Í útlegð hjá ömmu
Leikfélag DalvíkurHeima hjá ömmuLeikstjóri: Aðalsteinn Bergdal Leikfélag Dalvíkur er eitt af þessum kraftmiklu áhugaleikfélögum sem við höfum hér norðanlands. 25. mars s.l. frumsýndi Leikfélag Dalvíkur Heima hjá ömmu eftir Neil Simon í leikstjórn Aðalsteins Bergdals. Verkið lýsir óvenjulegu heimilishaldi hjá aldraðri þýskri konu og tveimur sonarsonum hennar í New York árið 1942, en hún neyðist […]
Uppi hvað! – Hjólastólasveitin í Gaflaraleikhúsinu
Miðvikudagskvöldið 13. apríl kl. 20.00 mun uppistandsgengið Hjólastólasveitin enn og aftur tröllríða Gaflaraleikhúsinu og flytja frumsamið grínefni. Fjórir fjörugir uppistandarar – þrír í hjólastólum og einn á skrikkjandi fótum! Gestaleikari kvöldsins er hinn heimsfrægi íslenski uppistandari Ari Eldjárn.
Á svið! sýnt í Ólafsvík
Leikfélag Ólafsvíkur frumsýnir föstudaginn 8. apríl, kl. 20.00 leikverkið Á svið! eftir Rick Abbot í leikstjórn Gunnsteins Sigurðssonar. Sýnt verður í Félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík. 2. sýning verður sunnudaginn 10. apríl kl. 20.30 og þriðja og lokasýningin föstudaginn 15. apríl kl. 20.00
Einkamál Árna Hjartarsonar brátt opinberuð
Einkamál.is er nýjasta leikrit Árna Hjartarsonar. Dramatískur fjölskyldugamaleikur um samtímafjölskyldu í heimatilbúnum vanda sem Hugleikur æfir nú í húsnæði félagsins við Eyjarslóð. Ólíkt mörgum Hugleikshöfundum sækir Árni sér jafnan efnivið í samtímamál, jafnvel þjóðfélagsleg álitamál, og á það stundum til að vera forspár. Af því tilefni er rétt að taka fram að leikritið er skrifað […]
Gaukssaga sýnd í Félagsheimilinu Árnesi
Sagan um Gauk Trandilsson í Stöng var til, hana átti að rita eftir Njálu í Möðruvallabók, en því miður er sagan nú glötuð. Annað hvort brann hún í handritabrunanum mikla í Köbenhavn eða bókin sökk með handritaskipi því er fórst í hafi á þrettándu öld. En nú hefur Vilborg Halldórsdóttir leikkona- og leikstjóri bætt úr […]
Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan sýnt í Miðfirði
Leikfélag ungmennafélagsins Grettis á Laugarbakka í Miðfirði frumsýndi í lok mars farsann Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan eftir Marc Camoletti í þýðingu Sigurðar Atlasonar. Leikstjóri sýningarinnar er Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir. Páskasýning verður laugardag fyrir páska 23. apríl í félagsheimilinu Ásbyrgi á Laugarbakka.
Fúsi froskagleypir í Hafnarfirði
Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýndi 2. apríl barnaleikritið Fúsa Froskagleypi eftir Ole Lund Kirkegaard í Gaflaraleikhúsinu. Verkið er bráðfjörugt barna og fjölskylduleikrit með skemmtilegri tónlist Jóhanns Moravek undir leikstjórn Bjarkar Jakobsdóttur. Leikritið var frumsýnt hjá félaginu fyrir 25 árum í Bæjarbíó við fádæma vinsældir. Yfir 20 leikarar og tónlistarmenn taka þátt í sýningunnni sem afar litrík og […]
Bjart með köflum frumsýnt 8. apríl
Þjóðleikhúsið frumsýnir þann 8. apríl, Bjart með köflum, nýtt leikrit með söngvum eftir Ólaf Hauk Símonarson. Ólafur Haukur hefur skrifað mörg geysivinsæl leikrit sem sýnd hafa verið í Þjóðleikhúsinu á síðustu áratugum, meðal annars Gauragang, Þrek og tár, Hafið, Græna landið og Bílaverkstæði Badda, sem voru sett á svið undir stjórn Þórhalls Sigurðssonar. Þeir félagar […]
Perluportið – óperuskemmtun fyrir alla fjölskylduna
Fjórir heimilisleysingjar gramsa í ruslatunnum í óhrjálegu porti. Hverjum hefði dottið í hug að þar leyndust skínandi perlur óperubókmenntanna? Tónlist úr óperum á borð við Brúðkaup Fígarós, Gianni Schicchi, La traviata, Cosi fan tutte, Rakarann í Sevilla – og að sjálfsögðu Perlukafarana, öðlast nýtt líf í stórskemmtilegu sýningu úr smiðju Ágústu Skúladóttur (Ballið á Bessastöðum, […]
Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga 2011
Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga verður haldinn í Bæjarleikhúsinu Mosfellsbæ dagana 30. apríl og 1. maí 2011. Einþáttungahátíð verður haldin á sama stað föstudaginn 29. apríl. Dagskrá aðalfundar er í lögum Bandalagsins. Samhliða aðalfundi fer fram sýning á leikskrám og veggspjöldum leikársins 2009-2010. Val Þjóðleikhússins á Athyglisverðustu áhugasýningu leikársins verður að venju kynnt á hátíðakvöldverðinum.
