Bandalagsþing 2026 – Dagskrá
Stuttverkahátíð 2026
Skráning á BÍL-þing 2026
AÁÁ 2026 – Valnefnd
Addamsfjölskyldan hjá Leikflokknum

Leikflokkur Húnaþings vestra sýnir gamansöngleikinn Addams fjölskyldan um páskana 2026. Leikstjóri og þýðandi er Sigurður Líndal og danshöfundur er Benjamin Di’Ath. Addams fjölskylduna þekkja margir en þetta er engu að síður í fyrsta sinn sem söngleikurinn er sýndur á Íslandi. Söngleikurinn, byggður á persónum The Addams Family eftir Charles Addams, snýst um það þegar Wednesday […]
Alþjóðaleikhúsdagurinn 27. mars – Kveðja frá BÍL og NEATA

Bandalag íslenskra leikfélaga óskar leikhúsfólki gleði, friðar og sköpunarkrafts á degi leikhússins. Ásamt vinum okkar í NEATA sendum við þessa kveðju í tilefni dagsins.
Vífið í Fjallabyggð

Leikfélag Fjallabyggðar frumsýnir Með vífið í lúkunum eftir Ray Cooney sun. 29. mars. Verkið fjallar um John Smith sem er ósköp venjulegur leigubílstjóri sem óvart, alveg óvart, er giftur tveimur konum. Til að þær viti ekki hvor af hinni þarf hann að vera býsna vel skipulagður. Dag nokkurn lendir hann hinsvegar í slysi og þá […]
Læst: Skólinn 2026 – Umsóknir f. skólanefnd
Það er enginn útdráttur því að færslan er læst.
Feedback as Dialogue in Amateur Theatre

Alþjóðaáhugaleikhússamtökin standa fyrir fyrirlestrum af ýmsu tagi og lau. 28. mars kl. 13.00 að íslenskum tíma verður haldið „Masterclass“ á vefnum undir heitinu Feedback as Dialogue in Amateur Theatre. Þar verður fjallað um hvernig endurgjöf/gagnrýni getur verið hjálpleg til frekari þróunar og þroska einstaklinga og hópa í leikhúsvinnu. Eins og segir á vef AITA/IATA: „This […]
Fjöllin vakna hjá Hugleik

Nýjasta uppfærsla Leikfélagsins Hugleiks verður frumsýnd í Hugleikhúsinu, Langholtsvegi 109-111, fimmtudaginn 19. mars. Fjöllin vakna heitir sýningin og er samsköpunarsýning upp úr þeim mikla fjársjóði sem íslenskar þjóðsögur eru, en Hugleikur hefur löngum fengist við að endurvinna efni úr íslenskri menningu, oft með nokkuð frjálslegum og galgopalegum hætti, og svo er einnig að þessu sinni. […]
Skráning á Bandalagsþing 2026 í Reykjanesbæ
Aðalfundurinn og gisting verður á Park Inn hótelinu Hafnargötu 57 í Reykjanesbæ . Veljið að neðan gisti- og matarvalkosti. Neðangreint verð á gistingu er miðað við 1 fulltrúa/fundargest. Ef óskað er eftir sérherbergi takið það fram í reitnum Annað. Fulltrúar gera upp gistingu á staðnum sem og hádegisverð á laugardag. Reikningur verður sendur fyrir fundarveitingum […]
Ársreikningur BÍL 2025 – óundirritaður
Kjörbréf á aðalfund BÍL 2026
Þú hefur ekki leyfi til að skoða þessa síðu.
Skilaboðaskjóðan á Selfossi

Leikfélag Selfoss sýnir um þessar mundir Skilaboðaskjóðuna eftir Þorvald Þorsteinsson í leikstjórn Gunnars Inga Gunnsteinssonar. Frumsýnt var 27. febrúar við mikinn fögnuð áhorfenda og virðist ekkert lát verða þar á, því það hefur verið nánast uppselt á allar sýningar síðan þá. Sýningar verða um helgar í mars og apríl í Litla leikhúsinu við Sigtún. Í […]
Síðasta partýið í Kópavogi

Leikfæélag Kópavogs frumsýnir Síðasta partýið eftir Aðalstein Jóhannsson fimmtudaginn 12. mars. Síðasta partýið í blokkinni hefur verið haldið. Íbúarnir eru missáttir við þá ákvörðun og upp hefst leynimakk sem fljótlega fer úr böndunum. En hver er ástæðan fyrir því að það verða ekki fleiri partý? Er það brotni sófinn, bilaði glugginn á baðherberginu eða merkingarnar á […]
Rocky Horror á Húsavík

