Hver er hræddur við Virginíu Woolf?
Föstudaginn 15. janúar kl. 20 frumsýnir Borgarleikhúsið á Nýja sviðinu leikverk Edward Albee, Hver er hræddur við Virginíu Woolf? í leikstjórn Egils Heiðars Antons Pálssonar. Leikarar eru þau Margrét Vilhjálmsdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Elma Stefanía Ágústsdóttir og Eysteinn Sigurðarson. Marta og Georg elska hvort annað. Þau vita allt um sig og lífið en samt – […]
Nýtt leikskáld Leikritunarsjóðs LR
Tilkynnt var um val á nýju leikskáldi Leikritunarsjóðs Leikfélags Reykjavíkur við hátíðlega athöfn í Borgarleikhúsinu í gær. Frú Vigdís Finnbogadóttir, stjórnarformaður Leikritunarsjóðs tilkynnti Sölku Guðmundsdóttur sem næsta leikskálds Borgarleikhússins. Alls sóttu 39 um starfið. Fjögur leikskáld hafa þegar starfað á vegum leikritunarsjóðsins með prýðilegum árangri, Auður Jónsdóttir árið 2009 og Jón Gnarr var leikskáld hússins […]
Frami, aukasýningar í janúar
„Enginn meinar neitt af því enginn þorir því og ef einhver vildi meina eitthvað þá myndi enginn skilja það því allir héldu að hann væri að grínast.“ Frami er nýtt verk eftir Björn Leó Brynjarsson í uppsetningu sviðslistahópsins TAKATAKA. Verkið fjallar um þrá listamanns eftir velgengni í nútímasamfélagi og baráttu hans við sjálfan sig. Hann […]
Uppfærsla á vefnum
Leiklistarvefurinn verður uppfærður síðar í kvöld og verður niðri á meðan. Ekki er búist við að uppfærslan taki langan tíma.
Opinn samlestur í Borgarleikhúsinu
Á morgun, þriðjudaginn 5. janúar kl 12:45 verður opinn samlestur á Mamma mia í forsal Borgarleikhússins. Þetta er liður í því að opna leikhúsið og skapa skemmtilegan formála að væntanlegum sýningum. Fyrsta skrefið í æfingum leikrita er svokallaður samlestur. Þá kemur starfsfólk saman, ásamt listrænum stjórnendum og leikurum og lesa leikritið upphátt. Auk þess kynna leikstjóri, leikmynda- […]
Inntökupróf í Rose Bruford
Rose Bruford, sem er alþjóðlegur leiklistarháskóli í London, mun halda inntökupróf og viðtöl fyrir allar deildir í Hinu Húsinu, Reykjavík dagana 12. og 13. mars 2016. Nánari upplýsingar og skráning með tölvupósti á: international@bruford.ac.uk og í síma: +44(0)20 8308 2638 Námið hefst í október 2016. Rose Bruford var valinn besti leiklistarháskóli Bretlands í skoðanakönnun nemenda 2013 og 2014 bruford.ac.uk […]
Jólakveðja
Lokað frá og með 22. desember til 4. janúar.
Aukasýningar á Augasteini
Ævintýrið um Augastein, hugljúft jólaleikrit fyrir yngstu listunnendurna eftir Felix Bergsson, hefur fengið frábærar viðtökur og hefur Tjarnarbíó bætt við þremur aukasýningum. Leikritið er fyrir foreldra og börn, en kjöraldur er 7-8 ára, en það hentar einnig fyrir 3 ára og upp í 11 ára. Leikritið byggir á hinni sígildu sögu um Grýlu og jólasveinana […]
Leitin að jólunum í Þjóðleikhúsinu
Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum hefur verið sýnd á aðventunni við miklar vinsældir allt frá því hún var frumsýnd árið 2005. Verkið er nú sýnt ellefta leikárið í röð. Tveir skrýtnir og skemmtilegir náungar taka á móti litlum leikhúsgestum í anddyri Þjóðleikhússins. Með þeim í för eru tveir hljóðfæraleikarar og þessi fjörugi hópur leiðir börnin með […]
Grýla, jólasýning á Akureyri
Grýla er reið. Nei, það er víst ekki alveg rétt því Grýla er brjáluð! Það er búið að bora gat í gegnum heimilið hennar og hún var ekki einu sinni beðin um leyfi. Það er allt á floti í hellinum, heiti potturinn hennar míglekur eftir aðförina og því ekki hægt að búa þar lengur. Ekki […]
Opnum okkur!
