Aðalfundur í Logalandi 5.-6. maí 2018

Formaður Bandalagsins, Guðfinna Gunnarsdóttir setur fundinn kl. 13:00. 1. Fundarsetning. Kosning 2ja fundarstjóra og 2ja fundarritara sem taka þegar til starfa. Lögmæti fundarins kannað. Þorvaldur Jónsson og Steinunn Garðarsdóttir frá Umf. Reykdæla skipaðir fundarstjórar og Ingveldur Lára Þórðardóttir Leikfélagi Hafnarfjarðar og Magnþóra Kristjánsdóttir Leikfélagi Ölfuss skipaðir fundarritarar. Fundur telst lögmætur. 2. Kjörnefnd afgreiðir kjörbréf og […]

Leikhópurinn Lotta frumsýnir Gosa

Tólfta sumarið í röð leggur Leikhópurinn Lotta land undir fót og ferðast með glænýja fjölskyldusýningu um landið þvert og endilangt. Í sumar hefur hópurinn ákveðið að kynnast betur spýtustráknum Gosa og ber nýjasta leikritið nafn hans. Sagan um Gosa gerist inni í Ævintýraskóginum en eins og Lottu er von og visa blandast fleiri þekkt ævintýri […]

Lokað frá 17.-21. maí

Skrifstofa Bandalags íslenskra leikfélaga, Vefverslunin og Leikhúsbúðin verða lokaðar frá 17. maí til og með 21. maí. Opnum aftur þriðjudaginn 22. maí kl. 9.00. Sendið inn pantanir fyrir kl. 13.00 miðvikudaginn 16. maí.

Mystery boy í Þjóðleikhúsið

Sýning Leikfélags Keflavíkur á Mystery Boy eftir Smára Guðmundsson, hefur verið valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2018 af valnefnd Þjóðleikhússins. Umsögn valnefndar fer hér á eftir: Athyglisverðasta áhugaleiksýning leikársins 2017-2018 Val Þjóðleikhússins á athyglisverðustu áhugaleiksýningu leikársins hefur nú farið fram í tuttugasta og fimmta sinn. Að þessu sinni sóttu alls fjórtán leikfélög um að koma til […]

BÍL-þing 2018

Hér birtast svipmyndir af Aðalfundi BÍL í Reykholti 4.-6. maí 2018. [FAGP id=10580]

Enginn hráskinnaleikur, bara frábær skemmtun

Hráskinna hjá Hugleik Höfundar: Ármann Guðmundsson, Ásta Gísladóttir, Sigríður B. Steinþórsdóttir og Þorgeir Tryggvason Leikstjórn: Rúnar Guðbrandsson Það var dálítið snúið að finna innganginn að nýju húsnæði Hugleiks á Langholtsveginum. Reyndi fyrst að fara inn um aðaldyrnar en mætti þar fjölda manns sem sögðust vera að koma frá söngæfingu. En góður vegfarandi benti mér fljótlega […]

Aukasýning á Fróða og öllum hinum grislingunum

Aukasýning verður á Fróða og öllum hinum grislingunum sem Leikfélag Kópavogs hefur sýnt undanfarnar vikur. Síðustu sýningar voru um liðna helgi en vegna fjölda tilmæla hefur verið ákveðið að bæta við aukasýningu 13. maí næstkomandi. Þegar hafa verið sýndar 15 sýningar fyrir fullu húsi. Nánari upplýsingar um sýninguna og miðapantanir eru á vef leikfélagsins kopleik.is.

Hugleikur frumsýnir Hráskinnu

Leikfélagið Hugleikur frumsýnir þann 20. apríl kl. 20.00 Hráskinnu, nýtt íslenskt leikrit með söngvum. Höfundar eru fjórir, Ármann Guðmundsson, Ásta Gísladóttir, Sigríður Bára Steinþórsdóttir og Þorgeir Tryggvason en leikstjórn er í höndum Rúnars Guðbrandssonar. Sýnt er í Hugleikhúsinu Langholtsvegi 109 (Fóstbræðrahúsinu, gengið inn baka til) en það er nýtt leikhús í eigu leikfélagsins. Hráskinna er […]

15. apríl er á sunnudaginn!