Leikfélag Húsavíkur frumsýnir söngleikinn Rocky Horror laugardaginn 14. mars kl. 16:00 . Richard O’Brien er höfundur verksins og þýðingin sem LH notast við var í höndum Braga Valdimars Skúlasonar. Við fengum til liðs við okkur leikstjórann Eyvind Karlsson. Hann mætti norður um miðjan janúar og ganga æfingar og allur undirbúningur mjög vel. The Rocky Horror […]
Heilsugæslan hápólitískur gamanleikur

Kómedíuleikhúsið og Í einni sæng frumsýna gamanleikinn Heilsugæsluna í Tjarnarbíó í kvöld, fimmtudaginn 12. mars. Um er að ræða hápólitískan gamanleik eftir Lýð Árnason lækni. Leikurinn stingur vissulega á ýmsum kýlum heilbrigðiskerfisins sem snertir okkur öll og er án vafa heitasta kartafla samfélagsins. Formið er tvíleikur þar sem leikararnir Elfar Logi Hannesson og Rakel Björk […]
Áhugaleikhúsin eru alvöru fjársjóður

Hildur Eir Bolladóttir skrifar um Átta konur hjá Leikfélagi Hörgdæla Á Melum í Hörgárdal er verið að sýna glæpa gamanleikinn Átta konur. Við vinkonurnar skelltum okkur í leikhús í gær og áttum þar upplífgandi kvöldstund. Átta konur fjallar um fagra eiginkonu, tvær óstýrlátar dætur, aðþrengda mágkonu, gráðuga tengdamömmu, dularfulla ráðskonu, kynþokkafulla þjónustustúlku og húsbóndann á […]
Gleðilega hátíð! frumsýnt á Höfn

Leikfélag Hornafjarðar frumsýnir leikritið Gleðilega hátíð! laugardaginn 14. mars í Mánagarði. Sýningin er bráðskemmtilegur gamanleikur þar sem allt sem mögulegt getur fer á versta veg. Í henni fylgjum við litlu leikfélagi á frumsýningardegi frá helvíti. Tæknivandræði, brókarsótt og tengdamömmur setja strik í reikninginn, en blessast þetta að lokum? Verkið er samsköpunarverk úr smiðju leikhópsins. Leikverkið […]
Ævintýrabókin – mikil gleði, gott í hjartað og bráðfyndið.

Júlíus Júlísson skrifar um Ævintýrabókina hjá Leikfélagi Dalvíkurbyggðar Föstudaginn 6. mars, frumsýndi Leikfélag Dalvíkurbyggðar í Ungó Ævintýrabókina eftir Pétur Eggerz. Ingrid Jónsdóttir leikstýrir verkinu og það eru um eða yfir 40 manns sem koma að sýningunni. Eitt kvöldið leggst Dóra litla upp í rúm og ætlar að lesa uppáhaldsbókina sína. Hún byrjar að lesa, en […]
Glæpsamlegur gamanleikur í Hörgárdal

Fimmtudagskvöldið 5. mars kl. 20:00 frumsýnir Leikfélag Hörgdæla glæpsamlega gamanleikinn Átta konur, eftir Robert Thomas á Melum í Hörgársveit. Fögur eiginkona, tvær ungar og óstýrilátar dætur, aðþrengd mágkona, gráðug tengdamamma, dularfull ráðskona og kynþokkafull þjónustustúlka. Húsbóndinn sjálfur liggur sofandi í rúmi sínu uppi á lofti. Eða hvað? Þegar sjö villtar konur eru samankomnar og sú […]
Leiklistarskóli BÍL 2026 – skráning hefst 1. mars

Námsskrá Leiklistarskóla BÍL sumarið 2026 hefur nú verið birt. Boðið verður upp á 4 spennandi námskeið að þessu sinni; Leiklist I, Sérnámskeið í leikritun, Improv-námskeið og Complete Vocal Technique. Kennarar verða þau Ágústa Skúladóttir, Karl Ágúst Úlfsson, Gríma Kristjánsdóttir og Þórhildur Örvarsdóttir. Allar nánari upplýsingar um námskeiðin og skólann er að […]
Leiklistarskóli BÍL 2026
STARFSTÍMI SKÓLANS ER 20. – 28. JÚNÍ 2026 AÐ REYKJASKÓLA Í HRÚTAFIRÐI. — Smella hér til að sækja um!* — (*Opnað fyrir skráningu 1. mars kl. 12.00) 3. apríl fá umsækjendur svar við umsókn. ATH! Staðfestingargjald að upphæð 40.000 kr. þarf að vera greitt til að umsókn sé samþykkt! KVEÐJA FRÁ SKÓLANEFND Kæru […]
Leiklistarskóli BÍL 2026 – umsókn
[box] Opnað verður hér fyrir umsóknir kl. 12.00 þann 1. mars. Umsókn telst gild frá og með þeim tíma sem staðfestingargjald hefur verið greitt og umsókn hefur borist. Þann 3. apríl verður send staðfesting á þá umsækjendur sem fengið hafa pláss á námskeiði. Öðrum verður boðið að vera á biðlista. [/box] Síða Leiklistarskólans 2026
Hlátur, gleði og tempó

