Tvö dansverk sýnd í Tjarnarbíói 3. maí

Sunnudaginn 3. maí hyggst Katrín Gunnarsdóttir danshöfundur skoða lánaða líkama í tveimur ólíkum sólódansverkum. Macho Man er sólóverk fyrir danslistakonuna Sögu Sigurðardóttur. Kafað er ofan í sveitta undirheima bardagaíþrótta, Macho dansstíla og fitnesskeppna. Sýningin er afrakstur vinnustofu á Dansverkstæðinu og er styrkt af Hlaðvarpanum, menningarsjóði kvenna. Í Saving History er útgangspunkturinn persónuleg danssaga Katrínar síðustu […]

Tjarnarbíó

Bandalag sjálfstæðra leikhúsa rekur Tjarnarbíó. Húsnæðið hefur verið leigt út fyrir alls kyns starfsemi, aðallega til atvinnuleikhópa en líka áhugaleikhópa, menntaskóla, nemendasýninga og til tónleikahalds.

The Juilliard School

The Juilliard School í New York er einn þekktasti og virtasti sviðslistaskóli í heimi.

RADA

Royal Academy of Dramatic Arts

LAMDA

London Academy of Music and Dramatic Art.

Rose Bruford

Rose Bruford College of Theatre & Performance hefur boðið leiklistarprufir hérlendis um nokkurra ára skeið.  

Fjölbrautaskólinn í Garðabæ

Fjölbrautaskólinn í Garðabæ býður upp á listnámsbraut til stúdentsprófs með áherslu á leiklist.  Þar er farið í undirstöðuatriði leiklistar, sögu leiklistar, hinar ýmsu útfærslur leiklistarformsins og leikritagerðar.

ITI (International Theater Institute)

ITI (International Theater Institute) Alþjóðaleikhússtofnunin The International Theatre Institute. ITI er óháð stofnun leikhúsfólks á vegum UNESCO og alþjóðaleikhússsamfélagsins.

IATA

IATA – Alþjóðaáhugaleikhússhreyfingin International Amateur Theatre Association. IATA er alþjóðahreyfing áhugaleikhúsa í heiminum. Það hefur meðlimi í yfir 80 löndum.

NEATA

NEATA – Norður-evrópsku áhugaleikhússamtökin North European Amateur Theatre Association. NEATA er samtök sambanda áhugaleikhúsa á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum.  

Sönglist

Söng- og leiklistarskólinn Sönglist var stofnaður í ágúst árið 1998. Stofnendur og eigendur skólans eru þær Ragnheiður Hall og Erla Ruth Harðardóttir. Skólinn er starfræktur í samvinnu við Borgarleikhúsið.

Leikfélag Akureyrar

Leikfélag Akureyrar er elsta atvinnuleikhús landsins utan höfuðborgarsvæðisins og hefur verið atvinnuleikhús frá árinu 1973. Það er rekið með stuðningi Akureyrarbæjar á grunni samnings við Menntamálaráðuneytið. Saga Leikfélagsins spannar yfir heila öld en félagið var stofnað árið 1908. Leikfélag Akureyrar hefur sitt aðal aðsetur í fallegu húsi sem stendur nærri hjarta Akureyrar, Samkomuhúsinu, sem tekur […]

Borgarleikhúsið

Leikfélag Reykjavíkur er elsta leikfélag sem starfað hefur óslitið á Íslandi og er jafnframt eitt elsta starfandi menningarfélag landsins. Leikfélagið rekur Borgarleikhúsið að Listabraut 3 í Reykjavík. Leikhússtjóri er Kristín Eysteinsdóttir. Vefur Borgarleikhússins

Þjóðleikhúsið

Hverfisgata 19, 101 Reykjavík Sími miðasölu 551-1200 / Netfang midasala@leikhusid.is Frekari upplýsingar Stóra sviðið – Leikhúskjallarinn Leikhúsloftið – Miðasala Lindargata 7, 101 Reykjavík Kúlan – Kassinn – Skrifstofur Lindargata 3, 101 Reykjavík

Leynileikhúsið

Hjá Leynileikhúsinu geta ungir leiklistarunnendur sótt fjölbreytt og skapandi námskeið í leiklist. Á námskeiðunum er unnið er að því að efla framkomu, sköpunarkraft og tækni hvers og eins nemanda, með leikgleði og frumsköpun að leiðarljósi.

Listasmiðja barna Kramhúsinu

Listasmiðja barna hefur verið starfrækt í Kramhúsinu frá upphafi. Áhersla er lögð á leiklist, tónlist, hreyfingu og dans fyrir börn frá 3ja-16 ára aldurs.