Fjórir flóttamenn segja sína sögu á stóra sviði Borgarleikhússins ásamt þremur fyrirlesurum frá Rauða krossinum og sjálfboðaliðum. Halldóra Geirharðsdóttir og Bergur Þór Ingólfsson halda utan um dagskránna. Dagskráin hefst kl. 13 laugardaginn 5. desember, ókeypis aðgangur og allir velkomnir. Hugmyndin með þessu er fyrst og fremst að opna fyrir samtal og rými þar sem hægt […]
Sagan af Joey og Clark hjá Halaleikhópnum
Halaleikhópurinn sem er áhugamannaleikfélag fatlaðra og ófatlaðra mun setja á svið “Söguna af Joey og Clark” sem er hluti úr leikritinu „Stræti” eftir Jim Cartwright í leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar. Sagan af Joey og Clark er sýnt sem sjálfstætt stuttverk (ca 50 mín) og mun ekki verða sýnt sem hluti af Stræti þegar það verður frumsýnt […]
Ferðin til jólaandans í Iðnó
Jólaleikrit Borgarbarna, barna- og unglingaleikhúss þetta árið er Ferðin til Jólaandans. Er þetta tíunda árið í röð sem Borgarbörn setja upp jólasýningu. Sýningin er frábær skemmtun fyrir fólk á öllum aldri. Jólin snúast um það að njóta og gleðjast með fjölskyldu og vinum. Það er hinsvegar eitthvað sem Grétar og Hansína hafa aldrei kynnst. Þau […]
Ævintýrið um Augastein í Tjarnarbíói
Leikhópurinn Á senunni kynnir enn á ný hina margrómuðu og yndislega fallegu jólaleiksýningu Ævintýrið um Augastein eftir Felix Bergsson, í samstarfi við Kolbrúnu Halldórsdóttur og Helgu Arnalds, sem verður að nýju sýnd í nóvember og desember 2015 í hinu nýuppgerða og glæsilega Tjarnarbíói við Tjarnargötu. Íslensk útgáfa verksins var einmitt frumsýnd í Tjarnarbíói árið 2003. […]
Tvær sýningar fyrir eina
Unglingadeild Leikfélags Kópavogs frumsýnir leikritin Sumarbúðir og Hvíldu í friði nú um helgina. Unglingadeildin sem telur nú tvo hópa, eldri og yngri, hefur í haust verið á vikulegum leiklistarnámskeiðum. Námskeiðunum sem slíkum er lokið en nú er komið að leiksýningum sem eru öðrum þræði afrakstur námskeiðanna. Yngri hópur sýnir leikritið Sumarbúðir sem fjallar um hópur […]
NEATA leiklistarhátíðin 7. og 8. október 2016
Leiklistarhátíðir norður-evrópska áhugaleikhúsráðsins, NEATA, hafa verið haldnar á tveggja ára fresti frá árinu 2000. Hátíðin hefur gengið á milli aðildarlandanna í ákveðinni röð og árið 2016 var komið aftur að Norðmönnum. Því miður stendur illa á hjá norska bandalaginu, það er eiginlega búið að leggja það niður og verið er að færa verkefni þess til […]
Láttu bara eins og ég sé ekki hérna
Verkið Láttu bara eins og ég sé ekki hérna er grískur þátttökuharmleikur þar sem áhorfandinn lærir að þekkja sjálfan sig upp á nýtt. Við bjóðum áhorfendum að koma í Tjarnarbíó og gangast undir persónuleikapróf þar sem hann er leiddur í gegnum stig sjálfsupplýsingar og þarf að horfast í augu við sína innri pöndu. Verkið veltir því […]
Leikfélagið Borg
Formaður: Guðný Tómasdóttir gudny@ormsstadir.is 8940932 Ritari: Kristbjörg Sigtryggsdóttir krissa86@hotmail.com 7731944 Gjaldkeri: Jóhann Pétur Jóhannsson Johann.Petur.Johannsson@landsvirkjun.is 6119150 Meðstjórnandi: Bjarki Þór Guðmundsson Meðstjórnandi: Gunnar Bjarni Kristinsson Félagið starfar í Gímsnes- og Grafningshreppi.
