MP5 í Tjarnarbíói

Leikhópurinn Sómi þjóðar frumsýnir þann 5. desember í Tjarnarbíói leikritið MP5 eftir þá Hilmir Jemsson og Tryggva Gunnarsson í leikstjórn þeirra beggja. MP5 gerist um borð í alþjóðlegri geimstöð í nálægri framtíð. Lífið í geimnum er ljúft, enda samanstendur þetta litla afmarkaða samfélag af vel menntuðum, víðsýnum, friðsömum og umburðalyndum einstaklingum.
Ævintýrið um Augastein í Tjarnarbíói

Ævintýrið um Augastein var upphaflega samið á ensku og frumsýnt í Drill Hall leikhúsinu í London 2002, en ári síðar var verkið frumflutt í íslenskri útgáfu í Tjarnarbíói. Þá kom ævintýrið einnig út á bók, sem notið hefur mikilla vinsælda æ síðan. Verkið byggir á sögunum um sveinstaulana þrettán, syni Grýlu og Leppalúða, sem áttu […]
Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

Grimas Foundation er léttur, mattur, fljótandi húðfarði sem er vel þekjandi. Hentar sérlega vel í mikilli nálægð, fyrir kvikmyndir og ljósmyndun t.d. Liturinn er í 35 ml. túbum og til í 3 litatónum sem kosta 1.290.- stk. Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert […]
Árleg aðventusýning Þjóðleikhússins

Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum hefur verið sýnd á aðventunni við miklar vinsældir allt frá frumsýningu á aðventunni 2005. Fyrsta sýningin í ár verður laugardaginn 29. nóvember og er hún númer 220 í röðinni. Uppselt hefur verið á nær allar sýningar fyrri ára og hafa 22.000 gestir á öllum aldri komið í leikhúsið á aðventunni í […]
Jesús litli kemur með jólin

Sýningar á Jesú litla eru orðnar fastur liður í undirbúningi jólanna hjá mörgum Íslendingum og hann snýr aftur á Litla sviðið 27. nóvember. Þetta er í fimmta sinn sem Jesús litli er sýndur í Borgarleikhúsinu í aðraganda jólanna og ekkert lát á vinsældum hans. Sýningin var ótvíræður sigurvegari Grímunnar árið 2010, hlaut alls 7 tilnefningar […]
Jólasýning Borgarbarna í Iðnó

Jólasýning Borgarbarna 2014 heitir Mamma Gjé?. Þetta er níunda árið sem Borgarbörn setja upp jólasöngleik sem ætlaður er öllum aldurhópum og stílað er inn á fjölskylduskemmtun. Þessi skemmtilegi jólasöngleikur inniheldur fjölmörg vinsæl erlend lög í íslenskum búningi, óvæntar uppákomur og kraftmikla dansa. Leikstjóri og höfundur handrits er Erla Ruth Harðardóttir og henni til aðstoðar er […]
Strandaglópar í Kópavogi

Unglingadeild Leikfélags Kópavogs sýnir frumsamið leikrit er nefnist Strandaglópar, fimmtudaginn 27. nóvember kl. 19.00. Leikritið segir frá hópi fólks sem verður skipreika á eyðieyju þar sem ýmsar hættur leynast. Leikstjóri er Guðmundur L. Þorvaldsson og Helga Björk Pálsdóttir hefur verið honum til aðstoðar. Sex leikarar taka þátt í sýningunni sem tekur um 30 mín. í flutningi.. […]
Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

Body Illustration Make-up Colors frá Kryolan, eða Tattoo-litir eins og við köllum þá, eru sérstakir litir sem nota má til að teikna á húð t.d. gerfi tattoo eða myndir sem eiga að endast. Þegar liturinn er þornaður á húðinni þá smitar hann ekki, er vatnsheldur og endist lengi. Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík […]
Hugleikur með óperu til Belgíu