Síðasti skráningardagur í Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga 2018 er á sunnudaginn, 15. apríl. Hér eru allar upplýsingar um skólann og námskeiðin sem boðið er uppá í ár  https://leiklist.is/leiklistarskoli-bil-2018/ Það eru laus pláss á öll námskeiðin nema Trúðanámskeiðið, það er orðið pakkfullt. Ég vil vekja sérstaka athygli ykkar á námskeiðinu Á bak við tjöldin – Hönnun og […]

Leikritunarvinnusmiðja Lakehouse og MAk

Þann 6. maí næstkomandi verður spennandi leikritunarvinnusmiðja á vegum Lakehouse og MAk í Samkomuhúsi Leikfélags Akureyrar. Þar gefst þátttakendum kostur á að bæta verk sín með æfingum, spuna og umræðum. Það er Árni Kristjánsson höfundur og leikstjóri sem leiðir námskeiðið en hann vann Grímuna á sínum tíma fyrir útvarpsverkið Söngur hrafnanna. Árni er útskrifaður leikstjóri […]

Ný íslensk ópera í Iðnó um helgina

Föstudaginn 6. apríl frumsýnir Menntaskóli í tónlist nýja óperu eftir Þórunni Guðmundsdóttur. Verkið heitir „Fjóla, stjúpa, puntstrá og prins“. Það gerist í tónlistarskóla sem er í miklum kröggum, skólastjórinn er þunglyndur og hefur misst trúna á tónlistina. Til þess að bæta ástandið ákveða nemendur að setja upp ævintýraóperu um ráðvilltan prins sem fær það verkefni […]

Aðalfundur, Stuttverkahátíð og spennandi fyrirlestrar

bil_island_logo

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga verður haldinn í Logalandi í Borgarfirði dagana 5. og 6. maí nk. Í tengslum við aðalfundinn verður haldin stuttverkahátíð föstudaginn 4. maí og á laugardagsmorgninum 5. maí verða 4 fyrirlestrar varðandi net- og tæknimál. Stuttverkahátíðin verður sett kl. 20.00 föstudaginn 4. maí stendur fram eftir kvöldi. Tilkynna þarf verk á Stuttverkahátíðina […]

35 x Ég og nokkrar leikkonur

Sýnt í Tjarnarbíói 24. og 25. mars nk. Haustið 2016 kallaði finnska leikdúóið Blaue Frau eftir samstarfi við listamenn frá Norðurlöndunum fyrir sýninguna þeirra “35 X ÉG OG NOKKRAR LEIKKONUR”. Þeir sem sóttu um fengu það verkefni að lýsa því hvernig hið persónulega og faglega skarast og sameinast í starfi þeirra sem leikkona. Blaue Frau […]

Rauða skáldahúsið: Sjón & Dauðasyndirnar sjö

 „En ég vil ekki þægindi. Ég vil Guð, ég vil skáldskap, ég vil raunverulega hættu, ég vil frelsi, ég vil gæsku. Ég vil synd.“ — Aldous Huxley, Veröld ný og góð. 29. mars opnar Rauða Skáldahúsið dyr sínar á ný til að fagna dauðasyndunum sjö. Frelsaðu og fullnægðu fýsnum þínum með ljóðlist í einrúmi á […]

Áheyrnarprufur í breskan leiklistarháskóla

Rose Bruford, sem er alþjóðlegur leiklistarháskóli í London, mun halda inntökupróf og viðtöl fyrir allar deildir í Hinu Húsinu, Reykjavík þann 7. apríl 2018. Nánari upplýsingar og skráning með tölvupósti á: Tölvupóstur: admissions@bruford.ac.uk Símanúmer: +44(0)20 8308 2638 Námið hefst í október 2018. Rose Bruford hefur verið valinn besti leiklistarháskóli Bretlands í skoðanakönnun nemenda nokkur ár […]

Leiklistarskóli BÍL 2018

Starfstími skólans á þessu ári er frá 9. til 17. júní að Reykjaskóla í Hrútafirði Að þessu sinni verða fjögur fjölbreytt námskeið í boði, sum fyrir byrjendur en önnur sem gera ráð fyrir þekkingu og reynslu nemenda. Karl Ágúst Úlfsson mun leiða áhugasama inn í töfrandi heim leikritunar og er námskeiðið ætlað jafnt byrjendum sem […]

Leiklistarskóli BÍL 2018

Starfstími skólans á þessu ári er frá 9. til 17. júní að Reykjaskóla í Hrútafirði Að þessu sinni verða fjögur fjölbreytt námskeið í boði, sum fyrir byrjendur en önnur sem gera ráð fyrir þekkingu og reynslu nemenda. Karl Ágúst Úlfsson mun leiða áhugasama inn í töfrandi heim leikritunar og er námskeiðið ætlað jafnt byrjendum sem […]