KATE, frumsýning í Tjarnarbíói
Lost Watch í samstarfi við Miðnætti og Tjarnarbíó frumsýnir KATE, gamanleik um íslenskt fjölskyldu- og herstöðvalíf í seinni heimsstyrjöldinni í Reykjavík. Ísland, 1940. Bretarnir koma! Þegar 25.000 breskir hermenn lenda í Reykjavík og hertaka landið, hafa íslensku konurnar eitthvað nýtt til að einbeita sér að. KATE fjallar um íslenska fjölskyldu í seinni heimsstyrjöldinni, Selmu uppreisnargjarnri dóttur […]
Bráðskemmtileg fjölskyldusýning í Eyjum
Ævintýrabókin eftir Pétur Eggerz Leikfélag Vestmannaeyja Leikstjóri Ingrid Jónsdóttir Helena Pálsdóttir rýnir sýningu Það er ekki hægt að segja annað en Leikfélag Vestmannaeyja sé ríkt af hæfileikafólki, fólki sem lætur gesti sína finna það alveg út í sal hversu gaman það hefur af því að skemmta sér og okkur hinum. Ég skellti mér á frumsýningu […]
65 ára afmæli!
Þessa dagana höldum við upp á 65 ára afmæli Bandalags íslenskra leikfélaga en það var stofnað 12. ágúst 1950. Í tilefni afmælisins var blásið til stuttverkasamkeppni. Dómnefnd valdi þrjú stuttverk sem send voru öllum aðildarfélögum til frírrar notkunar þessa viku. Mörg þeirra leika eða leiklesa þessi verk næstu daga. Til að vekja athygli á því […]
Þetta er grín á leið í Hörpuna, án djóks
Menningarfélag Akureyrar mun senn fara með verkið Þetta er grín, án djóks í leikferð í höfuðborgina, en leikritið verður flutt í Eldborgarsal Hörpu þann 28. nóvember. Þetta er grín án djóks, er sviðsetning Leikfélags Akureyrar í samstarfi við Menningarhúsið Hof og er samið af þeim Dóra DNA og Sögu Garðarsdóttur sem jafnframt leika aðalhlutverkin. Leikstjóri er […]
Stuttverkadagskrá Hugleiks
Á föstudaginn 20. nóvember mun Leikfélagið Hugleikur frumsýna stuttverkadagskrá sem hefur hlotið heitið Et tu Hugleikur? Þar munu svik hvers konar vera í forgrunni, könnuð til hlítar og, vonandi, afhjúpuð. Öll verkin eru frumsamin en boðið er á sjö brögðótta þætti að þessu sinni. Einnig verða leiklesnir tveir afmælisþættir Bandalags íslenskra leikfélaga. Kynnar verða Árni […]
Töfratárið, frumsýning í Mosfellsbæ
Töfratárið er nýtt íslenskt leikrit eftir Agnesi Wild í leikstjórn hennar verður frumsýnt sunnudaginn 22.11.2015 klukkan 15:00. Töfratárið fjallar um stúlkuna Völu sem þykir fátt skemmtilegra en að leika sér með bangsann sinn. Það er aðfangadagur og móðir Völu sem er læknir þarf að fara í vinnuna. Völu þykir það ósanngjarnt, grætur og bangsi huggar […]
Arty Hour #15 í Tjarnarbíói
Arty Hour nóvembermánaðar verður haldinn 16. nóvember kl. 20:00. Á þessum viðburðum fáum við að heyra frá þeim listamönnum sem vinna í Tjarnarbíó, annað hvort að uppsetningu verka eða við aðra listasmíði í vinnustofum í húsinu. Á þessum viðburði koma fram: Sómi þjóðar – Könnunarleiðangur til Koi Inga&Rósa – The Valley Ásgerður og Alex – […]
65 ára afmælishátíð – Stuttverkin tilbúin