Leikgleði Leikfélags Mosfellssveitar

Leikgleði Leikfélags Mosfellssveitar hefur verið starfrækt síðan 1996. Námskeiðin eru fyrir börn á aldrinum 6-16 ára og er þeim yfirleitt skipt í aldurshópana 6-9 ára, 10-12 ára og 13-16 ára.

Kogan Academy of Dramatic Arts

Kogan Academy of Dramatic Arts hefur haldið leiklistarprufur fyrir væntanlega nemendur hérlendis undanfarin ár. Þeir auglýsa prufurnar yfirleitt snemma vors hér á vefnum.        

Unglingadeild Leikfélags Kópavogs

Leikfélag Kópavogs heldur úti barna- og unglingadeild þar sem boðið er upp á námskeið og sýningar.  Annarsvegar eru í boði námskeið fyrir 11-12 ára og hinsvegar námskeið og uppsetning leiksýningar fyrir 13-16 ára. Starfsemin er aðallega á haustin. Sjá nánar á vef félagsins.

Leiklistarskóli Leikfélags Akureyrar

Leiklistarskóli Leikfélags Akureyrar Leiklistarskóli Leikfélags Akureyrar hefur verið starfandi frá því árið 2009. Skólinn er ætlaður börnum og unglingum í 3. – 10. bekk grunnskóla. Nánar um skólann hér.    

Gunnar Björn Guðmundsson

Leikstjóri / Handritshöfundur Gsm: 8203661 Netfang: gbgudmundsson@gmail.com Ég hef unnið jöfnum höndum í leikhúsi og kvikmyndum síðan 1996. Á þessum árum hef ég leikstýrt fjórum kvikmyndum í fullri lengd, skrifað og leikstýrt fjórum áramótaskaupum, leikstýrt rúmlega þrjátíu leiksýningum og skrifað tíu leikrit. Hef haldið fjölda námskeiða í leiklist og kvikmyndagerð. Ég hef verið stundakennari við […]

Ingrid Jónsdóttir

Netfang: ingridj@simnet.is Sími: 861 5107 Útskrifaðist frá Menntaskólanum við Sund 1981 og  Leiklistarskóla Íslands 1987.
 Ingrid hefur unnið við leikhús í yfir 30 ár. Hún fékk leiklistarbakteríuna sem lítil stelpa í Mosó og lék með Leikfélagi Mosfellssveitar áður en hún fór í leiklistarskólann. Ingrid hefur leikið í Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhúsinu og unnið fyrir sjónvarp og […]

María Sigurðardóttir

s. 897 4820 Netfang: maja.solbakki@gmail.com Með áratuga reynslu og brennandi ástríðu er ég hvergi nærri hætt að vilja leika mér og hafa gaman! Á mínum ferli hefur það verið mín helsta ánægja að fá að kenna og hjálpa leikhúsfólki að þroskast og dafna, og ég elska fólk og félagsskap. Fyrst og fremst á leikhús að […]

Eyebrow Plastic frá Grimas

Eyebrow Plastic frá Grimas. Glært vax til að hylfja augnabrúnir. Tollir vel við húðina og helst teygjanlegt. 25 ml. dós kostar 2.347.- Hér er mjög góð lýsing á vörunni og hvernig á að nota hana og þrífa af á dönsku. Innihaldslýsing og fleira.

Afhausunarvélin í efsta gír

Nú um stundir býður Leikfélag Hafnarfjarðar upp á vel unna sýningu á Ubba kóngi eftir Alfred Jarry. Frá fyrsta andartaki og allt til loka bera hvert atriðið á fætur öðru í þessari uppfærslu þess vott að allir sem hönd lögðu á plóginn hafa lagt sig fram um að vanda til verka. Leikhópurinn er vel samhæfður […]

Barið í brestina á Króknum

Næstkomandi sunnudag, 26. apríl frumsýnir Leikfélag Sauðárkróks gamanleikinn Barið í brestina. Leikritið er skrifað af Guðmundi Ólafssyni og var það upprunalega sýnt af Leikfélagi Ólafsfjarðar árið 2001. Sögusviðið er sambyggð heilbrigðisstofnun og elliheimili og fá áhorfendur innsýn inn í líf starfsmanna og vistmanna, en auk þess ber á góma færeyskur knattspyrnumaður og magaskoðunartæki. 15 leikarar […]

Lokað 24. apríl!

Viðskiptavinir athugið!   Leikhúsbúðin og skrifstofa Bandalags íslenskra leikfélaga verða lokaðar föstudaginn 24. apríl.