Sjóræningjaprinsessan á Húsavík

Laugardaginn 3. mars sl. var 118 ára afmæli Leikfélags Húsavíkur og þann dag var frumsýning á  Sjóræningjaprinsessan eftir Ármann Guðmundsson í leikstjórn Maríu Sigurðardóttur. Þetta er fjörugt verk með ævintýrablæ þar sem fyrir koma sjóræningjar, mannætur og auðvitað falinn fjársjóður. Tuttugu og sex leikarar á öllum aldri koma fyrir í sýningunni sem býður upp á […]

Hans Blær í Tjarnarbíói

Óskabörn ógæfunnar frumsýna leikritið Hans Blær í Tjarnarbíói laugardaginn 10. mars. Hafið þið nokkurn tíma spurt ykkur hvaða eiginleika manneskja þyrfti að hafa til þess að þið gætuð verið þess fullviss að viðkomandi væri að öllu leyti, innra sem ytra, óferjandi skíthæll og viðundur?  Og ef ekki – Hvers vegna í ósköpunum ekki? Hans Blær […]

Frábær en vantar meiri sultu

Fróði og allir hinir grislingarnir eftir Ole Lund Kirkegaard Þýðandi Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson / Lög og söngtextar Valgeir Skagfjörð Leikstjórn Örn Alexandersson Fá leikfélög á landinu hafa verið jafn dugleg við að sinna æskulýðsstörfum og Leikfélag Kópavogs. Vinna með börnum og unglingum hefur jafnan skipað veglegan sess þar á bæ. Þannig hefur félagið alið upp kynslóð […]

Marta Nordal er nýr leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar

Menningarfélag Akureyrar hefur ráðið Mörtu Nordal í starf leikhússtjóra Leikfélags Akureyrar. Marta snýr því aftur í Samkomuhúsið, en hún lék fyrir LA á árum áður. Auk þess hefur hún verið leikkona hjá Borgarleikhúsinu og Þjóðleikhúsinu, en undanfarin ár hefur hún alfarið einbeitt sér að leikstjórn. Árið 2010 stofnaði Marta, ásamt Eddu Björgu Eyjólfsdóttur, leikhópinn Aldrei […]

Slegið á strengi minninga og mannlegs lífs

Freyvangsleikhúsið, Eyjafirði – Þrek og tár eftir Ólaf Hauk Símonarson Leikstjóri Ólafur Jens Sigurðsson Freyvangsleikhúsið hefur á liðnum árum ráðist í hvert stórvirkið á fætur öðru. Leikhúsáhugafólk hefur getað gengið að því sem vísu að ferð á sýningar í Freyvangi veiti því þá stundargleði sem góð leikrit og söngleikir gera. Þrek og tár eftir Ólaf […]

Fróði og allir hinir grislingarnir

„Í húsinu á horninu á heima skrýtið fólk …“ – svona hefst upphafssöngur leikritsins Fróði og allir hinir gríslingarnir eftir Ole Lund Kirkegaard sem Leikfélag Kópavogs frumsýnir næstkomandi laugardag. Og þetta er vægt til orða tekið! Í téðu húsi búa m.a. ástsjúkar ungfrúr, geðstirður kall og kátir krakkar sem finna upp á ýmsu sem fullorðna […]

Framhjáhald, afbrýðisemi og uppþvottaburstar

Leikfélag Hörgdæla frumsýnir tryllingsfarsann Sex í sveit eftir Marc Camelotti fimmtudaginn 1. mars. Hörður Sigurðarson leikstýrir verkinu sem er í þýðingu og staðfærslu Gísla Rúnars Jónssonar. Sex leikarar taka þátt í uppsetningunni en auk þeirra kemur fjöldi annarra við sögu bak við tjöldin. Benedikt býður hjákonunni Sóleyju í bústaðinn norður í landi þegar eiginkonan Þórunn […]

Stöngin inn! á Breiðumýri í Reykjadal

Gamansöngleikur með ABBA-lögum á Breiðumýri. Leikdeild Eflingar frumsýnir gamansönleikinn Stöngin inn, eftir Guðmund Ólafsson í félagsheimilinu á Breiðumýri í Reykjadal föstudaginn 23. febrúar klukkan 20:30. Leikstjóri er Vala Fannell og tónlistarstjóri Jaan Alavere. Verkið gerist í litlu sjávarþorpi þar sem konur bæjarins ákveða að setja eiginmenn sína í kynlífsbann nema þeir hætti að horfa á […]