Pétur Guðjónsson fjallar um sýningu Freyvangsleikhússins á Tom, Dick og Harry Tom, Dick og Harry segir frá hjónunum Tom og Lindu sem bíða heimsóknar frá ættleiðingarstofu – og því þarf allt að vera fullkomið. Þá mæta bræður Toms og úr verður óstöðvandi flækja. Klassískur farsi þar sem góðar fyrirætlanir breytast í algjört stjórnleysi. Það voru […]
Tom, Dick og Harry í Freyvangi

Freyvangsleikhúsið setur á svið gamanleikinn Tom, Dick og Harry eftir Ray Cooney og son hans Michael Cooney, í þýðingu Harðar Sigurðarsonar. Leikstjóri er Ólafur Jens Sigurðsson. Frumsýnt verður 20.febrúar og sýnt verður um helgar fram í apríl. Leikverkið segir frá hjónunum Tom og Lindu en þau eiga von á konu frá ættleiðingar skrifstofunni. Bræður Toms […]
Leikdeild Eflingar frumsýnir Þrek og tár

Þrek og tár, eitt af ástsælustu verkum Ólafs Hauks Símonarsonar verður á fjölunum hjá leikdeild Umf. Eflingar á Breiðumýri í vetur. Leikstjóri er María Pálsdóttir og tónlistarstjóri Pétur Ingólfsson. Verkið er söngleikur sem fjallar um líf söngelskrar kaupmannsfjölskyldu í Vesturbænum á sjöunda áratugnum. Í verkinu koma fyrir þrjár kynslóðir fjölskyldunnar en saga sonarins Davíðs er […]
Halldór E. Laxness

Netfang: helaxness@gmail.com Halldór E. Laxness (leikstjóri) er fæddur og uppalinn í Reykjavík. Hann stundaði leiklistarnám á Ítalíu og starfaði þar og á Spáni sem leikari um tveggja ára skeið með ítalska leikhópnum Teatro della Fortuna. Í Kanada starfaði Halldór sem leikstjóri við Banff Center for the Arts, þar sem frumflutt voru tvö fjöltæknileikverk eftir hann, […]
Beint í æð hjá Litla leikklúbbnum

Litli leikklúbburinn frumsýndi farsann Beint í æð eftir Ray Cooney, í þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar, í Edinborgarhúsinu á Ísafirði um helgina. Sýningar verða áfram nú í febrúar. Beint í æð er klassískur farsi eins og þeir gerast bestir: Leyndarmál, misskilningur á misskilning ofan og allt á suðupunkti. Alls koma um 30 manns að uppsetningunni og […]
Fundargerð aðalfundar að Vatnsholti 3. maí 2025
Tækninámskeið í Þjóðleikhúsinu í febrúar

Fræðsludeild Þjóðleikhússins mun standa fyrir tækninámskeiðum dagana 21. og 22. febrúar þar sem farið verður yfir helstu atriði er varða ljósa- og hljóðtækni. Námskeiðíð er ætlað ljósa- og hljóðmönnum áhugaleikhúsa, félagsmiðstöðva, framhaldsskóla og þeirra sem vinna með ljós og hljóð á öðrum vettvangi. Þátttakendur þurfa að hafa náð 17 ára aldri og hafa eitthvað fengist […]
Æfingar hafnar á Skilaboðaskjóðunni á Selfossi