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

Grimas Nose Wax eða nefkítti. Húðlitað vaxkennt efni notað til að byggja upp andlitshluta, s.s. nef og höku. Fæst í 60 ml. dósum og kostar 1.729.- Leikhúsbúðin er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á land sem er. Pantaðu í síma 5516974 eða með tölvupósti […]

Peggy Pickit sér andlit guðs

Miðvikudaginn 22. apríl kl 20.00 mun Leikfélag Reykjavíkur frumsýna á litla sviði Borgarleikhússins verkið Peggy Pickit sér andlit guðs eftir þjóðverjann Roland Schimmelpfennig. Vignir Rafn Valþórsson leikstýrir þar úrvalshópi leikara og þýðing verksins er í höndum Hafliða Arngrímssonar. HVAÐ ÞURFUM VIÐ EIGINLEGA AÐ BURÐAST LENGI MEÐ AFRÍKU Á SAMVISKUNNI?

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

Eyebrow Plastic frá Grimas. Glært vax til að hylfja augnabrúnir. Tollir vel við húðina og helst teygjanlegt. 25 ml. dós kostar 2.347.- Leikhúsbúðin er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á land sem er. Pantaðu í síma 5516974 eða með tölvupósti í netfangið info@leiklist.is

Málþing um Birgi Sigurðsson

  Laugardaginn 11. apríl kl. 11:30 mun Leikfélag Reykjavíkur halda málþing um leikskáldið Birgi Sigurðsson. Þau Magnús Þór Þorbergsson, leikhúsfræðingur, Salka Guðmundsdóttir, leikskáld, Stefán Baldursson, leikstjóri og Unnur Ösp Stefánsdóttir, leikkona munu flytja framsögu. Sveinn Einarsson, leikstjóri og leikhúsfræðingur, ræðir við Birgi og stýrir umræðum auk þess sem skáldið sjálft mun flytja eigin ljóð.

Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýnir Ubba kóng

Laugardaginn 11. apríl frumsýnir Leikfélag Hafnarfjarðar leikritið Ubba kóng – skrípaleik í mörgum atriðum – í leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Ubbi kóngur (Ubu roi á frummálinu) er kannski betur þekktur sem Bubbi kóngur, en Herranótt frumflutti verkið hér á landi undir því nafni árið 1969 í leikstjórn Sveins Einarssonar.  Aðalhlutverk í þeirri uppfærslu voru leikin af […]

Athyglisverðasta áhugasýningin leikárið 2014-15

Þjóðleikhúsið stendur að venju fyrir samkeppni um athyglisverðustu áhugaleiksýninguna þetta leikár. Umsóknarfrestur er til 20. apríl nk. Öll aðildarfélög Bandalags íslenskra leikfélaga geta tekið þátt. Umsóknir á að senda beint til Þjóðleikhússins og umsóknareyðublaðið er hér. Úrslit verða tilkynnt á hátíðarkvöldverði að Melum í Hörgárdal laugardaginn 3. maí.

Aukasýningar á Óþarfa offarsa í apríl

Þrjár aukasýningar verða á Óþarfa offarsa eftir Paul Slade Smith sem Leikfélag Kópavogs sýndi í febrúar og mars. Borgarstjórinn liggur undir grun um fjárdrátt og lögreglan undirbýr gildru á móteli til að standa hann að verki. Fljótt kemur í ljós að lögreglufulltrúarnir tveir eru kannski ekki þeir allra hæfustu og samband annars þeirra við kynsveltan endurskoðanda […]

Þú kemst þinn veg í Norræna húsinu

Síðasta tækifæri til að sjá Þú kemst þinn veg í Norræna húsinu um helgina. Í marsmánuði var leikverkið Þú kemst þinn veg sýndur tíu sinnum og þar af átta sýningar fyrir troðfullu húsi. Verkið er einlægur einleikur eftir Finnboga Þorkel Jónsson og fjallar um veruleika Garðars Sölva Helgasonar. Garðar hefur lengi strítt við geðklofa og […]

Leikfélag Sauðárkróks æfir Barið í brestina

Æfingar standa nú yfir hjá Leikfélagi Sauðárkróks á gamanleiknum Barið í brestina eftir Guðmund Ólafsson. Leikurinn gerist á heilbrigðisstofnun sem einnig er elliheimili og koma þar við sögu starfsmenn stofnunarinnar, vistmenn, bæjarstjóri og ráðherra. Þá er minnst á færeyskan fótboltamann og magaspeglunartæki sem ráðherrann hefur mikinn áhuga á að skoða.