Þrek og tár í Freyvangsleikhúsinu

Freyvangsleikhúsið setur nú upp leikritið Þrek og tár, eitt af ástsælustu verkum Ólafs Hauks Símonarsonar. Leikstjóri er Ólafur Jens Sigurðsson og tónlistarstjóri Ingólfur Jóhannsson. Í upphafi verksins hittum við Davíð, ungan og hæfileikaríkan tónlistarmann, sem snýr aftur heim til Íslands eftir nám erlendis og hann tekur okkur í ferðalag til liðinna tíma. Við göngum inn í […]

Tilgangurinn helgar meðalið

Leikfélag Selfoss sýnir Glæpi og góðverk – leikgerð Sigrúnar Valbergsdóttur byggt á leikriti Anton Delmer Leikstjóri: Sigrún Valbergsdóttir Þegar gengið er inn í salinn í Litla leikhúsinu við Sigtún blasir við á sviðinu fremur gamaldags og hlýleg stofa. Einhverjar myndir standa upp við vegg og bíða þess að verða hengdar upp. Þegar sýningin, Glæpir og góðverk, hefst […]

Í skugga Sveins sýnt í Gaflaraleikhúsinu

Gaflaraleikhúsið frumsýndi 4 febrúar leikritið Í skugga Sveins eftir Karl Ágúst Úlfsson. Verkið er fyndinn, spennandi og rammíslenskur gamansöngleikur, fullur af sprelli og kostulegum persónum – fjörugt og nútímalegt verk sem byggir á rótgróinni hefð. Leikarar í sýningunni eru Karl Ágúst Úlfsson sem margir muna eftir úr Spaugstofunni, Góða Dátanum Svejk og Umhverfis jörðina á 80 dögum, Kristjana Skúladóttir leikkona […]

Svarti kassinn til Litháen

Stjórn Bandalags íslenskra leikfélaga hefur tilnefnt sýningu Leikfélags Kópavogs, Svarti kassinn eftir Hrefnu Friðriksdóttur í leikstjórn Ágústu Skúladóttur, sem framlag okkar Íslendinga á leiklistarhátíð NEATA (norður-evrópska áhugaleikhúsráðsins) í Litháen næsta sumar. Leiklistarhátíðir NEATA eru haldnar annað hvert ár, til skiptis í aðildarlöndunum sem eru norðurlöndin ásamt Eistlandi, Lettlandi og Litháen. NEATA á 20 ára afmæli […]

Sálir Jónanna ganga aftur í Aratungu

Laugardaginn 3. febrúar frumsýndi Leikdeild ungmennafélags Biskupstungna í Aratungu gamanleikritið Sálir Jónanna ganga aftur eftir þær Ingibjörgu Hjartardóttur, Sigrúnu Óskarsdóttur og Unni Guttormsdóttur. Hjalti Gunnarsson og Íris Blandon fara með aðalhlutverkin en leikarar eru 10 talsins. Leikstjórn er í höndum Gunnars Björns Guðmundssonar og er þetta í 9 skiptið sem hann leikstýrir hjá Leikdeildinni. Æfingar […]

Engin lognmolla

Halaleikhópurinn: Maður í mislitum sokkum eftir  Arnmund S. Backman Leikstjórn: Þröstur Guðbjartsson Það er alltaf sérstök stemning og stíll yfir sýningum Halaleikhópsins sem ekki breytist þótt verkin sem tekin eru til sýningar séu mismunandi og leikstjórarnir ólíkir. Þessu veldur aðallega tvennt, það er sýningarsalurinn sem er allur á breiddina en aðallega er það þó leikhópurinn […]

Glæpir og góðverk á Selfossi

Um þessar mundir fagnar Leikfélag Selfoss 60 ára afmæli og stendur félagið fyrir afar glæsilegri dagskrá á afmælisárinu. Stífar æfingar standa nú yfir á aðalsýningu leikársins sem er fjölskyldugamanverkið Glæpir og góðverk í leikgerð Sigrúnar Valbergsdóttur, byggt á leikriti Anton Delmar. Verkið segir frá þremur hjartagóðum systrum sem erfa húsnæði eftir bróður sinn. Systurnar þrjár […]