Leikfélag Selfoss hefur hafið æfingar á Skilaboðaskjóðunni eftir Þorvald Þorsteinsson í leikstjórn Gunnars Gunnsteinssonar. Frumsýnt verður í lok febrúar og verða sýningar um helgar í mars og apríl. Í Skilaboðaskjóðunni segir frá Putta og Möddumömmu sem búa í Ævintýraskóginum, þar sem öll ævintýrin gerast og dvergarnir sinna mikilvægum störfum. Þegar Nátttröllið rænir Putta til að breyta honum í tröllastrák, sameinast allir íbúar skógarins um að bjarga honum áður en sólin sest á bakvið sólarlagsfjall. En nornin, úlfurinn og stjúpan vilja ekki vera með og þá eru góð ráð dýr. Skilaboðaskjóðan er ævintýrasöngleikur byggður á samnefndri bók Þorvaldar sem kom út árið 1986 og naut mikilla vinsælda. Söngleikurinn var frumsýndur á stóra […]
Aron Martin Ásgerðarson

Netfang: aron.asgerdar@gmail.com Sími: 8460855 Aron Martin útskrifaðist árið 2019 frá Listaháskóla Íslands með BA gráðu af sviðshöfundabraut. Síðan þá hefur hann starfað í fullu starfi við sviðslistir og kvikmyndagerð sem leikstjóri, höfundur, ljósahönnuður, leikmyndahönnuður ásamt því að hafa gengt stöðu tæknistjóra, og seinna sviðsstjóra, Tjarnarbíós samhliða meistaranámi í Ritlist. Ferilskrá á PDF
Umsókn um ríkisstyrk 2026
Þú hefur ekki leyfi til að skoða þessa síðu.
Námskeið í leikhúsförðun og gervagerð – Könnun
Vinsamlegast svarið eftirfarandi spurningum um mat ykkar á námskeiðinu. Ýtið/smellið á Senda inn hnappinn neðst þegar öll svör eru komin.
Elísabet Skagfjörð

Netfang elisabetskagfjord9@gmail.com Símanúmer 8508924 Heildstæð ferilsskrá á PDF Sviðslistanám: MA leiklist frá Liverpool Institute for Performing Arts BA leiklist frá Listaháskóla Íslands Diploma í nútímadansi og ballett frá Listdansskóla Íslands Uppsetningar: Nei ráðherra! hjá Leikfélagi Mosfellssveitar – leikstjóri Kardemommubærinn hjá Leikfélagi Mosfellssveitar – danshöfundur Galdrakarlinn í Oz hjá Leikfélagi Mosfellssveitar – aðstoðarleikstjóri Footloose hjá Leikfélagi […]
Námskeið í leikhúsförðun og gervagerð

Leiklistarskóli BÍL stendur fyrir námskeiði í leikhúsförðun dagana 24.-25. janúar 2026. Kennari er Ásta Hafþórsdóttir sem er einn fremsti förðunarmeistari landsins og þótt víðar væri leitað. Kennt verður í húsnæði Reykjavík Makeup School að Krókhálsi 6 í Reykjavík. Námskeiðið hefst laugardaginn 24. janúar og lýkur sunnudaginn 25. janúar. Námskeiðin hefjast kl. 10.00 hvorn dag og […]
Umsókn – Námskeið í leikhúsförðun og gervagerð
(Sjá umsóknarform neðst á síðunni) Námskeið í leikhúsförðun og gervagerð 24.-25. janúar 2026. Leiklistarskóli Bandalags íslenskra leikfélaga býður upp á námskeið í leikhúsförðun og gervagerð dagana 24.-25. janúar 2026. Kennari er Ásta Hafþórsdóttir sem er einn fremsti förðunarmeistari landsins og þótt víðar væri leitað. Kennt verður í húsnæði Reykjavík Makeup School að Krókhálsi 6 í Reykjavík. […]
Þér er boðið í afmæli!

Bandalag íslenskra leikfélaga er 75 ára í ár. Af því tilefni verður haldin afmælisveisla sunnudaginn 7. desember kl. 15.00 á Netinu. Aðildarfélögin eru hvött til halda upp á daginn með því að koma saman í leikhúsinu, heimahúsi eða annarsstaðar og fylgjast með afmælisstreymi á YouTube þar sem m.a. verða afmæliskveðjur frá nokkrum aðildarfélögum auk myndasýningar […]
Lápur, Skrápur og jólaskapið á aðventunni á Ísafirði

Litli leikklúbburinn á Ísafirði endurfrumsýnir jólaleikritið Lápur, Skrápur og jólaskapið eftir Snæbjörn Ragnarsson nú á aðventunni. Klúbburinn setti sýninguna líka upp fyrir síðustu jól en þá komust færri að en vildu. „Það er búið að vera virkilega gaman að rifja upp kynnin við Sunnu mannabarn, tröllabræðurna og fjölskyldu þeirra í Grýluhelli,“ segir Gunnar Ingi Hrafnsson, […]