Harry og Heimir á Akureyri
Nú er komið að því að þeir félagar Harry og Heimir sæki Akureyri heim. Þetta sprenghlægilega svakamálaleikrit verður sýnt í Samkomuhúsinu og verður fyrsta sýningin 5. nóvember. Harry og Heimir er gestasýning frá Borgarleikhúsinu, þar sem hún hefur verið sýnd fyrir troðfullu húsi alls 125 sinnum.
Beðið eftir græna kallinum
Unglingadeild Leikfélags Kópavogs frumsýnir leikritið Beðið eftir græna kallinum laugardaginn 30. október. Gríma Kristjánsdóttir leikstýrir sex manna hópi ungra leikara í verkinu sem samið er í spunavinnu af leikstjóra og hópi. Leikritið fjallar um hóp fólks sem notar öll brögð til að komast yfir það sem það girnist.
Ódó á gjaldbuxum snýr aftur
Einleikurinn Ódó á gjaldbuxum verður tekið aftur til sýninga og sýnt í Tjarnarbíó. fimmtudaginn 28., föstudaginn 29., laugardaginn 30. og sunnudaginn 31. október kl. 20. Leikstjóri, höfundur, leikmyndar- og búningahönnuður er Ásdís Thoroddsen. Leikari er Þórey Sigþórsdóttir
Áhugaleikhúss atvinnumanna sýnir Október
Október, örverk um upp-reisn verður sýnt í beinni útsendingu á www.herbergi408.is kl. 12.30 föstudaginn 29. október frá Útgerð Hugmyndahús háskólanna við Grandagarð. Áhorfendur eru boðnir velkomnir í Útgerðina til að upplifa sjónleikinn með berum augum eða sitja í sínu umhverfi fyrir framan tölvuna og fylgjast með í beinni útsendingu. Leikstjóri er Steinunn Knútsdóttir.
Frumsýningu Leikfélags Ölfuss á Stútungasögu frestað
Frumsýningu Leikfélags Ölfuss á Stútungasögu, sem vera átti í kvöld, þriðjudaginn 26. október kl. 20.00, hefur af óviðráðanlegum orsökum verið frestað til 2. nóvember. Leikritið er eftir fjóreykið Ármann Guðmundsson, Hjördísi Hjartardóttur, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason og er paródía á Sturlungaöldina. Segir þar frá ástum og ofbeldi, klækjum og klaufaskap, hetjuskap og hálfvitagangi auk […]
Ódauðlegt verk um draum og veruleika frumsýnt 27. október
Sjónleikur Áhugaleikhúss atvinnumanna, Ódauðlegt verk um draum og veruleika, verður frumfluttur Miðvikudaginn 27.október í Útgerð Hugmyndahúss háskólanna. Verkið er fjórða í röð fimm Ódauðlegra verka um mannlegt eðli og tilvist og gerist á huglægum stað handan tíma og rýmis. Verkið spyr hvort sé raunverulegra, það sem fer fram í huga fólks eða það sem sýnilega […]
Barnaleikrit 10 haust í röð og af því tilefni lægra miðaverð
Nú í haust hefur Leikfélag Sauðárkróks sett upp barnaleikrit í 10 ár í röð. Stjórn LS hefur ákveðið að halda upp á þessi tímamót með því að bjóða áhorfendum sínum miða á Jón Odd og Jón Bjarna á einungis 1000 krónur! Frumsýning á Jóni Oddi og Jóni Bjarna verður í Bifröst sunnudaginn 31. október kl. […]
Leikfélagið Skagaleikflokkurinn sýnir Fiskar á þurru landi
Föstudaginn 22. október frumsýnir Leikfélagið Skagaleikflokkurinn Fiska á þurru landi eftir Árna Ibsen í leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Sýningin hefst kl. 20 og er sýnt í Arctic-húsinu, Vesturgötu 119. Þetta er verk með undirtitilinn ólíkindagamanleikur og leikstjórinn fer skemmtilega leið í uppsetningunni, þar sem dansað er á línunni milli raunveruleikans og fáranleikans, en einnig er sótt […]
Ný íslensk ópera frumsýnd
Ný íslensk ópera, Hlini, verður frumsýnd laugardaginn 23. október í Iðnó. Flytjendur eru nemendur í Tónlistarskólanum í Reykjavík. Höfundur texta og tónlistar er Þórunn Guðmundsdóttir, en þetta er þriðja óperan sem Tónlistarskólinn í Reykjavík setur upp eftir hana. Líkt og í fyrri óperum sækir Þórunn söguefnið í íslenskan þjóðararf og notar hið alþekkta ævintýri um […]
Tvær danssýningar í Tjarnarbíói
Fimmtudaginn 21. okt kl. 20 verða tvær danssýningar sýndar í Tjarnarbíói, Singletrack eftir Jacek Luminski flutt af dönsurum ÍD og Colorblind eftir Sigríði Soffíu með dönsurum frá Silesian Dance Theatre. Þessar sýningar eru hluti af Dance Bridge verkefni Silesian Dance Theatre Pólandi, ÍD og SL á Íslandi og Samovarteateret Noregi.