Sýning leikfélagsins Hugleiks, Hin einkar hörmulega ópera um grimman dauða Píramusar og Þispu, hefur verið valin til þátttöku á leiklistarhátíð Alþjóða áhugaleikhúsráðsins, AITA/IATA í Belgíu næsta sumar. Á hátíðinni verða sýningar frá öllum heimshornum, en hún er haldin annað hvert ár og er ein helsta hátíð áhugaleikhúshreyfingarinnar í heiminum.
Coming Up í Tjarnarbíói

Verðlaunadansverkið Coming Up verður sýnt aftur einu sinni í nóvember í Tjarnarbíó í nóvember. Coming Up er samstarf tveggja danshöfunda og dansara, þeirra Katrínar Gunnarsdóttur og Melkorku Sigríðar Magnúsdóttur. Verkið var frumsýnt árið 2013 í Tjarnarbíó og fékk frábærar viðtökur bæði áhorfenda og gagnrýnenda.Coming Up hlaut grímuverðlaunin 2013 í flokknum „danshöfundar ársins“ og var verkið […]
Byrjendanámskeið í leiklist í Hafnarfirði

Mánudaginn 24. nóvember hefst leiklistarnámskeið hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar fyrir fullorðna 18 ára og eldri. Þetta námskeið er ætlað byrjendum í leiklist og er öllum opið og að kostnaðarlausu. Leiðbeinandi á námskeiðinu er Gísli Björn Heimisson, formaður LH og á námskeiðinu verður leitast við að kynna fyrir nemendum hin ýmsu form leiklistar. Þetta er kvöldnámskeið og […]
Hamlet litli fyrir blinda og heyrnarlausa

Verðlaunasýningin Hamlet litli er kominn í sýningu aftur og vegna fjölda fyrirspurna var ákveðið að bjóða aftur upp á sýningu fyrir blinda og heyrnarlausa. Sú sýning verður sunnudaginn 23. nóvember kl. 17.00 og verður hún táknmálstúlkuð og sjónlýst. Ath. aðeins þessi eina sýning.
Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

Dirt Paste frá Grimas er gulleitt, þykkt og slímkennt efni sem má bera beint á húðina til að búa til ýmsa „effekta”. Það er hægt að móta það í nokkurn tíma eftir að það er borið á en það stífnar svo alveg. Þá má lita það t.d. með Grimas vatnslitunum. Varan fæst í 60 ml. […]
Töfraflautan fyrir börn

Hin ástsæla ópera Mozarts, Töfraflautan, verður flutt í styttri útgáfu fyrir börn í Norðurljósum í Hörpu næsta sunnudag, 16. nóvember, á tveimur sýningum, kl. 13.30 og kl. 16. Að sýningunni standa Íslenska óperan, Harpa og Töfrahurð, sem nýverið gaf út bók eftir Eddu Austmann Harðardóttur byggða á óperunni. Í sýningunni er fuglafangarinn Papagenó í hlutverki […]
Þið munið hann Jörund

Eða hvað? Muniði ekki eftir honum Jörundi úr sögubókunum, hann kom til Íslands árið 1809 og gerðist kóngur um hundadagana. Hét víst Jörgen upp á dönsku enda upprunninn þar og þótti erfiður drengur og ódæll, prakkari og stríðnispúki. Hann var því snemma sendur á sjóinn og sigldi með bretum í mörg ár. Eða muniði kannski […]
Næstu sýningar á Enginn með Steindóri

Leikfélag Ölfuss sýnir leikritið Enginn með Steindóri eftir Nínu Björk Jónsdóttur. Leikstjóri er F. Elli Hafliðason. Leikarar í sýningunni eru þau Aðalsteinn Jóhannsson, Axel Bergmann Sigurðsson, Árný Leifsdóttir, Benjamín Hallbjörnsson, Erla Dan Jónsdóttir, Hilmar Kristberg Jónsson, Jónheiður Ísleifsdóttir, Oddfreyja H. Oddfreysdóttir og Ólöf Þóra Þorkelsdóttir. Sýnt verður í Ráðhúsinu í Þorlákshöfn.
Áheyrnarprufur hjá Leikfélagi Akureyrar