Valnefnd hefur lokið störfum og valið þau þrjú af sjö innsendum verkum sem notuð verða við 65 ára afmælisgjörning aðildarfélaga Bandalags íslenskra leikfélaga vikuna 16.-22. nóvember. Valnefndina skipuðu: Ágúst Magnússon Bernharð Arnarson Gísli Björn Heimisson Þráinn Sigvaldason Ylfa Mist Hlegadóttir Innsend verk og leyninöfn höfunda: Afmælisveislan hans Dóra Skjöldur Albatrossinn […]
Halaleikhópurinn sýnir Innlit í Stræti
Hlutar úr leikritinu Stræti eftir Jim Cartwright í leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar verða sýndir 14. og 15. nóvember kl. 20. Í „Innlit í Stræti“ verða flutt eintöl nokkurra íbúa strætisins þar sem við fáum nasaþef af persónuflóru. Við hittum Skinnið sem er bulla með ofbeldisfulla fortíð en hefur nú snúist til dharma. Prófessorinn, misheppnaður rithöfundur, fjallar um bókina […]
Fínasta fjölskyldusýning í Freyvangi
Klaufar og kóngsdætur eftir Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason Freyvangsleikhúsið Leikstjórn: Ármann Guðmundsson Brynhildur Þórarinsdóttir rýnir sýningu Fimm manna fjölskylda frá Akureyri lagði leið sína í Freyvangsleikhúsið sunnudaginn 25. október. Ætlunin var auðvitað að sjá Klaufa og kóngsdætur. “Nú þurfið þið að fylgjast vel með því að við eigum að meta leiksýninguna,” sagði […]
Absúrdismi á sjó í Kópavogi
Á rúmsjó eftir Slawomir Mrozek Leikfélag Kópavogs Leikstjóri: Örn Alexandersson Lárus Vilhjálmsson rýnir sýningu Ég skrapp í gær í litla leikhúsið hjá Leikfélagi Kópavogs til að sjá verk pólska leikskáldsins Slawomir Mrozek, Á rúmsjó. Það var við hæfi að aka í gegnum óreiðu íbúðarhúsa og verslunarmolla í Smárahverfinu sem minna helst á absúrd verk Picassos […]
Bangsímon á Selfossi
Bangsímon eftir Petre Snickars Leikfélag Selfoss Leikstjóri: Guðfinna Gunnarsdóttir Árni Hjartarson rýnir leiksýningu Þann 31. okt. s.l. frumsýndi Leikfélag Selfoss leikritið Bangsímon eftir finnska leikskáldið og leikarann Petre Snickars sem byggt er á hinum frægu sögum Alans Alexanders Milne um Bangsímon og vini hans frá þriðja áratug 20. aldar. Undirritaður fór á vettvang með konu […]
Hið hrekkjarvikulega í Hafnarfirði
Leikfélag Hafnarfjarðar býður nú í tíunda skipti upp á leikhúsveislu undir merkjum Hins vikulega. Að þessu sinni er þemað Hrekkjavaka, enda fer sýningin fram á sjálfu Hrekkjavökukvöldinu, 31. október. Hið vikulega er stuttverkadagskrá sem lýtur ákveðnum lögmálum sem hún dregur nafn sitt af. Höfundar í höfundasmiðju LH fá viku til þess að semja stuttverk sem […]
Leikfélag Selfoss frumsýnir Bangsímon
Nú er komið að því sem allir krakkar hafa beðið eftir. Leikritið Bangsímon verður frumsýnt hjá Leikfélagi Selfoss laugardaginn 31. október kl. 15:00 í Litla leikhúsinu við Sigtún. Bangsímon er hugljúft og skemmtilegt leikrit fyrir börn á öllum aldri. Það var fyrst sett á svið hjá leikfélaginu fyrir 20 árum síðan og hlökkum við til […]
Á rúmsjó í Kópavogi
Þrír menn eru týndir úti á rúmsjó, skipreika á björgunarbát. Hungrið sverfur að og fljótt verður ljóst að til að einhverjir þeirra komist af þarf að beita róttækum aðferðum. Þeir rökræða sín á milli um hvað þurfi að gera svo einhverjir þeirra komist af umræðan snýst óhjákvæmilega um það hver þeirra er minnst virði. Þannig […]