Leikfélagið Peðið sýnir Sögur af mannlífsklakanum
Síðastliðinn laugardag frumsýndi Leikfélagið Peðið leikritið Sögur af mannlífsklakanum við frábærar undirtektir áhorfenda. Sýningin fór fram í nýinnréttuðu „leikhúsi“ á Gallerí Bar 46 að Hverfisgötu 46. Þessi leiksýning er 13 verkið sem Peðið setur upp og er höfundur þess Jón Benjamín Einarsson, leikstjóri er Björn Gunnlaugsson og tónlist er samin og flutt af Magnúsi R. […]
Þjónustumiðstöðin hefur aftur starfsemi af fullum krafti
Nú er óðum allt að komast í samt lag á Þjónustumiðstöð Bandalagsins eftir innbrotið á dögunum. Verslunin er aftur opin og komin í fulla starfsemi eftir að hafa aðeins geta veitt lágmarksþjónustu undanfarnar tvær vikur. Ráðstafanir hafa verið gerðar til að forða því að svona lagað komi fyrir aftur, t.d. er ætlunin að setja upp […]
Finnski hesturinn frumsýnt 15. október
Þjóðleikhúsið frumsýnir á föstudaginn Finnska hestinn en leikritið sló rækilega í gegn í heimalandinu þegar það var fyrst sýnt árið 2004. Síðan þá hefur leikritið verið sýnt í fjölmörgum uppsetningum í heimalandinu sem og víðar í Evrópu og Bandaríkjunum. Finnski hesturinn er bráðfyndið og snargeggjað verk um mergjað fjölskyldulíf og mál sem brenna á Íslendingum í dag. […]
Kattholt komið til Ísafjarðar
Litli leikklúburinn fagnar 45 ára afmæli sínu með veglegri uppfærslu á einu vinsælasta barnaleikriti allra tíma Emil í Kattholti eftir sænsku skáldkonuna Astrid Lindgren. Frumsýnt verður í Edinborgarhúsinu á Ísafirði laugardaginn 16. október kl.14. Leikstjóri sýningarinnar er Elfar Logi Hannesson en hann hefur sett á svið fjölmargar vinsælar sýningar fyrir félagið í gegnum árin.
Boð fyrir barnaleiksýningu á Leiklistarhátíð í Norður-Noregi
Bandalagi íslenskra leikfélaga hefur verið falið að velja leiksýningu sem boðið verður að fara á Norræna barnaleiklistarhátíð sem haldin verður í Tana í Norður-Noregi dagana 1.-7. ágúst 2011. Þar er ætlunin að 120 börn frá öllum Norðurlöndunum, baltnesku löndunum þremur, Norðvestur-Rússlandi og Grænlandi komi saman til að þroska sig í menningarlegu, mannlegu og listrænu tilliti.
Fólkið í kjallaranum í Borgarleikhúsinu
Laugardaginn 9. október frumsýnir Borgarleikhúsið nýtt íslenskt leikverk, leikgerð Ólafs Egils Egilssonar á Fólkið í kjallaranum eftir Auði Jónsdóttur. Leikstjóri er Kristín Eysteinsdóttir. Auður Jónsdóttir var fyrsta fastráðna leikskáld Borgarleikhússins og vinnur nú að ritun leikverks fyrir leikhúsið.