Leikfélag Akureyrar frumsýnir hið fyndna og undursamlega verk Lewis Carroll Lísu í Undralandi í nýrri leikgerð Margrétar Örnólfsdóttur og við tónlist eftir dr. Gunna í Samkomuhúsinu í lok febrúar 2015. Leikstjóri verður Vignir Rafn Valþórsson, Sigríður Sunna Reynisdóttir hannar leikmynd og búninga og með hlutverk Lísu fer Thelma Marín Jónsdóttir.
Upp, upp í Gerðubergi

Stoppleikhópurinn frumsýnir leikritið Upp, upp eftir Valgeir Skagfjörð. Leikritið segir uppvaxtarsögu Sr. Hallgríms Péturssonar og var skrifað í tilefni af 400 ára afmæli skáldsins. Verkið byggir að stærstum hluta á bókinni Heimanfylgju eftir Steinunni Jóhannesdóttur sem öðrum fremur hefur gert Hallgrími Péturssyni og konu hans Guðríði Símonardóttur skil í verkum sínum.
Fangi freistinganna í Tjarnarbíói

Fangi freistinganna er gjörningur sem mun fara fram í anddyri Tjarnarbíós frá 14. nóvember kl. 17.00 til 15. nóvember kl. 17.00. Jóhanna Lind Þrastardóttir, 26 ára gömul leikkona, stendur fyrir gjörningnum: „Ég ætla að loka mig þar inni í 24 klukkustundir umkringd þeim freistingum sem mér finnst erfiðast að standast án þess að falla fyrir […]
Dansverk í Frystiklefanum

Föstudagskvöldið 14. nóvember heldur belgíski dansarinn Mirte Bogaert sýningu á nýju verki í Frystiklefanum á Rifi. Mirte hefur haft aðsetur í klefanum frá því í byrjun október og unnið ötullega að þessu nýja dansverki sem sækir innblástur sinn í náttúruna og veðrið á Snæfellsnesinu.
Fullkomið brúðkaup á Hellu

Föstudagskvöldið 7. nóvember kl. 20.30 frumsýnir Leikfélag Rangæinga Fullkomið brúðkaup eftir Robin Hawdon í Hellubíói á Hellu. Leikstjóri er Ármann Guðmundsson og Örn Árnason þýddi verkið. Fullkomið brúðkaup er sprúðlandi farsi þar sem mannlegur breiskleiki og illa ígrundaðar lygar koma af stað atburðarás sem getur ekki endað nema á einn veg. Með ósköpum.
Lokasýning á Hamskiptunum

Leiksýning Vesturports Hamskiptin verður sýnd í allra síðasta sinn í Þjóðleikhúsinu miðvikudaginn 19. nóvember. Með aðalhlutverk í sýningunni fer Gísli Örn Garðarsson. Sýningin hefur nú verið sýnd að nýju við frábærar viðtökur í Þjóðleikhúsinu og er um að gera að festa sér miða á þessa mögnuðu sýningu hið allra fyrsta!
Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

Special Blood IEV er fljótandi gerfiblóð til ýmissa nota. Það rennur hægt og virkar mjög raunverulegt. Blóðið næst vel úr flestum efnum og það er í lagi að nota það í munn, s.s. sem fyllingu í gelatínhylki. Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert […]
Auaksýning á Elskhuganum

Uppselt er á síðustu sýningu, föstudag 7. nóv. á Elskhuganum eftir Harold Pinter sem Leikfélag Kópavogs hefur sýnt undanfarið. Bætt hefur verið við aukasýningu þriðjudaginn 11. nóvember. Viðtökur gesta hafa verið mjög góðar og má m.a. benda á lofsamlega umsögn Árna Hjartarsonar hér á Leiklistarvefnum en hann segir að Elskhuginn sé „… sýning sem áhugafólk […]
Útlenski drengurinn í Tjarnarbíói