Undir fullum seglum!
Leikfélag HörgdælaMeð fullri reisnLeikstjóri: Jón Gunnar Þórðarson Undanfarnar vikur hefur Leikfélag Hörgdæla sýnt gamanleikinn Með fullri reisn fyrir fullu húsi bæði föstudags- og laugardagskvöld og oftar en ekki bætt við miðnætursýningum til að anna eftirspurn eftir miðum á þessa frábæru skemmtun. Með fullri reisn er 10 ára gamalt sviðsverk bandaríska leikrita- og söngleikjaskáldsins Terrence McNally […]
Mannsins myrka hlið í Borgarfirði
Leiklistarfélag Nemendafélags Menntaskóla Borgarfjarðar frumsýndi sl. föstudag Mannsins myrku hlið sem er leikriti með söngvum, byggt á plötunni Dark side of the moon með Pink Floyd. Verkið er frumsamið af Bjarti Guðmundssyni, sem jafnframt er leikstjóri þess, og leikhópnum. Frumsýningin gekk framar öllum vonum og ætlaði þakið að rifna af húsinu þegar sýningunni lauk, áhorfendur stóðu […]
Leikhúsið í þjónustu mannúðar
Ávarp á alþjóðlega leiklistardeginum 27. mars 2011 Samkoman í dag, á alþjóðlegum degi leiklistarinnar, er sönn mynd af ótrúlegri getu leikhússins að virkja fólk og byggja brýr. Hafið þið einhvern tíman hugsað út í það hve öflugt tæki leikhúsið gæti verið til friðar og sátta? Ríkisstjórnir fjárfesta ógnarsummur í friðarsveitum á átakasvæðum, en fáir líta […]
Ávarp á Alþjóðlega leikhúsdeginum 27. mars 2011
Það er merkilegt að í hinni efnahagslegu kreppu sem ríkt hefur á Íslandi síðustu misseri, hefur listin blómstrað sem aldrei fyrr. Aðsóknarmet eru sett í leikhúsunum, gestafjöldi á tónleika og myndlistarsýningar eykst og fleiri bækur seljast en nokkru sinni fyrr. Það hefur sýnt sig að fólk forgangsraðar öðruvísi en áður og leitar í vaxandi mæli […]
Síðustu forvöð á Bót og betrun
Leikfélag Kópavogs hefur undanfarið sýnt fimmhurðafarsann Bót og betrun eftir Michael Cooney við rífandi góðar viðtökur. Aðeins þrjár sýningar eru nú eftir áður en sýningin fer í mánaðarlangt hlé. Uppselt er á sýningar fim. 24. og fös. 25. mars en enn eru lausir miðar sunnudaginn 27. mars. Sýnt er í Leikhúsinu að Funalind 2 í Kópavogi.