Súrrealískt kaffihús
Einn rjúkandi kaffibolli Leikfélag Ölfuss Leikstjóri: Don Ellione Elín Gunnlaugsdóttir rýnir sýningu Rithöfundur nokkur venur komur sínar á kaffihús og reynir að sækja þar innblástur í skrif sín. Samtöl og uppákomur á kaffihúsinu, sem ber nafnið Einn rjúkandi kaffibolli, rata því mörg hver inn í skrif hans. Þetta er í stórum dráttum efni leikverksins Einn […]
Klaufar og kóngsdætur í Freyvangi
Freyvangsleikhúsið frumsýnir barna- og fjölskylduleikritið Klaufar og kóngsdætur laugardaginn 24. október kl. 20.00. Um er að ræða leikrit eftir þrjá Ljóta hálfvita, Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason. Ármann leikstýrir einnig verkinu. Verkið er leikgerð af sex ævintýrum H.C. Andersen; Eldfærunum, Næturgalanum, Hans Klaufa, Svínahirðinum, Förunautnum og Litlu stúlkunni með eldspýturnar – auk þess sem […]
Þetta er grín án djóks
Á morgun, fimmtudaginn 22. október, frumsýnir Menningarfélag Akureyrar glænýtt íslenskt verk í sviðsetningu Leikfélags Akureyrar og menningarhússins Hofs. Verkið ber titilinn Þetta er grin, án djóks og er eftir þau Halldór Laxness Halldórsson (Dóra DNA) og Sögu Garðarsdóttur. Um er að ræða sprenghlægilegt gamanverk þar sem þau Saga og Dóri leika sig sjálf… ef þau […]
„Einn koss enn ..“ aftur á svið í Hveragerði
Leikfélag Hveragerðis æfir nú upp leikritið Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan. Leikritið var frumsýnt í vor en sýningar hættu skyndilega fyrir fullu húsi þegar einn leikarinn sleit hásin á miðri sýningu. Sýningar verða helgarnar 23. og 24. október og svo 30. og 31. október klukkan 20.00. Leikritið er eftir Marc […]
Þjóðleikhúsið í leikferð um landið
– Fimm ára börnum boðið á leiksýningu. Nú í október mun Þjóðleikhúsið leggja land undir fót og bjóða börnum víðsvegar um landið að njóta hinnar feykivinsælu Sögustundar. Þjóðleikhúsið hefur undanfarin sjö ár boðið börnum í elstu deildum leikskóla á höfuðborgarsvæðinu árlega í leikhúsið, til að njóta leiksýninga sem nefnast Sögustund. Þjóðleikhúsið er leikhús allra landsmanna […]
Arty Hour #14 – Listamenn Tjarnarbíós kynna verk sín
Októberútgáfa listastundar Tjarnarbíós verður haldin 19. október kl. 20:00. Á þessum viðburðum fáum við að heyra frá þeim listamönnum sem vinna í Tjarnarbíó, annað hvort að uppsetningu verka eða við aðra listasmíði í vinnustofum í húsinu. Á þessum viðburði koma fram: Jenný Lára Arnórsdóttir, sem sér um Uppsprettuna – skyndileikhús Finnbogi Þorkell Jónsson, höfundur verksins […]
Kardemommubærinn á Króknum
Næstkomandi laugardag, 17. október frumsýnir Leikfélag Sauðárkróks Kardemommubæinn eftir Thorbjörn Egner. Hulda Valtýsdóttir þýddi verkið og Kristján frá Djúpalæk þýddi söngtextana. Leikstjóri er Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir. Í Kardemommubæ búa margar skemmtilegar persónur sem lifa sínu lífi með bakaríi og rakarastofu og dýrasala, auk bæjarfógetans sem heitir Bastían. Það er líka eins gott því á stjái […]