Útlenski drengurinn er gamanleikur með alvarlegum undirtóni fyrir stálpaða krakka sem fullorðna. Dóri DNA leikur Dóra litla sem er vinsælasti strákurinn í bekknum þangað til hann er látinn taka svokallað Pítsa próf sem snýr öllu lífi hans umsvifalaust á hvolf. Hann er sviptur grundvallarmannréttindum og látinn bíða örlaga sinna innilokaður í myrkvaðri skólastofu. Verkið veltir […]
Siðlaus, óþolandi og skemmtileg Arnarnesfjölskylda

Leikfélag ÖlfussEnginn með SteindóriHöfundur: Nína Björk JónsdóttirLeikstjóri: F. Elli Hafliðason Nýjasta stykki Leikfélag Ölfuss er tilþrifamikið verk og ærslafullt. Raunar svo mjög að framan af var undirrituð full efasemda um ágæti þessa. Aðalleikarinn Erla Dan Jónsdóttir hélt uppi fjöri á fjölunum sem oft og einatt keyrðu langt úr hófi. En þegar líður á sýninguna rennur […]
Ragnheiður snýr aftur í desember

Óperan Ragnheiður eftir Gunnar Þórðarson og Friðrik Erlingsson snýr aftur á svið Íslensku óperunnar í desember, eftir mikla sigurgöngu síðastliðið vor. Alls urðu sýningar á óperunni þrettán talsins í Eldborg í Hörpu og komust færri að en vildu. Sýningin hlaut tíu tilnefningar til Grímunnar og var í kjölfarið valin Sýning ársins 2014, auk þess sem […]
Aukasýning á Róðaríi

Leiksýningin Róðarí hefur fengið góðar móttökur og því hefur verið bætt við einni aukasýningu, en sú verður sú síðasta á leikritinu að þessu sinni. Sýningin verður í Tjarnarbíói laugardaginn 8. nóvember, kl. 20:00.
Bláskjár á ensku í Borgarleikhúsinu

Borgarleikhúsið fetar í forspor erlendra leikhúsa með því að sinna enskumælandi áhorfendum með textuðum sýningum. Þriðjudaginn 11. nóv verður sýningin Bláskjár þýddur á enskan texta sem varpað verður á vegg leikmyndar. Bláskjár Tyrfing Tyrfingssonar var frumsýnt á síðasta leikári og hefur sannarlega slegið í gegn því margar aukasýningar hafa bæst við. Bláskjár er íslenskt gamandrama, […]
Elskhugi á ferð í Kópavogi

Leikfélag KópavogsElskhuginn eftir Harold PinterÞýðing Ingunn ÁsdísardóttirLeikstjórn Örn Alexandersson Það var húsfyllir í sal Leikfélags Kópavogs þegar ég mætti til leiks 30. október síðastliðinn á aðra sýningu á leikritinu Elskhuganum eftir nóbelsverðlaunahöfundinn Harold Pinter. Þetta er stutt leikrit sem fjallar um ástir samlyndra hjóna, semsagt afar ófrumlegt og lítt áhugavert efni en sett fram á […]
Draugaveiðar í Hafnarfirði

Göngum aftur hópurinn leitar að draugum og öðrum verum að handan. Draugaleit gefur þátttakendum tækifæri á að taka þátt í rannsóknum á yfirnáttúrulegum hlutum íöruggri umsjón Göngum aftur. Við skipuleggjum draugagöngur í ýmsum híbýlum í Hafnarfirði sem þekkt eru fyrir draugagang, við leitum að þeim verum sem ásækja þessar vistarverur og notum til þess hina […]
Næstu sýningar á Enginn með Steindóri

Leikfélag Ölfuss frumsýndi leikritið Enginn með Steindóri eftir Nínu Björk Jónsdóttur í leikstjórn Don Ellione fyrir fullu húsi síðastliðinn laugardag 25. október. Áhorfendur skemmtu sér konunglega og miðasalan er í fullum gangi. Leikstjóri er F. Elli Hafliðason.
Opinn samlestur á Dúkkuheimili