Leiklist – uppsetningar, sýningar og aðsókn 2009/2010
Samanlagður fjöldi gesta á leiksýningar leikhúsa, atvinnuleikhópa og áhugaleikfélaga innanlands var 416 þúsund á síðasta leikári. Það jafngildir því að hver landsmaður hafi séð eina leiksýningu á leikárinu. Áhorfendum á síðasta leikári fjölgaði um 61 þúsund frá því á leikárinu á undan, eða um 17 af hundraði. Á síðasta leikári voru færðar á fjalirnar 236 […]
Havgird í Gaflaraleikhúsinu 16. og 17. apríl
Havgird, færeyska sýningin sem Ágústa Skúladóttir leikstýrir og sló eftirminnilega í gegn á NEATA-hátíðinni síðastliðið sumar, er á leið til Íslands! Leikritið verður sýnt í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði 16. og 17. apríl. Sýningin er afar sjónræn þar sem meðal annars er notast við tónlist, trúðleik og brúðuleik til að skapa hversdagslegan töfraheim sem slunginn er […]
Heima hjá ömmu á Dalvík
Leikfélag Dalvíkur frumsýnir föstudaginn 25. mars næstkomandi leikverkið Heima hjá ömmu eftir bandaríska leikskáldið Neil Simon, sem á sínum tíma fékk bæði Pulitzer- og Tony verðlaunin fyrir verkið. Sýnt er í Ungó og eru áætlaðar eru 11 sýningar á verkinu. Leikstjóri er Aðalsteinn Bergdal.
Kvikmyndin Glæpur og samviska frumsýnd
Ný íslensk kvikmynd, Glæpur og samviska, verður frumsýnd í Valaskjálf á Egilsstöðum föstudaginn 25. mars en hún er unnin í samvinnu við Leikfélag Fljótsdalshéraðs. Þessi mynd hefur verið í vinnslu í fjögur ár og er alfarið tekin á Austurlandi. Leikstjórinn Ásgeir Hvítaskáld hefur þjálfað og ræktað áhugamannaleikara í hlutverkin og notað hið stórbrotna landslag á […]
Ávarp á alþjóðlegum leikhúsdegi barna, 20. mars 2011
Börnin grípa andann á lofti þegar Lilli klifurmús rétt sleppur upp í tré undan fantinum Mikka og skömmu síðar veltast þau um af hlátri þegar Lilli leikur á refinn. Það er gott að vita af því að þó maður sé lítill þá er maður einhvers megnugur. Það er líka gott að eiga einhversstaðar athvarf þar […]
Farsæll farsi í Samkomuhúsinu
Þessi frábæri gamanleikur var frumsýndur 11. mars fyrir fullu húsi og fékk geysigóðar viðtökur. Gamanleikurinn er bandarískur að uppruna eftir þá LaZebnik og Day, en hefur verið íslenskaður og staðfærður af Spaugstofumanninum Karli Ágústi Úlfssyni. Leikstjóri er María Sigurðardóttir, leikhússtjóri LA og leikarar eru Edda Björg Eyjólfsdóttir og Jóhann G. Jóhannsson sem sló svo eftirminnilega […]
Stúdentaleikhúsið frumsýnir DNA á Norðurpólnum
Laugardaginn 19. mars frumsýnir Stúdentaleikhúsið leikverkið DNA sem er eftir ungan breskan höfund að nafni Dennis Kelly. Dennis Kelly skrifaði meðal annars Munaðarlaus og Elsku barn sem er verið að sýna í Borgarleikhúsinu um þessar mundir. Leikstjóri er Sara Marti Guðmundsdóttir en aðstoðarleikstjórn er í höndum Sigríðar Eir Zophoníasardóttur.
Umf. Skallagrímur sýnir Ferðin á heimsenda
Föstudagskvöldið 11. mars sl. frumsýndi leikdeild Umf. Skallagríms leikritið Ferðin á heimsenda eftir Olgu Guðrúnu Árnadóttur, í leikstjórn Rúnars Guðbrandssonar en þetta fjórða verkið sem hann leikstýrir hjá leikdeildinni. Leikritið er fallegt og hugljúft ævintýri með söngvum, tónlist og glensien höfðar til allra aldurshópa.
Síðustu sýningar á Með vífið í lúkunum
Ungmennafélag Reykdæla hefur undanfarið sýnt leikritið Með vífið í lúkunum eftir Ray Cooney við frábærar undirtektir áhorfenda. Nú eru einungis þrjár sýningar eftir, fimmtudaginn 17. mars, föstudaginn 18. mars og laugardaginn 19.mars og því hver að verða síðastur að skella sér á þennan bráðfyndna farsa og hlæja svolítið. Sýningar fara fram í félagsheimilinu Logalandi í Reykholtsdal.