Ronja á Höfn í Hornafirði

Á Höfn í Hornafirði standa yfir æfingar á leikverkinu Ronja Ræningjadóttir eftir Astrid Lindgren. Leikstjóri er Stefán Sturla Sigurjónsson. Leikverkið er sett upp í samstarfi Leikfélags Hornafjarðar, Leikhóps FAS og Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu. Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu (FAS) hefur nýverið bætt við Lista- og menningarsviði við skólann og unnu nemendur á þeirri braut hugmyndavinnu, skilgreiningarvinnu og handrit […]

Ávaxtakarfan í Hofi

Leikfélag VMA frumsýnir Ávaxtakörfuna eftir Kristlaugu Maríu Sigurðardóttur og Þorvald Bjarna Þorvaldsson í Menningarhúsinu Hofi 11. febrúar nk. Hið sígilda barnaleikrit Ávaxtakarfan fer á fjalirnar í Hofi í febrúar. Leikfélag Verkmenntaskólans á Akureyri hefur síðustu ár verið með metnaðarfullar uppsetningar og er þessi sýning sú stærsta til þessa. Nokkrar áherslubreytingar verða í sýningunni, miðað við […]

39 og 1/2 vika í Lyngbrekku

Leikdeild Skallagríms frumsýnir leikritið 39 og ½ vika eftir Hrefnu Friðriksdóttur þann 16. febrúar næstkomandi. Hrund Ólafsdóttir leikstýrir. Miðasala hefst 1. febrúar og kostar miðinn 3000 kr. Hægt er að panta miða í síma 8462293 eða á leikdeildskalla@gmail.com. Posi og veitingasala á staðnum. Félagið er á snapchat og þar er hægt að fylgjast aðeins með […]

Maður í mislitum sokkum í Halanum

Halaleikhópurinn frumsýnir leikritið Maður í mislitum sokkum eftir Arnmund Backman í leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar föstudaginn 2. feb. nk. Leikritið fjallar um ekkju sem býr í eldriborgara blokk. Dag einn er hún kemur út úr Bónus situr ókunnur maður í farþegasætinu i bílnum hennar. Maðurinn veit ekki hvað hann heitir, hvar hann býr eða hvert hann […]

Ahhh … Ástin er …

 … að halda jafnvægi Nei fokk … Ástin er að detta Frumsýning í Tjarnarbíói föstudaginn 9. febrúar kl. 20:30. Ljóðrænn, fyndinn og kynþokkafullur kabarett um vegi og vegleysur ástarinnar.  Með texta Elísabetar Jökulsdóttur að vopni, mun RaTaTam syngja, dansa og leika sér í gegnum margvíslega heima ástarglóðanna. Í textum Elísabetar er löngun manneskjunnar eftir ást […]

Ólafur Egill leikstýrir Sjeikspír eins og hann leggur sig

Ólafur Egill Egilsson hefur verið ráðinn til að leikstýra verkinu Sjeikspír eins og hann leggur sig hjá Leikfélagi Akureyrar. Ólafur hefur getið sér gott orð sem leikstjóri, leikari og handritshöfundur frá því hann útskrifaðist frá leiklistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2002. Nú síðast skrifaði Ólafur, ásamt Gísla Erni Garðarssyni, handrit söngleiksins Elly sem notið hefur fádæma […]

Fróði og allir hinir grislingarnir

Æfingar eru hafnar hjá Leikfélagi Kópavogs á leikritinu Fróði og allir hinir grislingarnir eftir Ole Lund Kirkegaard,  í þýðingu Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar með lögum eftir Valgeir Skagfjörð. Leikfélag Kópavogs frumsýndi leikritið árið 1989 í leikstjórn Valgeirs en nú leikstýrir Örn Alexandersson sýningunni en hann lék í uppfærslunni á sínum tíma. Stefnt er að því að frumsýna […]

Leikstjórn með ungu fólki

Námskeið í samstarfi Símenntunar Háskólans á Akureyri og Listaháskóla Íslands. Fyrir hverja: Námskeiðið nýtist kennurum, listafólki og þeim sem vinna að leiklist með börnum og ungmennum. Í námskeiðinu verður veitt innsýn í starf leikstjórans í gegnum verklegar æfingar og hópvinnu. Nemendur fá tækifæri til þess að sviðsetja stuttar senur undir leiðsögn atvinnuleikstjóra. Sérstök áhersla verður lögð […]