Borgarstjóri opnar Tjarnarbíó formlega í dag
Eftir gagngerar endurbætur Reykjavíkurborgar mun Borgastjórinn í Reykjavík opna Tjarnarbíó formlega föstudaginn 8. Okt kl. 17. Við opnunina mun Sirkus Íslands og Margrét Eir skemmta gestum ásamt því að borgarstjóri og Jóhann G. Jóhannsson, formaður SL flytja stutt ávörp. Með þeim breytingum sem Reykjavíkurborg hefur gert á þessu fornfræga húsi hefur aðstaða fyrir listviðburði að […]
Jón Oddur og Jón Bjarni á Króknum
Hjá Leikfélagi Sauðárkróks eru æfingar á barnaleikritinu Jóni Oddi og Jóni Bjarna vel á veg komnar. Tvíburarnir frægu eru hugarfóstur Guðrúnar Helgadóttur en leikritið var fyrst sett upp í Þjóðleikhúsinu 2002 í leikstjórn Þórhalls Sigurðssonar. Stjórn Leikfélags Sauðárkróks tók þá óvenjulegu ákvörðun að ráða til sín tvo leikstjóra til að stýra verkinu, heimafólkið Sigurlaugu Vordísi […]
Aukasýning á Þú ert hér 8. október
Í tilefni af Keðju – alþjóðlegri sviðslistahátíð í Reykjavík þann 8. október verður sýnd ein aukasýning af leikritinu Þú er hér eftir þá Hall Ingólfsson, Jón Atla Jónasson og Jón Páll Eyjólfsson, sem jafnframt leika og leikstýra sýningunni. Sýningin vakti mikla athygli þegar hún var frumsýnd árið 2008 sem svar Borgarleikhússins og Mindgroup við þeim […]
Frumsýning á Rigoletto í Íslensku óperunni
Óperan Rigoletto eftir Giuseppe Verdi verður frumsýnd í Íslensku óperunni næstkomandi laugardagskvöld, 9. október kl. 20. Aðalsöngvararnir í verkinu eru íslenskum óperuunnendum að góðu kunnir, en þeir eru Ólafur Kjartan Sigurðarson sem Rigoletto, en hann hefur haslað sér völl sem einn fremsti óperusöngvari Íslands á erlendri grundu undanfarin misseri, Þóra Einarsdóttir sem Gilda og Jóhann Friðgeir […]
Hauststarf Halaleikhópsins að hefjast
Starfsemi Halaleikhópsins leikárið 2010-11 hefst með félagsfundi í Halanum, Hátúni 12. Kl. 20.00, þann 2. október þar sem verkefni leikársins verða kynnt. Aðalverkefnið er gamanleikurinn Góðverkin kalla eftir þríeykið Ármann Guðmundsson, Þorgeir Tryggvason og Sævar Sigurgeirsson, sem frumsýnt verður eftir áramót, en ráðnir hafa verið tveir leikstjórar til að setja verkið upp, þau Oddur Bjarni […]
Áhugaleikhúss atvinnumanna sýnir September
September, örverk um sekt og sakleysi, verður sýnt í beinni útsendingu á www.herbergi408.is kl. 12.30 fimmtudaginn 30. september frá Útgerð Hugmyndahús háskólanna við Grandagarð. Verkið er níunda örverkið af 12 sem Áhugaleikhús atvinnumanna býður áhorfendum upp á endurgjaldslaust. Verkin taka á áráttum, kenndum og kenjum sem hafa áhrif á mannlega tilvist í Reykjavík 2010 og […]
Hvað býr í pípuhattinum? sýnt í Útgerðinni og Kjarnanum
Hvað býr í pípuhattinum? er lifandi innsetning eða lifandi leikvöllur fyrir börn og fullorðna (eða jafnvel börn á öllum aldri), sem opnaður verður í Útgerðinni, Grandagarði 16, á laugardaginn næstkomandi, þann 2. október. Verkið er unnið af 4 listamönnum sem koma úr hinum ýmsu geirum listaheimsins; Sunnu Schram, myndlistakonu, Hannesi Óla Ágústssyni og Ævari Þór […]
Lokað um óákveðinn tíma
Bandalag íslenskra leikfélaga varð fyrir miklu tjóni þegar brotist var inn á skrifstofu þess á Suðurlandsbrautinni aðfaranótt mánudagsins og öllum tölvubúnaði hennar stolið. Vegna þessa verður skrifstofan lokuð um óákveðinn tíma. Því miður glataðist allt bókhald fyrirtækisins og því þarf að setja upp nýtt sölukerfi áður en hægt verður að opna fyrir verslunina á ný. […]
Leikfélaga Ölfuss æfir Stútungasögu
Æfingar eru hafnar hjá Leikfélagi Ölfuss á gaman- og stríðsleiknum Stútungasögu eftir þau Ármann Guðmundsson, Hjördísi Hjartardóttur, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason. Leikritið gerist undir lok Þjóðveldisaldar og greinir frá hvernig þeir Stútungar, nýorðnir valdamestir allra á landinu, glopra sjálfstæði landsins til Norðmanna fyrir röð óheppilegra tilviljanna og mannlega glópsku. Ætlunin er að frumsýna verkið […]