Brúðuleikhúshátíðin BIP í Borgarnesi
Helgina 31. mars – 3. apríl verður haldin fyrsta alþjóðlega brúðuleikhúshátíðin í Brúðuheimum; B I P (Borgarnes International Puppet Festival). Hátíðin er haldin í húsakynnum Brúðuheima í Englendingavíkinni, en hún mun einnig teygja anga sína víðs vegar um gamla bæinn í Borgarnesi og glæða hann lífi með fjölbreyttum dagskráratriðum. Í ár er lögð megináhersla á […]
Sýningum lýkur á Góðverkin kalla!
Allra síðustu sýningar Halaleikhópsins á verkinu Góðverkin kalla! munu fara fram 19. og 20. mars næstkomandi. Uppselt er á fyrri sýninguna. Sýningin hefur hlotið mikið lof og mikið hlegið enda hefur verið nánast fullt út úr dyrum á hverri sýningu. Sýnt er í húsnæði Halaleikhópsins að Hátúni 12 og hefjast sýningar kl. 17:00.
Málþing um Heddu Gabler í Þjóðleikhúsinu
Þjóðleikhúsið og norska sendiráðið standa fyrir málþingi um Heddu Gabler eftir Henrik Ibsen í Kassanum í Þjóðleikhúsinu á sunnudaginn kl. 15. Málþingið er haldið í tengslum við sýningu leikhússins á verkinu. Frá því að verkið var fyrst sýnt árið 1891 hafa fjölmargar frægar sýningar verið á því víða um heim, og það er annað af […]
Leikfélag Keflavíkur frumsýnir nýja revíu
Föstudaginn 18. mars frumsýnir Leikfélag Keflavíkur revíuna Bærinn bræðir úr sér. Höfundar eru meðlimir Breiðbandsins ásamt leikfélagsdrengjunum Arnari Inga og Gustav Helga. Leikstjóri er Helga Braga Jónsdóttir og er þetta í þriðja sinn sem hún setur verk á svið með félaginu. Æfingar hafa staðið yfir síðan í janúar og er allt að smella saman.
Góði dátinn lofaður í hástert
Um þessar mundir standa yfir sýningar á leikritinu Góða Dátanum Svejk í Freyvangsleikhúsinu Eyjafjarðarsveit. Leikritið var frumsýnt þann 25. febrúar síðastliðinn og hefur verkið vakið lukku meðal áhorfenda jafnt sem gagnrýnenda. Eftirfarandi eru nokkrar umsagnir um sýninguna.
Vel heppnað námskeið á Sauðárkróki
Dagana 7. – 11. mars stóð Leikfélag Sauðárkróks fyrir leiklistarnámskeiði í húsnæði sínu Leikborg. Leiðbeinandi var Jakob S. Jónsson sem mun leikstýra Sæluvikuverkefni LS þetta árið, Svefnlausa brúðgumanum. Alls tóku 18 manns þátt í námskeiðinu, allir með einhverja leikreynslu en mismikla þó. Tíðindamaður heimsíðu leikfélagsins (www.skagafjordur.net/LS) leit við á námskeiðinu fyrsta kvöldið, spurði þátttakendur nokkurra […]
Fimmhurða farsi í Kópavogi
Bót og betrunLeikfélag KópavogsLeikstjóri: Hörður Sigurðarson Leikfélag Kópavogs sýnir farsa þetta vorið. Það er verk Michael Cooney, Cash on Delivery sem birtist hér í þýðingu Harðar Sigurðarsonar sem Bót og betrun. Verkið hefur hlotið góðar viðtökur beggja vegna Atlantsála. Hörður Sigurðarson leikstýrir einnig. Helsti kostur þessa leikverks, kannski umfram önnur sömu tegundar, er að […]
Leikdeild Umf. Gnúpverja

Formaður: Gylfi Sigríðarson gylfi1sig@gmail.com 8691118 Gjaldkeri: Ingvar Hjálmarsson ingvar@skeidgnup.is 8919597 Ritari: Magnea Gunnarsdóttir thrandarholt@gmail.com 8685569
Aukasýning á Allskonar Elvis