Nú gefst áhugafólki um leikhús tækifæri til að koma á opinn samlestur í Borgarleikhúsinu. Verkið Dúkkuheimili eftir Henrik Ibsen verður leiklesið mánudagsmorguninn 3. nóvember kl 10. Þetta er liður í því að opna leikhúsið og skapa skemmtilegan formála að væntanlegum sýningum. Fyrsta skrefið í æfingum leikrita er svokallaður samlestur. Þá kemur starfsfólk saman, ásamt listrænum […]
Jólasýning Borgarbarna er Mamma Gjé

Jólasýning Borgarbarna árið 2014 heitir Mamma Gjé. Þetta er níunda árið sem Borgarbörn setja upp jólasöngleik sem ætlaður er öllum aldurhópum og stílað er inn á fjölskylduskemmtun. Þessi skemmtilegi jólasöngleikur inniheldur fjölmörg vinsæl erlend lög í íslenskum búningi, óvæntar uppákomur og kraftmikla dansa. Leikstjóri og höfundur handrits er Erla Ruth Harðardóttir og henni til aðstoðar […]
Narfi í Þjóðleikhúskjallaranum

Þriðjudagskvöldið 28. október klukkan 20 flytur Árni Kristjánsson, leikstjóri og leikritahöfundur, frumsaminn einleik um Narfa eitt fyrsta leikrit Íslendinga. Verk Árna er í fyrirlestrarformi og er samið til heiðurs Sveini Einarssyni sem fagnaði áttatíu ára afmæli sínu í ár. Aðgangur er ókeypis og aðeins stefnt að einni sýningu.
Síðasta sýning á Róðaríi

Nú er aðeins ein sýning eftir á leikritinu Róðarí eftir Hrund Ólafsdóttur, sem sýnt er í Tjarnarbíói. Verkið, sem tekur á viðkvæmu málefni, samskiptum innan fjölskyldunnar í skugga áfalla í fortíðinni, hefur verið lofuð jafnt af gagnrýnendum sem almennum áhorfendum. Lokasýning verður 30. október og hefst klukkan 20.00. Leikstjóri er Erling Jóhannesson.
Vinnslan frumsýnir sitt fyrsta leikverk

Í Strengjum blandar Vinnslan saman listformum og setur upp verk sem fjallar um sjálft vinnuferlið. Hvaðan kemur efniviðurinn? Er einlægnina að finna bakvið tjöldin? Kemur sannleikurinn í ljós? Er sannleikurinn yfir höfuð áhugaverður? Sýningin er frumsýnd í Tjarnarbíói í kvöld, fimmtudag, kl. 20:00.
Beint í æð í Borgarleikhúsinu

Föstudaginn 31. október frumsýnir Borgarleikhúsið á stóra sviðinu farsann Beint í æð eftir Ray Cooney. Hilmir Snær Guðnason fer með aðalhlutverkið en leikstjórn er í höndum Halldóru Geirharðsdóttur. Hlátrasköll hafa borist af æfingum síðustu mánuði og er nokkuð víst að um mikla gleðisprengju er að ræða.
Leikfélag Rangæinga æfir Fullkomið brúðkaup

Leikfélag Rangæinga æfir nú af kappi breska farsann Fullkomið brúðkaup eftir Robin Hawdon í þýðingu Arnar Árnasonar. Leikstjóri er Ármann Guðmundsson og er þetta í annað skiptið sem hann leikstýrir hjá félaginu en hann leikstýrði einnig Góðverkin kalla á síðasta leikári. Frumsýnt verður 7. nóvember í Hellubíói á Hellu.
Leikfélag Kópavogs frumsýnir Elskhugann

Leikfélag Kópavogs frumsýnir Elskhugann eftir Harold Pinter sunnudaginn 26. okt. kl. 20.00. Harold Pinter er eitt af áhrifamestu leikskáldum samtímans og vann Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 2005. Eins og mörg verka hans er Elskhuginn margslungið verk. Það fjallar um samband hjóna sem lifa óvenjulegu hjónabandi svo ekki sé meira sagt og hefur af sumum verið […]