Bannað börnum í Freyvangsleikhúsinu
Fimmtudaginn 30. september verður erótíska hryllingskómedían Bannað börnum frumsýnd í Freyvangsleikhúsinu í Eyjafjarðarsveit. Bannað börnum sem er leikrit í fullri lengd er nýjasta viðbótin í „Haustverkefni Freyvangsleikhússins“ sem hleypt var af stokkunum síðasta haust með uppsetningu á Memento Mori eftir Hrefnu Friðriksdóttur. Bannað börnum er frumsamið verk eftir fjóra meðlimi Freyvangsleikhússins, þá Daníel Frey Jónsson, […]
Hetja sýnt í Landnámssetrinu
Gamanleikurinn Hetja verður frumsýndur í Landnámssetrinu Borgarnesi þann 25. September næstkomandi. Hetja er einleikur í leikstjórn Víkings Kristjánssonar þar sem Kári Viðarsson fer með öll hlutverkin. Verkið segir frá Landnámsmanninum Bárði Snæfellsás flóknu sambandi þeirra feðga Bárðar og Gests. Sýningin er ýkt og reiðir sig á ímyndunarafl áhofenda sem skipa stórann sess í sýningunni.
Netverkið Herbergi 408 tilnefnt til Evrópuverðlaunanna
Netverkið Herbergi 408 eftir Hrafnhildi Hagalín og Steinunni Knútsdóttur er tilnefnt til Evrópuverðlaunanna, Prix Europa 2010 í flokki nýmiðla. Verkið var frumflutt í netleikhúsinu Herbergi 408, sem stofnað var af höfundum vorið 2009. Netleikhúsið er eina leikhúsið sinnar tegundar hér á landi og má nálgast tilnefnda verkið í leikhúsinu á www.herbergi408.is. Verkið er gagnvirkt leikverk […]
Hitað upp fyrir íslenska menningardaga í Færeyjum
Tveir íslenskir leikhópar, Stopp-leikhópurinn og Tímamótaverksmiðjan, og hljómsveitin Ljótu hálfvitarnir hyggjast heimsækja Færeyjar dagana 24.-26. septemberog halda þar tónleika og sýna leiksýningar. Fyrst er þó ætlunin að hita upp fyrir ferðina hér heima fyrir og afla fjár til ferðarinnar og verða leiksýningarnar Bólu-Hjálmar og Jörundur því sýndar saman í Norræna húsinu kl. 20.00, laugardaginn 18. […]
Kómedíuleikhúsið frumsýnir Bjarna á Fönix
Kómedíuleikhúsið á Ísafirði frumsýnir föstudaginn 17. september einleikinn Bjarni á Fönix á söguslóðum í Alviðru í Dýrafirði. Sýnt verður í gömlu hlöðunni og hefst sýningin stundvíslega klukkan 21:00. Önnur sýning fer svo fram laugardaginn 18. september á veitingastaðnum Talisman á Suðureyri, þar hefst borðhald kl. 19.00 og leiksýning að því loknu um kl. 21.00.
Komið og farið tilnefnt fyrir Íslands hönd á IATA-hátíð
Stjórn Bandalags íslenskra leikfélaga hefur ákveðið að framlag Íslands til IATA leiklistarhátíðarinnar í Tromsö 2011 verði uppsetning Leikfélagsins Peðsins á Komið og farið eftir Samuel Beckett í leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar í íslenskri þýðingu Árna Ibsen. Það verður svo valnefnd á vegum IATA (Alþjóða áhugaleikhúsráðsins) sem sker endanlega úr hvort sýningin verður valin til sýninga í […]
Opið leiklistarnámskeið/leiksmiðja hjá LK
Leikfélag Kópavogs stendur fyrir opnu námskeiði í leiklist nú í september. Í kjölfar námskeiðsins hefjast síðan æfingar á stuttum leikþáttum sem verða frumsýndir í lok október. Námskeiðið er aðallega ætlað þeim sem hafa litla eða enga reynslu af leiklist en er þó opið öllum áhugasömum. Stjórnandi er Hörður Sigurðarson. Námskeiðið er í þremur hlutum og hefst […]
Rocky horror frumsýnt hjá LA
Í kvöld, föstudaginn 10. september, frumsýnir Leikfélag Akureyrar söngleikinn Rocky horror eftir Richard O’Brien í þýðingu Veturliða Guðnasonar. Sýning LA á Rocky Horror verður fyrsta sýningin sem sýnd verður í Hofi, nýju Menningarhúsi á Akureyri. Leikstjóri er Jón Gunnar Þórðarson og um tónlistarstjórn sá Andrea Gylfadóttir.