Uppselt hefur verið á þær fimm sýningar sem búnar eru af Allskonar Elvis hjá Leikfélagi Mosfellssveitar og uppselt er á föstudag 18. mars n.k. en búið er að setja á tvær sýningar til viðbótar föstudaginn 25. mars klukkan 20:00 og 23:00. Nánar verður auglýst síðar með framhald. Miðapantanir í síma 5 66 77 88, miðaverð […]
Lífshættulegur þjóðsagnaheimur
Leikfélag SelfossHið dularfulla hvarf Hollvinafélagsins Leikstjóri: Gunnar Björn Guðmundsson Hið dularfulla hvarf Hollvinafélagsins eftir Gunnar Björn Guðmundsson og leikhóp LS er skemmtileg tilraun til að færa íslenskar þjóðsögur og íslenska þjóðtrú í búning leikritsins. Ef verkinu væri léður fallegri endir mætti hugsa sér það sem fræðsluefni fyrir börn og þá ekki síður setja upp á […]
Aukasýningar á Súldarskeri og Svikaranum
Nú er tveimur sýningum að ljúka í Tjarnarbíói. Súldarsker eftir Sölku Guðmundsdóttur verður sýnt 11. og 12. mars og Svikarinn í uppsetningu Lab loka verður með síðustu sýningar 13. og 17 mars. Súldarsker var frumsýnt um miðjan janúar og hefur gengið fyrir fullu húsi síðan þá og hefur þurft að bæta við 8 aukasýningum til að […]
Hárið í Hofi um páskana
Söngleikurinn Hárið verður fumsýndur á vegum Silfurtunglsins í Menningarhúsinu Hofi þann 15. apríl og verður sýndur mjög þétt yfir páskana. Þetta er einn vinsælasti söngleikur heims og höfðar til fólks á öllum aldri. Leikstjóri er Jón Gunnar Þórðarson en hann hefur tvisvar sinnum áður sett upp sýningar undir merkjum Silfurtunglsins, Fool For Love í Austurbæ […]
Bót og betrun hjá Leikfélagi Kópavogs
Leikfélag Kópavogs frumsýnir föstudaginn 11. mars, sprenghlægilegan gamanleik sem ber yfirskriftina Bót og betrun – fimm hurða farsi úr félagslega kerfinu. Verkið er eftir Michael Cooney, son farsameistarans Ray Cooney sem er íslenskum leikhúsgestum að góðu kunnur, m.a. fyrir verkið Nei, ráðherra sem sýnt er í Borgarleikhúsinu um þessar mundir. Hörður Sigurðarson þýddi verkið úr […]
Hedda Gabler frumsýnt í Kassanum
Þjóðleikhúsið frumsýnir þann 10. mars leikritið Hedda Gabler eftir Henrik Ibsen í Kassanum. Í þessu sígilda leikriti ræðst Ibsen að kjarna þeirra borgaralegu lífsgilda sem móta líf nútímamanna og stýra löngunum þeirra og ótta. Að lokinni sex mánaða brúðkaupsferð kemur Hedda Gabler heim í glæsilega einbýlishúsið sitt. Fastráðning eiginmanns hennar við háskólann er á næsta […]
Með vífið í lúkunum í Reykholtsdal
Leikhópur Ungmennafélags Reykdæla frumsýndi leikritið „Með vífið í lúkunum“ eftir breska leikskáldið Ray Cooney í Logalandi í Reykholtsdal í 4 mars sl. Áhorfendur létu í ljós ánægju sína með grín og glens og mátti heyra hlátrasköllin út um allan sal þegar mest gekk á uppi á sviðinu. Þar túlkuðu leikendur litríkan farsa sem snýst um […]
Leiklistarskóli Bandalagsins 2011

Skólinn starfar að Húnavöllum í A-Húnavatnssýslu dagana 11. til 19. júní. Haldin verða þrjú námskeið og boðið verður uppá aðstöðu fyrir höfunda. Í fyrra var lögð áhersla á byrjendanámskeið og fylgt er þeirri hefð að bjóða upp á framhaldsnámskeið í kjölfarið. Ágústa Skúladóttir mun því mæta aftur og kenna Leiklist II sem byggir ofan á […]