að undanförnu sýnt rokkóperuna Jesús Guð Dýrlingur eftir Andrew Lloyd Webber og Tim Rice í þýðingu Níelsar Óskarssonar. Leikstjóri er Guðjón Sigvaldason.