Úr heimi leiksviðslistanna – Námskeið hjá Endurmenntun HÍ
Í október stendur Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands fyrir námskeiði sem ber yfirskriftina Úr heimi leiksviðslistanna. Fyrirlesari er Jón Viðar Jónsson leiklistarfræðingur. Á námskeiðinu er farið yfir leiklistarsöguna frá fyrstu heimildum um hana, allt til okkar daga. Fyrirlestrarnir verða á mánudögum kl. 20.15, skráningarfrestur er til 27. september 2010 og hægt er að skrá sig hér.
Skepna frumsýnt á Norðurpólnum
Þann 10. September nk. hefjast sýningar á leiksýningunni Skepnu á Norðurpólnum, Bygggörðum 5, Seltjarnarnesi. Skepna er kolsvört kómedía eftir kanadísku leikskáldin Daniel MacIvor og Daniel Brooks. Hún fjallar um misfurðulega einstaklinga sem virðast ekki tengjast við fyrstu sýn. Verkið er einleikur og fer Bjartmar Þórðarson með öll hlutverk sýningarinnar. Leikstjórn er í höndum Guðjóns Þorsteins […]
Leikritunarsjóðurinn Prologos auglýsir eftir umsóknum
Leikritunarsjóðurinn Prologos auglýsir eftir umsóknum vegna sjöttu úthlutunar úr sjóðnum. Umsóknarfrestur er til og með 13. september 2010, en úthlutað verður í október. Annars vegar er auglýst eftir hugmynd að leikriti, hinsvegar eftir hugmynd að leiksmiðju- eða tilraunaverkefni. Nánari upplýsingar og fyrirmæli um gerð umsókna er að finna á heimasíðu Þjóðleikhússins. Umsóknir skal senda með […]
Tjarnarbíó opnað 1. október
Eftir gagngerar endurbætur Reykjavíkurborgar mun Tjarnarbíó opna aftur 1. október nk. en til stóð að loka húsnæðinu fyrir fimm árum vegna slæms ástands. Sjálfstæðu leikhúsin – SL hafa séð um reksturinn í nærri 20 ár fyrir borgina og munu halda því áfram. Eftir stefnumótunarvinnu hjá SL 2003 var ákveðið að gera úttekt á húsnæðinu og […]
Örverk um Ágúst eins og hann leggur sig
Áhugaleikhús atvinnumanna sýnir áttunda örverkið af 12 um áráttur, kenndir og kenjar, fimmtudaginn 26. ágúst kl. 12.30 í Útgerð Hugmyndahúss háskólanna. Verkið, sem heitir Örverk um Ágúst eins og hann leggur sig, er sýnt í beinni útsendingu á veraldarvefnum á slóðinni www.herbergi408.is en þar er jafnframt hægt að skoða fyrri verk úr örverkaröðinni. Leikstjóri er […]
Námskeið í leikhúslýsingu fyrir áhugaleikhús í september
Laugardagana 4., 11. og 18. september frá kl. 9:00 – 13:00 verður boðið upp á námskeið í leikhúslýsingu í Tækniskólanum, Skólavörðuholti. Námskeiðið er ætlað fólki á öllum aldri og verða kennd helstu atriði við hönnun og uppsetningu lýsingar fyrir leiksýningar, tónleika, ráðstefnur o.fl. Fjallað er um eðlisfræði ljóss og litafræði, hugmyndafræði lýsingar, upphengingu og staðsetningar, […]
Leikfélagið Sýnir frumsýnir Allir komu þeir aftur
Leikfélagið Sýnir frumsýnir leikverkið Allir komu þeir aftur í dag, þann 19. ágúst klukkan 18:00 í Indjánagili í Elliðaárdalnum, í samvinnu við Sviðslistahátíðina ArtFart. Áætlað er að hafa sex sýningar alls. Í verkinu mætast nútíð og fortíð í umgjörð náttúraflanna. Sagan sem er tímalaus undirstrikar mannlegt eðli þegar uppreisn og uppgjöf mætast. Leikstjóri er Aldís […]